Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Fjölnir Íslandsmeistari drengjaflokks

16 maí 2022Fjölnir varð Íslandsmeistari drengjaflokks í gær með sigri á Breiðablik í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var jafn lengst af, en með góðum leikkafla í þriðja leikhluta tókst Fjölni að skilja sig frá Breiðablik og höfðu sigur, 110-83. Þjálfari drengjanna er Baldur Már Stefánsson.Meira
Mynd með frétt

Subway deild karla: Leikur 4 í kvöld milli Tindastóls og Vals · Fer bikarinn á loft?

15 maí 2022Í kvöld eigast við í Síkinu á Sauðárkróki Tindastóll og Valur í leik fjögur en staðan í einvígi liðanna um Íslandsmeistarabikarin er 2-1 fyrir Val og þeim dugir því sigur kvöld til að verða íslandsmeistarar í Subway deild karla í ár. Nái Tindastóll að sigra og jafna einvígið verður hreinn oddaleikur um titilinn á miðvikudaginn kemur. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport og hefst kl. 20:15.Meira
Mynd með frétt

KR Íslandsmeistari 10. flokks stúlkna

15 maí 2022KR varð Íslandsmeistari 10. flokks stúlkna í gær með sigri á Stjörnunni í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var hnífjafn og spennandi og réðust úrslitin í blálokin, 59-57. Þjálfari stúlknanna er Hörður Unnsteinsson.Meira
Mynd með frétt

Þór Ak. meistari 2. deildar stúknaflokks

15 maí 2022Þór Ak. varð meistari 2. deildar stúlknaflokks í gær með sigri á Aþenu/UMFK í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var nokkuð jafn þó Þór Ak. hafi leitt nánast frá upphafi, 68-85. Þjálfari stúlknanna er Daníel Andri Halldórsson.Meira
Mynd með frétt

Vestri meistari 4. deildar 10. flokks drengja

15 maí 2022Vestri varð í gær meistari 4. deildar 10. flokks drengja með sigri á Stjörnunni D í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslit leiksins í lokin, 57-47. Þjálfari strákanna er Birgir Örn Birgisson.Meira
Mynd með frétt

Valur meistari 2. deildar unglingaflokks karla

15 maí 2022Valur varð meistari 2. deildar unglingaflokks karla á föstudagskvöld með sigri á Þór Ak. í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslit leiksins í lokin, 82-89. Þjálfari strákanna er Finnur Freyr Stefánsson.Meira
Mynd með frétt

Þór Ak. meistari 2. deild 10. flokks drengja

15 maí 2022Þór Ak. varð meistari 2. deildar 10. flokks drengja á föstudagskvöld með sigri á Ármanni í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslit leiksins í lokin, 61-73. Þjálfari strákanna er Daníel Andri Halldórsson.Meira
Mynd með frétt

ÍR b meistari 3. deildar drengjaflokks

13 maí 2022ÍR b urðu í gær meistarar 3. deildar drengjaflokks með sigri á Stjörnunni C í úrslitaleik í Dalhúsum. ÍR náði forystunni strax í byrjun og létu hana aldrei af hendi og höfðu nokkuð öruggan 88-72 sigur. Þjálfari strákanna er Ísak Máni Wíum.Meira
Mynd með frétt

KR meistari 2. deildar 9. flokks stúlkna

13 maí 2022KR urðu í gær meistarar 2. deildar 9. flokks stúlkna með sigri á Haukum í úrslitaleik í Dalhúsum. KR náði forystunni strax í byrjun og létu hana aldrei af hendi og höfðu nokkuð öruggan 69-51 sigur. Þjálfari stelpnanna er Hörður Unnsteinsson.Meira
Mynd með frétt

Subway deild karla: Valur-Tindastóll í kvöld - Leikur 3

12 maí 2022Valur og Tindastóll mætast í leik þrjú í kvöld kl. 20:30. Uppselt er á leikinn og því aðeins hægt að horfa á leikinn á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki eiga miða nú þegar. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari 2022 í Subway deild karla! 🏆 SUBWAY DEILDIN 🆚 Úrslit karla 3️⃣ Leikur 3 🗓 Fim. 12. maí 🎟 UPPSELT!!! 📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport ⏰ 20:30 📍 Origo-höllin 🏀 VALUR (1) - TINDASTÓLL (1) #subwaydeildin #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Haukar meistarar 2. deildar 10. flokks stúlkna

