Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Annar í VÍS bikarúrslitum yngri flokka!

13 jan. 2023VÍS bikarúrslit yngri flokka hófust í gær og halda áfram í dag með einum leik. Leikið verður í VÍS bikarúrslitum 11. flokks drengja kl. 19:00 en þar mætast Stjarnan og Stjarnan b. Leikurinn verður í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ. Miðasala á leikinn er á Stubb. Meira
Mynd með frétt

Stjarnan VÍS bikarmeistari 10. flokks stúlkna

12 jan. 2023Stjarnan varð í dag VÍS bikarmeistari 10. flokks stúlkna eftir sigur á Njarðvík í úrslitaleik 86-57. Elísabet Ólafsdóttir var valin maður leiksins en hún skilaði 18 stigum og 17 fráköstum. Til hamingju Stjarnan!Meira
Mynd með frétt

Stjarnan VÍS bikarmeistari 10. flokks drengja

12 jan. 2023Stjarnan varð í dag VÍS bikarmeistari 10. flokks drengja eftir öruggan sigur á Stjörnunni B í úrslitaleik 107-43. Benedikt Björgvinsson var valinn maður leiksins en hann skilaði 26 stigum, 12 fráköstum og 4 stoðsendingum ásamt því að hitta úr 11 af 14 skotum sínum. Til hamingju Stjarnan!Meira
Mynd með frétt

VÍS bikarúrslit yngri flokka hefjast í dag!

12 jan. 2023Tveir VÍS bikarúrslitaleikir yngri flokka verða leiknir í Laugardalshöll í dag. Fyrri leikurinn hefst kl. 17:15 og er bikarúrslitaleikur 10. flokks drengja þar sem A og B lið Stjörnunnar mætast. Klukkan 20:00 mætast Stjarnan og Njarðvík í bikarúrslitum 10. flokks stúlkna. Miðasala á leikina er á Stubb.Meira
Mynd með frétt

Undanúrslit VÍS bikars karla í dag!

11 jan. 2023Seinni undanúrslitadagur VÍS bikarsins, en í dag eru það undanúrslit karla. Fyrri undanúrslitaleikurinn hefst kl. 17:15, en þar mætast Stjarnan og Keflavík. Í seinni leik dagsins mætast lið Hattar og Vals. VÍS bikarúrslitaleikur karla fer fram laugardaginn 14. janúar kl. 16:15, en þar mætast þau tvö félög sem sigra sína undanúrslitaleiki.Meira
Mynd með frétt

VÍS bikarvikan hefst í dag!

10 jan. 2023Hin árlega og skemmtilega VÍS bikarvika hefst í dag með undanúrslitaleikjum kvenna. Framundan eru 12 leikir á sex dögum, þar sem tíu bikarmeistarar verða krýndir frá 9. flokki upp í meistaraflokk. Eins og áður sagði hefst vikan á undanúrslitaleikjum kvenna. Fyrri leikurinn hefst kl. 17:15, en þar er viðureign 1. deildarliðs Snæfells og Subwaydeildarliðs Hauka. Í seinni leiknum sem hefst kl. 20:00 eigast við 1. deildarlið Stjörnunnar og Subwaydeildarlið Keflavíkur, en bæði liðin sitja í efsta sæti sinna deilda. VÍS bikarúrslitaleikur kvenna fer fram laugardaginn 14. janúar kl. 13:30, en þar mætast þau tvö félög sem sigra sína undanúrslitaleiki.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 4. JANÚAR 2023

5 jan. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 21. DESEMBER 2022

22 des. 2022Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Undanúrslit VÍS bikars

19 des. 2022Dregið var í undanúrslit VÍS bikarsins í Laugardalshöll í dag. Hjá konunum voru fjögur lið í skálinni, Haukar, Keflavík, Snæfell og Stjarnan. Hjá körlunum voru liðin fjögur Höttur, Keflavík, Stjarnan og Valur.Meira
Mynd með frétt

Dregið í undanúrslit VÍS bikarsins í dag

19 des. 2022Dregið verður í undanúrslit VÍS bikarsins í dag. Viðburðinum verður streymt á FB síðu KKÍ. Undanúrslit VÍS bikars kvenna verða leikin 10. janúar og undanúrslit karla þann 11. janúar. Úrslitaleikirnir fara fram laugardaginn 14. janúar 2023.Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar KKÍ 14. desember 2022

15 des. 2022Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í Þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Körfuknattleiksfólk ársins 2022 · Sara Rún og Elvar Már kjörin best annað árið í röð!

14 des. 2022Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2022 af KKÍ. Þetta er í 25. skipti sem valið er tvískipt milli karla og kvenna eða allt frá árinu 1998. Körfuknattleikskona og karl ársins eru valin í kosningu af stjórn og starfsmönnum KKÍ, afreksnefnd KKÍ og landsliðsþjálfurum. Bæði voru þau ríkjandi Körfuknattleiks karl og kona síðsta árs. Elvar Már er nú að fá tilnefninguna í annað sinn og Sara Rún er að hljóta nafnbótina í þriðja sinn og þriðja árið í röð.Meira
Mynd með frétt

Yngri landslið Íslands · Sumarið 2023 - Þjálfarar og æfingahópar

12 des. 2022KKÍ hefur ráðið þjálfara yngri liða Íslands fyrir komandi verkefni í sumar. Öll landslið Íslands taka þátt í verkefnum drengja og stúlkna líkt og síðasta sumar og þá hefur NM U20 liða verið bætt við í samstarfi norðurlandanna líkt og hefur verið með U16 og U18 liðin á undanförnum árum. Verkefni liðanna verða viku keppnisferð til Finnlands hjá U15 liðunum í ágúst, NM í Finnlandi og EM hjá U16 liðunum, NM í Svíþjóð og EM hjá U18 og U20 liðunum. Alls eru þetta átta landslið sem verða í gangi næsta sumar. U20 ára lið drengja leikur í A-deild evrópukeppninnar næsta sumar en þar leika aðeins 16 bestu þjóðirnar. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland á lið í A-deild í Evrópukeppninni. U16 og U18 drengja og stúlkna og U20 kvenna leika í B-deild þar sem rúmlega 20 lið keppa. Yfirþjálfari yngri liða KKÍ er Finnur Freyr Stefánsson. Þjálfarar yngri landsliðana 2022 verða: U20 kvenna · Halldór Karl Þórsson U20 karla · Baldur Þór Ragnarsson U18 stúlkna · Benedikt Guðmundsson U18 drengja · Lárus Jónsson U16 stúlkna · Danielle Rodriguez U16 drengja · Snorri Örn Arnaldsson U15 stúlkna · Andrea Björt Ólafsdóttir U15 drengja · Emil Barja Búið er að boða fyrstu hópa allra U15, U16 og U18 landsliðanna til æfinga í lok desember. Þá verður æft ásamt því að mælingar leikmannahópa í samstarfi við HR verða teknar á öllum liðum og þá verða fræðslufyrirlestrar einn daginn að auki fyrir alla hópana. Alls er um að ræða 224 leikmenn frá 26 félögum og þá eru þrír leikmenn í erlendum skólum sem eru boðaðir nú til æfinga. Hægt er að sjá nánari skiptingu eftir félögum neðar. Eftirtaldir leikmenn skipa stóru æfingahópa þessara liða hjá drengjum og stúlkum:Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLS KKÍ 30. NÓVEMBER 2022

1 des. 2022Áfrýjunardómstóll KKÍ hefur komist að niðurstöðu í máli sem honum hafði borist til úrlausnar. Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 30. NÓVEMBER 2022

1 des. 2022Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Fundargerðir stjórnar KKÍ birtar á heimasíðu sambandsins

