20 ágú. 2021

Á morgun verður dregið í höfuðstöðvum FIBA Europe í riðlakeppnina fyrir undankeppni EuroBasket kvenna 2023.

Dregið verður kl. 09:00 að íslenskum tíma (11:00 CET) og verður streymt beint frá drættinum á youtube-rás FIBA. 

Ísland er í 8. styrkleikaflokki og fær því eitt lið úr hverjum styrkleikaflokkum 1, 4 og 5 sem eru eftirfarandi lið:

1: Spánn, Frakkland, Belgía, Serbía, Tyrkland
4: Slóvenía, Úkraína, Bosnía, Ungverjaland, Króatía
5: Litháen, Pólland, Þýskaland, Búlgaría, Rúmenía

#korfubolti