16 ágú. 2021

Ísland sigraði Eistland í báðum leikjum dagsins hjá undir 18 ára stúlkna og drengja í dag

Undir 18 ára stúlknalið Íslands lagði Eistland  39-64.

Emma Sóldís Hjördísardóttir var atkvæðamest í liði Íslands í dag með 18 stig og 3 fráköst. Þá bætti Emma Theodórsdóttir við 8 stigum, 8 fráköstum og 5 stolnum boltum.

Undir 18 ára drengjalið Íslands vann Eistland  68-80.

Róbert Sean Birmingham var atkvæðamestur í liði Íslands eftir að Ólafur Ingi hafði lokið leik. Róbert skilaði 17 stigum og 3 fráköstum. Þá bætti Almar Orri Atlason við 13 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum.