Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 28. apríl 2021

29 apr. 2021Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla | Leik Grindavíkur og ÍR seinkað um tvo klukkutíma

28 apr. 2021Leik Grindavíkur og ÍR í Domino's deild karla sem settur var kl. 18:15 á morgun hefur verið seinkað til 20:15. Þetta er gert þar sem leikur Þórs Þ. og Vals var færður til föstudagsins 30. apríl.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Heil umferð í kvöld

28 apr. 2021Í kvöld fara fram fjórir leikir í Domino's deild kvenna. Stöð 2 Sport sýnir beint frá leik Fjölnis og Hauka kl. 19:15. 🍕 Domino's deild kvenna 🗓 Mið. 28. apríl 🆚 4 leikir 🖥 LIVEstatt á kki.is ⏰ 19:15 🏀 Breiðablik-Keflavík 🏀 Fjölnir-Haukar ➡️📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport 🏀 Snæfell-KR ⏰ 20:15 🏀 Valur-Skallagrímur 📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildinMeira
Mynd með frétt

Riðill Íslands í ágúst · Seinni umferð forkeppninnar

28 apr. 2021Rétt í þessu var FIBA að draga í seinni umferðina að forkeppni HM 2023 sem leikin verður í ágúst. Alls eru 12 lið í fjórum þriggja liða riðlum sem þýðir að hvert lið leikur fjóra leiki. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í sjálfa undankeppnina. Leikið verður á fjórum leikdögum milli 11.-28. ágúst og mun fyrirkomulagið hvernig leikið verður vera ákveðið síðar. 🏀 E-riðill ~ Forkeppni að HM 2023 🇲🇪 Svartfjallaland 🇩🇰 Danmörk 🇮🇸 ÍSLAND #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Domino's deild karla | Leik Þórs Þ. og Vals seinkað um sólahring

28 apr. 2021Vegna aðstæðna í Þorlákshöfn, sem ættu að vera flestum kunnar, hefur leikur Þórs Þ. og Vals í Domino's deild karla verið færður af fimmtudeginum 29. apríl og til föstudagsins 30. apríl kl. 18:15.Meira
Mynd með frétt

FEOIII lokið · Fyrsta rafíþróttamótið sem Ísland tekur þátt í

26 apr. 2021Á föstudaginn fór fram riðlakeppni í FIBA Esports Open III þar sem KKÍ og Ísland tók þátt í fyrsta sinn í rafkörfuknattleik. Keppt var í NBA2K á Playstation en alls eru 60 þjóðir sem eru skráðar til leiks. Keppni í Evrópudeildinni var um helgina og það var Rússlands sem stóð uppi sem sigurvegari eftir úrslitaleik gegn Lettlandi. Það voru sex leikmenn sem léku þrjá leiki Íslands í riðlakeppninni, gegn Kýpur, Bosníu og Serbíu. Ísland tapaði öllum viðureignum sínum og voru þar með úr leik en tvö efstu liðin fóru upp úr riðlinum.Meira
Mynd með frétt

Kristinn Óskarsson dæmir sinn 1000. leik í efstu deild karla

25 apr. 2021Það er stutt á milli stóru áfanganna hjá Kristni Óskarssyni dómara þessa dagana, ekki er langt síðan hann dæmdi sinn 800. leik í úrvalsdeild karla og í kvöld dæmir hann sinn 1000. leik í efstu deild karla ef úrslitakeppnin er tekin með og er hann fyrstur körfuboltadómara til að ná þeim áfanga og líklega fyrstur dómara á Íslandi til að dæma 1000 leiki í einni deild og úrslitakeppni þeirrar deildar.Meira
Mynd með frétt

Keppnisdagatal úrslitakeppni Domino's og 1. deilda birt

24 apr. 2021Búið er að birta dagatal fyrir úrslitakeppni Domino's deilda karla og kvenna sem og 1. deilda karla og kvenna.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla í kvöld · Keflavík-Stjarnan í beinni

23 apr. 2021Í Domino's deild karla í kvöld fara fram tveir leikir og hefjast þeir kl. 18:15 og 20:15. Stöð 2 Sport sýnir seinni leik kvöldsins sem er viðureign Keflavíkur og Stjörnunnar. Í fyrri leik kvöldsins eigast við suðurnesjaliðin Grindavík og Njarðvík. Báðir leikir kvöldsins verða í beinni tölfræðilýsingu á sínum stað á kki.is.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Tveir leikir í beinni í kvöld á Stöð 2 Sport í kvöld

22 apr. 2021Loksins er komið að því að Domino's deild karla fer aftur af stað. Í Domino's deild karla fara fram fjórir leikir í kvöld og verða tveir þeirra sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fyrst verður Höttur-Valur í beinni að austan kl. 18:15 og svo kl. 20:15 eigast við Þór Þorlákshöfn og KR.Meira
Mynd með frétt

Landslið Íslands á FIBA ESPORT OPEN III · Evrópumót FIBA í rafkörfuknattleik

21 apr. 2021KKÍ í samvinnu við Rafíþróttasamtök Íslands mun Ísland taka þátt í FIBA Esport Open III þar sem keppt verður á Playstation í leiknum NBA2K í lok næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem KKÍ og Ísland tekur þátt í rafíþróttamóti á vegum FIBA. Keppni hefst föstudagin 23. apríl og verður Ísland í riðli með þrem öðrum liðum. Fyrsti leikur hefst kl. 17:00 og verður svo leikið aftur kl. 17:40 og 18:20. Alls eru fjórir riðlar með fjórum liðum í Evrópudeildinni. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í 8-liða úrslitin sem leikin verða á laugardeginum 24. apríl og fjögur bestu fara í lokaúrslit á sunnudegi. Ísland er í riðli með Kýpur, Bosníu og Serbíu og mjög líklega verður einnig hægt að fylgjast með keppinni beint á rafíþróttarrás Stöðvar 2 Sport sem og á netinu á miðlum FIBA (Youtube, Facebook og Twitch) undir merkinu #FIBAesportsOpen. Allir tenglar á útsendingar á netinu verða svo aðgengilegir einnig á kki.is. Sex leikmenn eru skráðir á mótið að þessu sinni og eru fimm sem spila hvern leik. Um tímamót er að ræða í sögu KKÍ þar sem þetta er fyrsta rafíþróttalið KKÍ sem mætir til leiks á vegum sambandsins og við hæfi að það sé að gerast nú á 60 ára afmælisári sambandsins.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna hefst á nýjan leik í kvöld! Skallagrímur-Keflavík í beinni á Stöð 2 Sport

21 apr. 2021LOKSINS! Domino’s deildirnar hefjast í kvöld og á morgun að nýju! Athugið að 100 áhorfendur að hámarki eru leyfðir á leikjunum og miðasala fer á Stubb-appinu. Stöð 2 Sport sýnir beint frá leik Skallagrím og Keflavíkur í Borgarnesi. Meira
Mynd með frétt

Ísland hefur leik á FIBA ESPORTS OPEN III föstudaginn 23. apríl

14 apr. 2021KKÍ í samvinnu við Rafíþróttasamtök Íslands mun Ísland taka þátt í FIBA Esport Open III þar sem keppt verður á Playstation í leiknum NBA2K í lok næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem KKÍ og Ísland tekur þátt í rafíþróttamóti á vegum FIBA. Verið er að setja saman 7 manna landslið Íslands sem mun svo keppa á föstudeginum 23. apríl í riðli með þrem öðrum liðum. Alls eru fjórir riðlar með fjórum liðum í Evrópudeildinni. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í 8-liða úrslitin sem leikin verða á laugardeginum 24. apríl og fjögur bestu fara í lokaúrslit á sunnudegi. Meira
Mynd með frétt

Leikjaplan Domino's og 1. deilda

14 apr. 2021Búið er að birta leikjaplan Domino's og 1. deilda karla og kvenna á mótavef KKÍ.Meira
Mynd með frétt

Eru íþróttir barna orðnar að keppni fullorðinna?

13 apr. 2021Sveinn Þorgeirsson, sérfræðingur við íþróttafræðideild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis. Í fyrirlestrinum verður fjallað um snemmbæra sérhæfingu í skipulögðum íþróttum, ávinning og nokkrar af þeim hættum sem fylgja ofuráherslu á slíka þjálfun í íþróttum barna. Æskilegar áherslur í starfi eru ræddar og því velt upp hvað sé best að gera við rána sem var til umræðu fyrr í vetur, - á að hækka hana eða jafnvel lækka? Umfjöllunin á erindi við þjálfara, kennara, unglinga og ekki síst foreldra sem gegna veiga miklu hlutverki allt frá upphafi.Meira
Mynd með frétt

Úrskurður áfrýjunardómstóls KKÍ

9 apr. 2021Haldið er dómþing áfrýjunardómstóls Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) miðvikudaginn 7. apríl 2021. Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 31. MARS 2021

1 apr. 2021Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í einu agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar. Meira
Mynd með frétt

KKÍ x Rafíþróttasamtök Íslands: Keppni í NBA2K á FIBA ESPORTS OPEN III

26 mar. 2021FIBA í samstarfi við NBA stendur fyrir keppni landsliða á FIBA Esports Open III á netinu í tölvuleiknum NBA2K og hefur KKÍ skráð Ísland til leiks í fyrsta sinn. Verkefnið er unnið í samvinnu við Rafíþróttasamtök Íslands. Keppt verður innan 6 heimsálfa fyrst og 36 lönd taka þátt og munu keppa í undankeppnum og svo verða úrslit í lokin. KKÍ leitar hér með að áhugasömum og reyndum spilurum sem hafa áhuga á að keppa í landsliði Íslands í liði 5-gegn-5 gegn öðrum landsliðum í mótinu en keppt verður á Playstation 5. Áætlað er að hefja keppni í apríl þannig að tíminn er takmarkaður til að setja saman lið og býður KKÍ áhugasömum um að skrá sig í formið hér neðar sem vilja taka þátt. Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 24. MARS 2021

25 mar. 2021 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fimm agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. Meira
Mynd með frétt

Íslandsmótinu frestað

24 mar. 2021Yfirvöld kynntu hertar aðgerðir á blaðamannafundi sínum kl. 15:00 í dag. Í ljósi þeirra aðgerða verður öllum leikjum í Íslandsmótinu í körfubolta frestað ótímabundið.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira