13 ágú. 2021

Í kvöld kl. 18:00 að íslenskum tíma er komið að öðrum leik karlalandsliðsins af fjórum í lokaumferð forkeppni HM2023 þegar strákarnir okkar mæta Dönum. Um er að ræða annan leik liðsins í riðlinum en alls munum við mæta Svartfjallalandi tvisvar og Danmörku tvisvar í þessum glugga.

Leikurinn verður sýndur beint á RÚV2 eins og allir leikir liðsins og lifandi tölfræði verður að finna á heimasíðu keppninnar: 
www.fiba.basketball/basketballworldcup/2023/pre-qualifiers/europe

Leikskrá fyrir leikina í ágúst má sjá hérna

Lið Íslands verður þannig skipað í kvöld en Craig Pedersen þjálfari hefur gert tvær breytingar á liðinu frá í gærkvöldi gegn Svartfjallalandi:

Nafn, félag · landsleikir
Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þorlákshöfn · 3
Elvar Már Friðriksson, Telnet Giants Antwerp, Belgíu · 53
Hilmar Smári Henningsson, Stjarnan · 7
Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík · 89
Kári Jónsson, Basket Girona, Spánn · 19
Kristinn Pálsson, Grindavík · 20
Kristófer Acox, Valur · 41 
Ólafur Ólafsson, Grindavík · 43
Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Stjarnan · 52
Ragnar Örn Bragason, Þór Þorlákshöfn · 2
Sigtrygur Arnar Björnsson, Tindastóll · 17
Tryggvi Snær Hlinason, Zaragoza, Spánn · 44
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, KR · 11
Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan · 67

Hilmar Smári Henningsson og Davíð Arnar Ágústsson munu hvíla í dag.

Þjálfarar og starfsmenn liðsins:
Craig Pedersen · Þjálfari
Baldur Þór Ragnarsson · Aðstoðarþjálfari
Hjalti Þór Vilhjálmsson · Aðstoðarþjálfari
Valdimar Halldórsson · Sjúkraþjálfari
Hannes S. Jónsson · Fararstjóri
Kristinn Geir Pálsson · Liðsstjóri
Jón Bender · Sóttvarnarfulltrúi

🇮🇸 ÍSLAND · 🇩🇰 DANMÖRK
🏀 Landslið karla í körfuknattleik
🏆 Forkeppni HM 2023
⏰ 18:00 í kvöld
📺 Bein útsending á RÚV2

#korfubolti