12 maí 2022Haukar urðu í gær meistarar 2. deildar 10. flokks stúlkna með sigri á Grindavík í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi, en að lokum fór svo að Haukar unnu 8 stiga sigur, 46-54. Þjálfari stelpnanna er Berry Timmermans.Meira
Mynd með frétt

Fjölnir b meistari 4. deildar 9. flokks drengja

12 maí 2022B lið 9. flokks drengja hjá Fjölni urðu í gær meistarar 4. deildar með sigri á Val b í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var nokkuð jafn, en að lokum fór svo að Fjölnir vann 11 stiga sigur, 65-54. Þjálfari drengjanna er Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson.Meira
Mynd með frétt

Valur Íslandsmeistari í minnibolta 10 ára stúlkna

11 maí 2022Stelpurnar í minnibolta 10 ára hjá Val urðu Íslandsmeistarar 2022 um síðustu helgi, en leikið var í Glerárskóla. Keppnin hafði verið jöfn í vetur og því nokkur spenna í lokamótinu, þar sem þær unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum verðskuldað í mótslok. Með Val í lokaumferðinni léku Stjarnan, sem varð í öðru sæti, Njarðvík, KR og Valur 2. Þjálfari stelpnanna er Bjarni Þór Gíslason. Til hamingju Valur!Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari í 8. flokki drengja

11 maí 2022Strákarnir í 8. flokki drengja hjá Stjörnunni urðu Íslandsmeistarar 2022 um síðustu helgi, en leikið var í Mathúsi Garðabæjarhöllinni. Stjarnan hafði unnið alla sína leiki í vetur og voru því í góðri stöðu fyrir lokahelgina þar sem þeir unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum verðskuldað í mótslok. Með Stjörnunni í lokaumferðinni léku KR b, sem varð í öðru sæti, ÍR, Njarðvík og KR. Þjálfarar strákanna eru Leifur Steinn Arnarson og Elías Uche Elíasson. Til hamingju Stjarnan!Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari í 8. flokki stúlkna

11 maí 2022Stelpurnar í 8. flokki stúlkna hjá Stjörnunni urðu Íslandsmeistarar 2022 um síðustu helgi, en leikið var á Meistaravöllum. Flokkurinn hafði verið jafn og spennandi í allan vetur, en í lokaumferðinni voru Stjörnustelpur sterkastar þar sem þær unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum í mótslok. Með Stjörnunni í lokaumferðinni léku Njarðvík, sem varð í öðru sæti, Grindavík, KR og Haukar. Þjálfarar stelpnanna eru Hlynur Bæringsson og Dino Stipcic. Til hamingju Stjarnan!Meira
Mynd með frétt

Uppselt

11 maí 2022Uppselt er á þriðja leik úrslita Subway deildar karla milli Vals og TindastólsMeira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið í maí

10 maí 2022KKÍ stendur fyrir tveimur þjálfaranámskeiðum í maí, KKÍ 1A og KKÍ 2A. Skráning er hafin á bæði námskeiðin, en þátttakendur fá afslátt af námskeiðsgjaldi ef gengið er frá skráningu og námskeiðsgjald greitt rúmri viku fyrir námskeið.Meira
Mynd með frétt

Úrslitaleikir yngri flokka

10 maí 2022Leikið verður í úrslitum yngri flokka í Dalhúsum í umsjón Fjölnis þetta vorið. Keppni hefst á morgun, miðvikudaginn 11. maí og stendur til mánudagsins 16. maí, en alls eru þetta 19 úrslitaleikir sem fara fram næstu daga.Meira
Mynd með frétt

Subway deild karla: Tindastóll-Valur kl. 20:15 · Leikur 2

9 maí 2022Í kvöld er komið að leik tvö milli Tindastóls og Vals í úrslitum Subway deildar karla um íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn fer fram á Sauðárkróki og hefst 20:15. Miðasala er á STUBBUR appinu og Stöð 2 Sport sýnir beint heim í stofu. Tindastóll verður með BBQ-grill og veitingar til sölu fyrir áhugsama og upphitun fyrir áhuguasama frá 17:00 við íþróttahúsið. 🏆 SUBWAY DEILDIN 🆚 Úrslit karla 2️⃣ Leikur 2 🗓 Mán. 9. maí 🎟 Miðasala á STUBBUR 📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport ⏰ 20:15 📍 Síkið, Sauðárkrókur 🏀 TINDASTÓLL (0) - VALUR (1) #subwaydeildin #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR 6 maí 2022

6 maí 2022Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira