30 sep. 2021Dregið verður í 32-liða og 16-liða úrslit í VÍS bikarkeppni KKÍ fimmtudaginn 30. september kl. 14:30 í húsakynnum VÍS, Ármúla 3, 108 Reykjavík. Fulltrúum þeirra félaga sem eru í pottinum er boðið að vera viðstaddir dráttinn, en þurfa þá að mæta tímanlega.
Dregið verður í tvær viðureignir í 32-liða úrslitum VÍS bikars kvenna og átta viðureignir í 16-liða úrslitum.
Dregið verður í sex viðureignir í 32-liða úrslitum VÍS bikars karla og átta viðureignir í 16-liða úrslitum
32-liða úrslitin fara fram 16.-18. október og 16-liða úrslitin 30. október-1. nóvember.
Metþáttaka er hjá konunum en alls eru 18 lið skrá til leiks í ár sem er það mesta frá upphafi.
Meira