2 maí 2022Stjarnan varð um helgina íslandsmeistari í minnibolta 11 ára drengja en strákarnir unnu alla sína leiki í lokaumferð A-riðils sem fram fór í Dalhúsum. Síðustu þrjá umferðirnar telja til íslandsmeistara og þeir höfðu einnig unnið alla sína leiki á þeim keppnishelgum og eru því vel að titlinum komnir.

Stjarnan vann alla sína leiki en með þeim í riðli léku einnig lið Hauka, sem varð í öðru sæti, Grindavík, Keflavík, Þór Akureyri og Stjarnan-b. 

Þjálfarar Stjörnunnar eru Hlynur Bæringsson og Dino Stipcic.

KKÍ óskar Stjörnunni til hamingju með titilinn!