17 maí 2023

Fjölnir varð meistari 2. deildar 9. flokks stúlkna á sunnudag með sigri á Val í úrslitaleik á Meistaravöllum. 
Eftir jafnan leik framan af tók Fjölnir öll völd og vann að lokum 14 stiga sigur, 57-43. Þjálfari stúlknanna er Andri Þór Kristinsson.

Helga Björk Davíðsdóttir var valin maður leiksins, en hún skilaði 13 stigum og 13 fráköstum, þar af 10 sóknarfráköstum.

Til hamingju Fjölnir!