19 ágú. 2021

Bæði lið undir 18 ára spiluðu á móti Dönum í dag en lokaleikir mótsins er á morgun og mæta þá bæði lið Svíþjóð.

Undir 18 ára stúlknalið Íslands unnu Danmörk 68-55.

Elísabeth ýr Ægisdóttir var best í íslenska liðinu í dag, varnarlega frábær, en þá skilaði hún einnig 18 stigum, 6 fráköstum, 2 stoðsendingum og 5 stolnum boltum. Þá bætti Agnes María Svansdóttir við 16 stigum og 4 fráköstum.

Undir 18 ára drengjalið Íslands tapaði fyrir Danmörk 58-81.

Orri Gunnarsson var bestur í liði Íslands í dag. Skilaði 18 stigum og var með fína nýtingu, 4 af 6 í þriggja stiga og 2-2 af gjafalínunni. Þá bætti Almar Orri Atlason við 7 stigum og 9 fráköstum.