28 sep. 2023Spá fyrir Subway og 1. deildir karla var kynnt núna í hádeginu á Grand Hótel. Forsvarsmenn liða í 1. deild karla gera ráð fyrir að KR vinni sér öruggt sæti í Subway deild karla, og að sama skapi er Tindastól spáð Íslandsmeistaratitlinum vorið 2024.

SUBWAY DEILD KARLA

Fjölmiðlaspá

Samkvæmt spá fjölmiðla verður það lið Tindastóls sem hampar Íslandsmeistaratitlinum á komanda vori, þó ekki muni miklu í spánni á þeim og Val. Það verður hlutskipti Breiðabliks og nýliða Hamars að falla niður í 1. deild karla.

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða

Það verður Tindastóll sem hampar þeim stóra næsta vor, gangi spá félaganna eftir. Það mun verða hlutskipti Hamars og Breiðabliks að falla niður í 1. deild.


Gangi spáin eftir þá lítur úrslitakeppnin svona út.

1. DEILD KARLA

Það verður hörð barátta á toppi 1. deildar karla, en þó telja félögin að KR sé sigurstranglegast og muni endurheimta sæti sitt í Subway deild karla. Það verða liðin í 2.-9. sæti sem munu berjast um hitt lausa sætið í Subway deildinni.


Hægt er að skoða alla kynninguna hérna, en þar er hægt að sjá hvernig atkvæðin skiptust niður á lið.
Spá Subway og 1. deild karla by Snorri Örn Arnaldsson