11 maí 2022Stelpurnar í minnibolta 10 ára hjá Val urðu Íslandsmeistarar 2022 um síðustu helgi, en leikið var í Glerárskóla. Keppnin hafði verið jöfn í vetur og því nokkur spenna í lokamótinu, þar sem þær unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum verðskuldað í mótslok.

Með Val í lokaumferðinni léku Stjarnan, sem varð í öðru sæti, Njarðvík, KR og Valur 2.

Þjálfari stelpnanna er Bjarni Þór Gíslason.

Til hamingju Valur!