Siðareglur

Fyrir stjórnarmenn KKÍ, starfsmenn KKÍ, nefndarmenn KKÍ og aðra sem koma fram í nafni KKÍ
1. Kynntu þér og tileinkaðu þær siðareglur sem hér er að finna. Komdu fram af fullkomnum heilindum og láttu framkomuna endurspegla viðhorf þitt til grundvallarreglna og markmiða Körfuknattleikssambands Íslands.

2. Vertu hlutlaus í samskiptum þínum við opinberar stofnanir, innlend og alþjóðleg samtök sem og önnur sambönd eða hópa í samræmi við grundvallarhugsjónir íþrótta- og körfuknattleikshreyfingarinnar.

3. Gættu þess að misbjóða ekki virðingu einstaklinga eða hópi einstaklinga t.d. hvað varðar kynferði, þjóðerni, kynþátt, litarhaft, menningu, tungumál, trúarbrögð, kynhneigð og stjórnmálaskoðanir.

4. Stuðlaðu að jöfnum tækifærum allra til þátttöku í körfuknattleik.

5. Virtu lýðræðisreglur, gagnsæi við ákvarðanatöku og stjórnaðu samkvæmt reglum um ábyrga fjármálastjórn.

6. Tryggðu að persónuleg réttindi þeirra aðila sem þú ert í sambandi við og átt í samskiptum við séu varin, virt og tryggð.

7. Gerðu þér grein fyrir hlutleysi og trúnaðarskyldum við störf.

8. Gættu að vandvirkni, heiðarleika og samviskusemi í starfi fyrir KKÍ og að orð og athæfi samrýmist starfi og umhverfi, stað og stund.

9. Stuðlaðu að góðum samskiptum við stjórnarmenn, þjálfara, dómara, leikmenn og aðra aðstandendur aðildarfélaga KKÍ.

10. Taktu ekki við gjöfum og þess háttar ef verðmæti þeirra er umfram það sem eðlilegt getur talist. Gefðu heldur ekki gjafir og þess háttar ef verðmæti þeirra er umfram það sem eðlilegt getur talist.

11. Þiggðu aldrei mútur.

12. Taktu aldrei við umboðslaunum eða loforðum um umboðslaun, fyrir hvers konar samningagerð við skyldustörf.

13. Taktu aldrei, hvort heldur sem er með beinum eða óbeinum hætti þátt í veðmálum, fjárhættuspilum, happdrætti og þess háttar viðburðum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði sem þú getur haft áhrif á.

14. Leystu ágreining og árekstra á sanngjarnan hátt og til samræmis við reglur og venjur hreyfingarinnar.

15. Vertu til fyrirmyndar í framkomu og hegðun.

16. Misnotaðu aldrei aðstöðu þína til að koma eigin hagsmunum á framfæri á kostnað körfuknattleikshreyfingarinnar.


Fyrir dómara á vegum KKÍ
1. Kynntu þér og tileinkaðu þær siðareglur sem hér er að finna. Komdu fram af fullkomnum heilindum og láttu framkomuna endurspegla viðhorf þitt til grundvallarregla og markmiða Körfuknattleikssambands Íslands

2. Gættu þess að misbjóða ekki virðingu einstaklinga eða hópi einstaklinga t.d. hvað varðar kynferði, þjóðerni, kynþátt, litarhaft, menningu, tungumál, trúarbrögð, kynhneigð og stjórnmálaskoðanir

3. Settu öryggi og heilsu leikmanna fram yfir allt annað.

4. Sýndu leikmönnum, þjálfurum og öðrum sem koma að leiknum virðingu. 

5. Taktu aldrei, hvort heldur sem er með beinum eða óbeinum hætti þátt í veðmálum, fjárhættuspilum, happdrætti og þess háttar viðburðum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði sem þú getur haft áhrif á.

6. Taktu ávallt ábyrgð á ákvörðunum þínum.

7. Vertu til fyrirmyndar í framkomu og hegðun.

8. Gættu að vandvirkni, heiðarleika og samviskusemi í starfi fyrir KKÍ og að orð og athæfi samrýmist starfi og umhverfi, stað og stund

9. Leitaðu þekkingar og fylgstu með þróun í körfuknattleik.

10. Forðastu notkun niðrandi ummæla, upphrópana og blótsyrða í tengslum við körfuknattleik.

11. Misnotaðu aldrei stöðu þína sem dómari.

Fyrir þjálfara KKÍ
1. Kynntu þér og tileinkaðu þær siðareglur sem hér er að finna. Komdu fram af fullkomnum heilindum og láttu framkomuna endurspegla viðhorf þitt til grundvallarregla og markmiða Körfuknattleikssambands Íslands.

2. Gættu þess að misbjóða ekki virðingu einstaklinga eða hópi einstaklinga t.d. hvað varðar kynferði, þjóðerni, kynþátt, litarhaft, menningu, tungumál, trúarbrögð, kynhneigð og stjórnmálaskoðanir.

3. Vertu leikmönnum þínum góð fyrirmynd og spornaðu gegn óíþróttamannslegri og niðurlægjandi hegðun.

4. Sýndu körfuknattleiknum virðingu og virtu reglur hans, venjur og siði. Stuðlaðu að því að iðkendur geri slíkt hið sama og kenndu þeim að virða dómara og keppinauta.

5. Gerðu þér grein fyrir trúnaðarskyldum við störf.

6. Vertu til fyrirmyndar í framkomu og hegðun.

7. Gættu að vandvirkni, heiðarleika og samviskusemi í starfi fyrir KKÍ og að orð og athæfi samrýmist starfi og umhverfi, stað og stund.

8. Leitaðu þekkingar og fylgstu með þróun í körfuknattleik.

9. Taktu aldrei, hvort heldur sem er með beinum eða óbeinum hætti þátt í veðmálum, fjárhættuspilum, happdrætti og þess háttar viðburðum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði sem þú getur haft áhrif á.

10. Misnotaðu aldrei stöðu þína sem þjálfari

11. Sýndu meiðslum og veikindum leikmanna tillitssemi.

12. Forðastu notkun niðrandi ummæla, upphrópana og blótsyrða í tengslum við körfuknattleik. 


Fyrir leikmenn sem valdir eru í landsliðshóp á vegum KKÍ
1. Kynntu þér og tileinkaðu þær siðareglur sem hér er að finna. Komdu fram af fullkomnum heilindum og láttu framkomuna endurspegla viðhorf þitt til grundvallarregla og markmiða Körfuknattleikssambands Íslands

2. Virtu allar þær reglur og skilboð sem landsliðsþjálfari eða forysta KKÍ gefur út fyrir landsliðsmenn 

3. Gerðu alltaf þitt besta og berðu virðingu fyrir öðrum.

4. Berðu virðingu, bæði fyrir sam- og mótherjum.

5. Ekki láta í ljósi neikvæðar eða niðrandi athugasemdir gagnvart öðrum iðkendum, keppinautum, dómurum, þjálfurum og liðsstjórum sem og öðrum aðilum sem koma að körfuknattleiksstarfinu með einum eða öðrum hætti.

6. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig .

7. Gerðu þér grein fyrir því að þú ert fyrirmynd þeirra sem yngri eru.

8. Forðastu notkun niðrandi ummæla, upphrópana og blótsyrða í tengslum við körfuknattleik.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira