Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Yngri landsliðs æfingahópar fyrir jólaæfingar 2019

2 des. 2019Landsliðsþjálfarar yngri liða KKÍ sumari 2020 hafa nú valið sína fyrstu æfingahópa fyrir jólaæfingarnar í ár sem fram fara milli jóla og nýárs. Um er að ræða æfingahópa fyrir U15, U16 og U18 ára lið drengja og stúlkna. Leikmennirnir 148 koma frá 20 félögum (4 leikmenn frá erlendum liðum) og skiptast þeir þannig milli félaga:​ ​Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Tveir leikir í beinni í kvöld á Stöð 2 Sport

29 nóv. 2019Í kvöld fara fram tveir leikir í Domino's deild karla og verða þeir báðir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kl. 18:30 mætast Keflavík og Fjölnir í Blue-höllinni í Keflavík og strax á eftir kl. 20:15 hefst leikur Stjörnunnar og KR í Mathús Garðabæjar-höllinni. Kvöldinu lýkur svo með Domino's Körfuboltakvöldi kl. 22:10 þar sem leikir í Domino's deildum karla og kvenna verða gerðir upp ásamt tilþrifum gerð góð skil.Meira
Mynd með frétt

Yngri landslið KKÍ · Æfingahópar fyrir jólin

29 nóv. 2019Um helgina munu þjálfarar landsliða fyrir sumarið 2020 boða sína æfingahópa fyrir U15, U16 og U18 landsliðin formlega til æfinga. Á mánudaginn kemur 2. desember verða svo hóparnir tilkynntir formlega til félaganna og á kki.is. Jólaæfingarnar eru upphafið af landsliðsverkefnum KKÍ en liðin leika í sumar á mótum, bæði NM U16 og U18 liða, U15 ára móti í Kaupmannahöfn sem og FIBA EM mótum hjá U16 og U18 liðunum. U20 hópar verða tilkynntir einnig í næstu viku en þeir æfingahópar geta tekið breytingu út tímabilið en U20 liðin taka eingöngu þátt á EM, strákar í júlí og stelpur í ágúst.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 27. nóvember 2019

29 nóv. 2019Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í einu agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Fjórir leikir í Domino's deild karla í kvöld · Njarðvík-Haukar í beinni á Stöð 2 Sport

28 nóv. 2019Fjórir leikir fara fram kl. 19:15 í kvöld í Domino's deild karla. Stöð 2 Sport verður í Njarðvík og sýnir beint frá leik heimamanna gegn Haukum úr Hafnarfirði og þá mun Tindastóll-TV sýna beint á netinu frá sínum heimaleik gegn Þór Þorlákshöfn. Lifandi tölfræði frá öllum leikjum kvöldsins verður á sínum stað á kki.is. Meira
Mynd með frétt

Króksamótið · 11. janúar 2020 - Skráning hafin!

28 nóv. 2019Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Keflavík-Haukar í beinni á Stöð 2 Sport

27 nóv. 2019Heil umferð fer fram í Domino's deild kvenna í kvöld þegar fjórir leikir fara fram kl. 19:15. Stöð 2 Sport verður í Blue-höllinni í Keflavík og sýnir beint frá leik Keflavíkur og Hauka. Meira
Mynd með frétt

Craig Pedersen enduráðinn landsliðsþjálfari til næstu þriggja ára

22 nóv. 2019Stjórn og Afreksnefd KKÍ hefur ráðið Craig Pedersen áfram sem landsliðsþjálfara landsliðs karla næstu þrjú árin eða fram yfir lok HM 2023. Næstu verkefni liðsins eru forkeppnir og undankeppnir að HM en gluggarnir verða í febrúar og nóvember 2020 og febrúar 2021. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli í forkeppninni fer áfram á annað stig undankeppninnar sem leikin verður sumarið 2021. Meira
Mynd með frétt

Domino's deildar veisla í kvöld · 3 leikir beint og Domino's Körfuboltakvöld

22 nóv. 2019Í kvöld er sannkölluð Domino's deildar veisla en þá verða þrír leikir í beinni sýndir á Stöð 2 Sport, tvíhöfði í Hafnarfirði þar sem sýndir verða leikir Hauka og Skallagríms í Domino's deild kvenna kl. 18:00 og strax á eftir frá leik Hauka og Keflavíkur í Domino's deild karla kl. 20:15. Þór Þorlákshöfn tekur á móti ÍR í Domino's deild karla kl. 18:30 og verður hann líka sýndur beint. Í lok kvölds er svo komið að Domino's Körfuboltakvöldi þar sem umferðin í deildunum verður gerð upp að venju með tilheyrandi fjöri.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 20. nóvember 2019

21 nóv. 2019Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fimm agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Domino's deildirnar: Uppgjörsþáttur Domino's deildar kvenna í kvöld og 3 leikir hjá körlunum

21 nóv. 2019Í kvöld er nóg um að vera í íslenskum körfuknattleik. Fyrsta fara fram þrír leikir í Domino's deild karla þar sem Stöð 2 Sport ætlar að sýna beint frá leik KR og Njarðvíkur í DHL-höllinni. Á eftir honum kl. 21:15 verður svo annar Domino’s Körfuboltakvöld kvenna uppgjörsþáttur í beinni á Stöð 2 Sport. ➡️ Domino’s Körfuboltakvöld kvenna í kvöld kl. 21:15 Uppgjörsþáttur númer 2 ➡️ 3 leikir í Domino’s deild karla á dagskránni í kvöld 🍕 Domino's deild karla 🗓 Fim. 21. nóv. 🖥 LIVEstatt á kki.is ⏰ 19:15 🏀 KR-NJARÐVÍK ➡️📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport 🏀 FJÖLNIR-TINDASTÓLL 🏀 GRINDAVÍK-VALUR ⏰ 21:15 📺 Domino's Körfuboltakvöld kvenna í beinni á Stöð 2 Sport 📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildinMeira
Mynd með frétt

