2 jún. 2021Í úrslitum Domino's deildar kvenna er komið að þriðja leiknum í úrslitunum í ár milli Vals og Hauka. Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Val en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari 2020-2021. Sigri Valskonur í kvöld hampa þær því titlinum í leikslok.
Leikið verður í Origo-höllinni á Hlíðarenda og hefst leikurinn kl. 20:15 og verður Stöð 2 Sport á staðnum og hitar upp fyrir leik og verður með uppgjör frá leikstað eftir leik.
Meira