
27 nóv. 2026Strákarnir okkar unnu glæsilegan stemningssigur gegn Bosníu í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Stuðningurinn í stúkunni var öflugur frá upphafsflauti.
Sigurinn gerir það að verkum að liðið kemur enn sterkara til leiks gegn Tyrkjum á sunnudag en liðið ferðast til Istanbul í dag.
Minningarstund vegna sjóslyssins hörmulega við austurströnd Íslands var haldin fyrir leik og strákarnir báru sorgarbönd í leiknum.
Stigaskor Íslands:
Elvar Már 30 stig
Kristinn Pálsson 20 stig
Jón Axel 18 stig
Martin 16 stig
Tryggvi Snær 11 stig
Haukur Helgi 6 stig
Hilmar Smári 5 stig
Styrmir Snær 5 stig
Ægir Þór 2 stig
Næsta verkefni er Tyrkland á sunnudag kl. 16:00 á íslenskum tíma (19:00 úti í Tyrklandi) og er leikurinn sýndur á RÚV.
Áfram ÍSLAND!


