25 apr. 2022Lokamótin í 7. flokki stúlkna fóru fram um helgina og leikið var í A, B, C, D og E riðlum víðsvegar um landið.

Til úrslita í A-riðli léku Ármann, Fjölnir, Haukar, KR og Stjarnan. Það voru svo Stjörnustúlkur sem stóðu uppi sem sigurvegarar og þar með íslandsmeistarar í 7. flokki stúlkna en þær unnu alla leiki sína á mótinu. Þjálfari liðsins er Hlynur Bæringsson.

KKÍ óskar Stjörnunni til hamingju með titilinn!