
30 okt. 2026
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 05/2026-2027
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ívar Ingi Jónsson, leikmaður ÍR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Álftaness gegn ÍR í 12 flokki karla, sem fram fór þann 20 október 2026.
Agamál 06/2026-2027
Með vísan til c. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal leikmaður Njarðvíkur, nr. 3., sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshafnar og Njarðvíkur, sem fram fór þann 21.10.2026.
Agamál 07/2026-2027
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hrafn Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, 40.000 króna sektar vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks gegn KFG, sem fram fór þann 23 október 2026.
Agamál 100/2026-2027
Með vísan til ákvæðis p. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal Tindastóll, sæta 30 þúsund króna sekt vegna 6 refsistiga í leik Tindastóls og Álftanes í Bónusdeild karla.