FIBA: Jón Bender eftirlitsdómari FIBA í sínu fyrsta verkefni í kvöld

20 nóv. 2019Jón Bender, eftirlitsdómari FIBA, verður að störfum í sínum fyrsta leik í kvöld í Svíþjóð á leik Södertalje og Enisey Krasnoyarsk í FIBA Europe Cup. Leikurinn fer fram á heimavelli Södertalje kl. 19:00 eða 18:00 að íslenskum tíma. KKÍ óskar Jóni góðs gengis í leiknum í kvöld sem verður vonandi hans fyrsti af mörgum á næstu árum.Meira
Mynd með frétt

Davíð Tómas dæmir fyrir FIBA í kvöld í FIBA Europe Cup

20 nóv. 2019Davíð verður einn dómara í leik Kataja Basket frá Finnlandi og Bakken Bears frá Danmörku í kvöld í FIBA Europe Cup keppni karla. Leikurinn fer fram á heimavelli Kataja í Joensuu. Meðdómarar Davíðs Tómasar verða frá Ítalíu og Skotlandi og eftirlitsmaður FIBA kemur frá Noregi. KKÍ óskar Davíð góðs gengis í kvöld í sínum leik. #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Landslið kvenna: GRIKKLAND-ÍSLAND í dag kl. 15:00

17 nóv. 2019Íslenska kvennalandsliðið leikur sinn annan leik í undankeppni EM, EuroBasket Women 2021, í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma þegar liðið leikur í Chalkíkda í Grikklandi. Gríska liðið tapaði sínum fyrsta leik með sex stigum fyrir Slóveníu og eru með mjög sterkt lið í dag. Okkar stelpur er staðráðnar í að bæta sig frá fyrri leiknum á fimmtudaginn og gefa allt í leikinn í dag. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV. Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði, úrslitum úr öðrum leikjum og stöðu í riðlum á heimasíðu keppninnar hérna.Meira
Mynd með frétt

Breytingar á 8. umferð Dominosdeildar karla

15 nóv. 2019Gerðar hafa verið breytingar á 8. umferð Dominosdeildar karla.Meira
Mynd með frétt

Félagskiptaglugginn lokar tímabundið á miðnætti í kvöld til áramóta: Gildir fyrir 20 ára og eldri

15 nóv. 2019Samkvæmt reglugerð KKÍ um félagaskipti mun félgaskiptaglugginn loka í kvöld á miðnætti 15. nóvember fyrir leikmenn eldri en 20 ára. fram til 1. janúar 2018. Í 3. gr. um tímabil félagaskipta segir: Félagaskipti í meistaraflokki karla og kvenna ásamt unglingaflokki karla og kvenna eru heimil frá og með 1. júní til og með 15. nóvember en óheimil frá og með 16. nóvember til og með 31. desember. Þau eru svo heimil frá og með 1. janúar til og með 31. janúar en óheimil frá 1. febrúar til og með 31. maí. Félagaskipti eru frjáls í öllum öðrum flokkum KKÍ, nema frá og með 1. febrúar til og með 31. maí ár hvert en á þeim tíma eru öll félagaskipti óheimil.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 13. nóvember 2019

14 nóv. 2019Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Landslið kvenna: ÍSLAND-BÚLGARÍA í kvöld kl. 20:00

14 nóv. 2019Í kvöld er komið að fyrsta leik landsliðs kvenna í undankeppni EM, EuroBasket Women 2021, en í kvöld mætir liðið Búlgaríu í Laugardalshöllinni kl. 20:00. Seinni leikurinn í þessum landsliðsglugga verður svo á sunnudaginn í Grikklandi. Domino’s, aðalstyrktaraðili KKÍ, ætlar að bjóða landsmönnum frítt á leikinn í kvöld og einnig upp á flatbökur milil kl. 19:00 og 19:30 í Höllinni. Benedikt Guðmundsson hefur valið 12 manna lið sitt fyrir leikinn í kvöld gegn Búlgaríu og er liðið skipað eftirfarandi leikmönnum sem sjá má hér að neðan:Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · 3 leikir í kvöld: Þór Þ.-Grindavík í beinni á Stöð 2 Sport

13 nóv. 2019Í kvöld fara fram þrír leikir í Domino's deild karla og er einn leikur í beinni á Stöð 2 Sport. Sýnt verður frá leik Þórs Þ. og Grindavíkur í Þorlákshöfn. Allir leikirnir í lifandi tölfræði á kki.is. Góða skemmtun! Meira
Mynd með frétt

FIBA: Davíð Tómas dæmir i kvöld í Belgíu

13 nóv. 2019Davíði Tómas Tómasson, FIBA dómari, verður í verkefni í kvöld í Brussel í Belgíu þegar Phoenix Brussels mæta Donar Groningen frá Hollandi. Um er að ræða leik í H-riðli FIBA Europe Cup keppninnar. Meðdómarar Davíðs verða Paulo Marques frá Portúgal sem er aðaldómari og þriðji dómari verður Nuno Monteiro einnig frá Portúgal. Eftirlitsmaður leiksins er Christian Altmeyer frá Frakklandi. Davíð Tómas á svo annan leik eftir viku, þann 20. nóvember en þá verður hann að dæma í sömu keppni í leik í Finnlandi. KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í kvöld! #korfuboltiMeira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira