2 maí 2022Stelpurnar í minnibolta 11 ára Stjörnunnar urðu um helgina íslandsmeistarar 2022 en leikið var í Grindavík. Stjarnan hafði unnið alla sína leiki í vetur og voru því í góðri stöðu fyrir lokahelgina þar sem þær unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum í mótslok verðskuldað.

Með Stjörnunni í lokaumferðinni léku Keflavík, sem varð í öðru sæti, Grindavík, Valur, Ármann og KR.

Þjálfarar stelpnanna eru Kjartan Atli Kjartansson og Stefanía Helga Ásmundsdóttir.

Til hamingju Stjarnan!