16 nóv. 2023

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 11/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Skarphéðinn Freyr Ingason, leikmaður KR b, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik KR b gegn Fjölni b, sem fram fór þann 12 nóvember 2023.

Agamál 13/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jón Arnór Sverrisson, leikmaður Þróttar Vogum, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Þróttar Vogum gegn Selfoss, sem fram fór þann 10 nóvember 2023.