Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Njarðvík Íslandsmeistari í minnibolta 11 ára drengja 2021

26 maí 2021Úrslitamót minnibolta 11 ára drengja var haldið um helgina í HS Orku-höllinni í Grindavík. Það var lið Njarðvíkur sem vann lokamótið með fjóra sigra í fimm leikjum og varð Íslandsmeistari en í öðru sæti varð lið Fjölnis sem hlaut silfur. Á mótinu léku UMFK, Breiðablik, Stjarnan og Hamar. Það er Einar Árni Jóhannsson sem er þjálfari liðsins. KKÍ óskar strákunum og Njarðvík til hamingju með titilinn!Meira
Mynd með frétt

Úrslitaviðureign 1. deildar kvenna | leikdagar

25 maí 2021Í úrslitum 1. deildar kvenna tímabilið 2020-2021 mætast Njarðvík og Grindavík, en leikið er um laust sæti í úrvalsdeild tímabilið 2021-2022. Leiktímar í úrslitaviðureign 1. deildar kvenna liggja fyrir.Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppni Domino's deildar karla · Grindavík-Stjarnan á Stöð 2 Sport í kvöld

25 maí 2021Einn leikur fer fram í kvöld í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla kl. 20:15 í Grindavík þegar heimamenn taka á móti Stjörnunni. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Stjörnuna en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í undanúrslit í ár. Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari í minnibolta 11 ára stúlkna 2021

25 maí 2021Keppt var til úrslita í minnibolta 11 ára stúlkna um helgina í Fjölnishöllinni í Grafarvogi og var það Stjarnan sem varð Íslandsmeistari 2021! Sex lið voru í riðlinum að þessu sinni og unnu Stjörnustúlkur alla sína fimm leiki og þar með mótið þessa helgi. Fjölnir varð í öðru sæti og hlaut silfur og svo komu Haukar, Grindavík, Breiðablik og Vestri þar á eftir. Kjartan Atli Kjartansson er þjálfari liðsins og Alexandra Eva Sverrisdóttir er aðstoðarþjálfari. KKÍ óskar stelpunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari í 8. flokki stúlkna 2021

25 maí 2021Úrslitamót 8. flokks stúlkna fór fram helgina 15.-16. maí sl. og fór það fram í Mathöll Garðabæjar-höllinni í Ásgarði í umsjón Stjörnunnar. Það fór svo að Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa unnið alla sína leiki og voru stelpurnar því krýndar Íslandsmeistarar í mótslok. Næst komu í röðinni Keflavík sem varð í öðru sæti, UMFK í því þriðja og svo lið Fjölnis og Grindavíkur. Arnar Guðjónsson og Danielle Rodriguez eru þjálfarar liðsins. KKÍ óskar stelpunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppnin · 8-liða úrslit Domino's deild karla

23 maí 2021Í kvöld er komið að næstu leikjum í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla. Báðir leikirnir verða sýndir í beinni á Stöð 2 Sport. Fyrst mætst í Þorlákshöfn Þór Þ. og Þór Ak. og í kjölfarið taka Valsmenn á móti KR að Hlíðarenda. Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppnin · Domino's deild karla í dag

22 maí 2021Í dag fara fram tveir leikir í 8-liða úrslitum karla í úrslitakeppni Domino's deildarinnar. Stjarnan fær Grindavík í heimsókn í Mathús Garðabæjar-höllina kl. 15:00 og Keflavík tekur á móti Tindastól í Blue-höllinni kl. 17:00. Báðir leikirnir verða í beinni á Stöð 2 Sport. Stjarnan og Grindavík hafa einn sigur hvort en Keflavík leiðir gegn Tindastól 2-0. Það lið sem fyrr nær í þrjá sigra kemst í undanúrslitin.Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppni Domino's deildar kvenna - leikdagar í úrslitum

21 maí 2021Í úrslitum Domino's deildar kvenna tímabilið 2020-2021 mætast Valur og Haukar. Leiktímar í úrslitaviðureign Domino's deildar kvenna liggja fyrir.Meira
Mynd með frétt

Meistaranám í íþróttavísindum við íþróttafræðideild HR

21 maí 2021Lausar eru til umsóknar tvær námsstöður í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Stöðunar eru kostaðar af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) og munu nemendurnir ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 31. maí og munu nemendur hefja nám strax á haustönn, samkæmt skóladagatali. Stöðurnar tengjast yngri stúlkna- og drengja landsliðum Íslands í körfuknattleik.Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppnin · Domino's deild kvenna í kvöld

21 maí 2021Í kvöld er komið að þriðju leikjunum í undanúrslitum Domino's deildar kvenna en Valur tekur á móti Fjölni og Haukar taka á móti Keflavík. Báðir leikirnir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport. Valur og Haukar leiða sín einvígi 2-0 en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða áfrýjunardómstóls Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) 19. maí 2021

19 maí 2021Áfrýjunardómstóll Körfuknattleikssambands Íslands hefur komist að niðurstöður í máli sem henni barst til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppnin · Tveir leikir í kvöld í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla

