11 maí 2022

Strákarnir í 8. flokki drengja hjá Stjörnunni urðu Íslandsmeistarar 2022 um síðustu helgi, en leikið var í Mathúsi Garðabæjarhöllinni. Stjarnan hafði unnið alla sína leiki í vetur og voru því í góðri stöðu fyrir lokahelgina þar sem þeir unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum verðskuldað í mótslok.

Með Stjörnunni í lokaumferðinni léku KR b, sem varð í öðru sæti, ÍR, Njarðvík og KR.

Þjálfarar strákanna eru Leifur Steinn Arnarson og Elías Uche Elíasson.

Til hamingju Stjarnan!