26 sep. 2023

Fyrir núverandi tímabil tók KKÍ í notkun nýtt mótakerfi. Það kom til þar sem eldra mótakerfi náði ekki að uppfylla allar þær kröfur sem gera þarf til kerfisins. Innleiðing nýs mótakerfis hefur staðið yfir stærsta hluta þessa árs og stendur enn yfir, enda mikið verk að koma öllu mótahaldi KKÍ fyrir á einum og sama staðnum. Unnið verður áfram að því að sníða kerfið að starfi körfuknattleikshreyfingarinnar, en ljóst er að mikið verk er enn fyrir stafni. Hluti þess verks er endursmíði heimasíðu KKÍ, en þar munu þá allar upplýsingar um mótahald KKÍ birtast.

Þangað til heimasíðan verður tilbúin er þó hægt að nálgast leikjadagskrá, úrslit og stöðu í mótum KKÍ. Upplýsingar um mót meistaraflokka er hægt að nálgast hérna https://websites.mygameday.app/assoc_page.cgi?c=0-12973-0-0-0 og upplýsingar um mót yngri flokka hérna https://websites.mygameday.app/assoc_page.cgi?c=0-12977-0-0-0. Sömuleiðis er hægt að ná í Gameday appið, en þar er hægt að fylgjast með stöðu og úrslitum allra liða landsins https://mygameday.app/gameday-app/