19 maí 2021Í kvöld er komið að næstu leikjum milli Þórs Þ. og Þórs Ak. og Vals og KR í úrslitakeppninni. Leikið verður í kvöld á Akureyri og í Vesturbænum. Þór Akureyri tekur á móti Þór Þorlákshöfn kl. 18:15. Stöð 2 Sport verður svo í Vesturbænum á Meistaravöllum og sýnir beint frá leik KR og Vals kl. 20:15. Domino's Körfuboltakvöld verður svo með uppgjör kl. 22:00 eftir seinni leikinn í beinni! Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 18. MAÍ 2021

18 maí 2021Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari í minnibolta 10 ára drengja 2021

18 maí 2021Úrslitamót minnibolta 10 ára drengja var haldið um helgina í Reykjanesbæ í umsjón Keflavíkur. Það var lið Stjörnunnar sem vann lokamótið en strákarnir unnu alla sína fimm leiki um helgina. Næst komu í röðinni Grindavík sem varð í öðru sæti, Breiðablik í því þriðja og svo UMFK, Haukar og Þór Akureyri. Hlynur Bæringsson er þjálfari liðsins. KKÍ óskar strákunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppnin: Domino's deild karla í kvöld

18 maí 2021Í kvöld er komið að leikjum tvö í einvígum Keflavíkur og Tindastóls og Stjörnunnar og Grindavíkur. Leikið verður á Sauðárkróki og í Grindavík í kvöld. Stöð 2 Sport verður á báðum stöðum og sýnir báða leiki í beinni útsendingu. 🍕 Domino's deild karla 🏆 8-liða úrslit 🗓 Þri. 18. maí 📍 Leikir 2 📺 Sýndir beint á Stöð 2 Sport 🖥 LIVEstatt á kki.is ⏰ 18:15 📍 Sauðárkrókur 🏀 TINDASTÓLL(0) - KEFLAVÍK(1) ➡️📺 Stöð 2 Sport ⏰ 20:15 📍 HS Orku-höllin 🏀 GRINDAVÍK(0) - STJARNARN(1) ➡️📺 Stöð 2 Sport 📲 #korfubolti 📲 #dominosdeildinMeira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeiðið KKÍ 1.a. · 11.-13. júní 2021

18 maí 2021Skráning er hafin á KKÍ 1.a. þjálfaranámskeiðið sem fram fer helgina 11.-13. júní næstkomandi. Kennt verður föstudagskvöld í fundarsal ÍSÍ, í íþróttasal á laugardegi og í Úrvalsbúðum á sunnudegi. Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13,5 klukkutímar. Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. KKÍ þjálfari 1.a. gildir sem 25% af lokaeinkunn á námskeiðinu. Þjálfarar sem hafa lokið 1.a. eru með leyfi til að þjálfa minnibolta 9 ára og yngri.Meira
Mynd með frétt

Haukar Íslandsmeistarar í 8. flokki drengja 2021

17 maí 2021Haukar eignuðust Íslandsmeistara í 8. flokki drengja um helgina en lokamótið fór fram á laugardegi á Ásvöllum og á sunnudeginum í Fagralundi í Kópavogi. Haukar, Stjarnan og Breiðablik voru 3/1 eftir leiki helgarinnar og innbyrðis voru það Haukar sem stóðu best að vígi og voru krýndir meistarar. Næst komu í réttri röð Stjarnan, Breiðablik, Ármann og Skallagrímur. Þjálfari strákanna er Emil Barja. KKÍ óskar Haukum og strákunum til hamingju með titilinn!Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari í minnibolta 10 ára stúlkna 2021

17 maí 2021Úrslitamót minnibolta 10 ára stúlkna var haldið í umsjón Hrunamanna á Flúðum um helgina. Það var lið Stjörnunnar sem vann lokamótið en Stjörnustelpur unnu alla sína fimm leiki um helgina. Næst komu í röðinni Keflavík, Haukar, Grindavík, Ármann og Breiðablik að þessu sinni. Þjálfari liðsins er Kjartan Atli Kjartansson. KKÍ óskar stelpunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppnin · Leikir kvöldsins Domino's deild kvenna

17 maí 2021Í kvöld er komið að leikjum númer tvö í einvígi liðanna sem mætast, fyrst Fjölnir-Valur kl. 18:30 og svo Keflavík og Haukar kl. 20:30. Stöð 2 Sport verður á staðnum og sýnir beint frá báðum leikjum kvöldsins. Í lok kvölds er svo Domino's Körfuboltakvöld á dagskránni sem gerir upp leikina og helstu tilþrif. Meira
Mynd með frétt

Úrslitakeppni 1. deildar kvenna | leikdagar í undanúrslitum

17 maí 2021Leiktímar í undanúrslitum 1. deildar kvenna liggja nú fyrir. Leikjadagskrá hefur einnig verið birt á mótavef kki.is.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira