17 ágú. 2021

Ísland tapaði í báðum leikjum dagsins hjá undir 18 ára stúlkna og drengja  gegn Finnlandi.

Undir 18 ára stúlknalið Íslands tapaði gegn Finnum 57-86.

Emma Theodórsson og Agnes María Svansdóttir voru atkvæðamestar í liði Íslands í dag, hvor um sig með 11 stig. Þá var Vilborg Jónsdóttir framlagshæst með 3 stig, 5 fráköst, 7 stoðsendingar og 3 stolna bolta.

Undir 18 ára drengjalið Íslands tapaði gegn Finnum 76-108.

Almar Orri Atlason var bestur í liði Íslands í dag, skilaði 17 stigum, 9 fráköstum og 4 stoðsendingum á tæpum 29 mínútum spiluðum. Þá voru Orri Gunnarsson og Ágúst Goði Kjartansson hvor um sig með 11 stig.