1 des. 2022Stjórn KKÍ tók þá ákvörðun fyrir nokkru að allar fundargerðir stjórnar yrðu birtar á kki.is. Nú hefur því verið komið í gagnið og þá hægt að nálgast fundargerðirnar á heimasíðunni. Hægt er að finna þær undir <Um KKÍ - Fundargerðir stjórnar>.Meira
Mynd með frétt

EuroBasket kvenna 2023 · Undankeppninni lokið í nóvember glugganum

28 nóv. 2022Íslenska kvennalandsliðið hefur nú lokið leik í nóvember verkefninu með tveimur leikjum. Fyrri leikur gluggans var útileikur gegn öflugu liði Spánar sem tapaðist 120:5xx. Liðið hélt svo heim til Íslands og lék í Höllinni loksins eftir langa bið, bæði vegna COVID, þar sem leikið var í „Sóttvarnar-Bubblum“ erlendis og eftir framkvæmdir. Það var lið Rúmeníu sem var næsti andstæðingur liðsins í seinni leiknum. Ísland hóf einmitt keppnina gegn þeim ytra í nóvember fyrir ári síðan í upphafi undankeppninnar og því hófst seinni umferðin með heimaleiknum gegn Rúmeníu. Íslenska liðið átti frábæran leik og sótti 10 stiga sigur, 68:58 sem gerði það að verkum að liðið fór langt með að tryggja sér 3. sæti riðilsins með innbyrðis stigamun í leikjunum tveim gegn Rúmeníu þar sem fyrri leiknum lauk með sex stiga sigri Rúmeníu. Næstu leikir Íslands verða krefjandi leikir heima gegn Spáni og úti gegn Ungverjalandi í febrúar 2023. Þar með mun undankeppninni fyrir EM 2023 ljúka og ný undankeppni hefst í nóvember 2023 fyrir EM 2025.Meira
Mynd með frétt

EM 2023 · Undankeppni kvenna: ÍSLAND-RÚMENÍA í dag í Höllinni

27 nóv. 2022Ísland leikur gegn Rúmeníu í dag kl. 16:30 í Laugardalshöllinni. Þetta er seinni leikur nóvember gluggans hjá liðinu en lokaleikirnir tveir verða í febrúar 2023. ​Leikurinn verður í beinni á RÚV. Miðasala er á STUBB (http://www.stubbur.app) og er hægt að nálgast miða þar rafrænt fram að leik. Ísland lék gegn Rúmeníu ytra í fyrsta leik sínum í undankeppninni þar sem Rúmenía hafði sigur í lokin í jöfnum leik 65:59. Stelpurnar okkar eru staðráðnar í að snúa því við og sækja sigur í dag. Meira
Mynd með frétt

Íslenskir FIBA dómarar og eftirlitsmenn í verkefnum í nóvember · Davíð Tómas og Rúnar Birgir saman í verkefni

26 nóv. 2022Þeir félagar Rúnar Birgir Gíslason, eftirlitsmaður FIBA og FIBA dómarinn Davíð Tómas Tómasson, fengu verkefni nýlega saman í forkeppni Euro Cup keppni karla þegar þeir fóru í síðustu viku til Svíþjóðar þar sem Nörrköping Dolphins mættu CSO Voluntari frá Rúmeníu. Um var að ræða leik í riðlakeppni mótsins. Um hörku leik var að ræða og stóðu þeir sig vel að venju. Hægt er að sjá leikinn á heimasíðu keppninnar hérna: Ísland á fjóra FIBA dómara um þessar mundir og tvo eftirlitsmenn, en þeir eru að fá verkefni bæði yfir veturinn í keppnum FIBA, bæði félagsliða og landsliða karla og kvenna, og svo yfir sumartíman þegar yngri liðin okkar keppa á evrópumótum víðs vegar um evrópu. Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 23. NÓVEMBER 2022

24 nóv. 2022Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar. Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira