21 okt. 2023

32 liða úrslit VÍS bikarsins verða leikin núna um helgina. Í dag er einn leikur á dagskrá þegar Valur sækir Vestra heim í VÍS bikar karla, en á morgun er svo eini leikur VÍS bikars kvenna í 32 liða úrslitum þegar KR og Njarðvík mætast. Hægt er að sjá allar viðureignir í VÍS bikar karla hérna https://websites.mygameday.app/comp_info.cgi?c=0-12973-0-631864-0&a=FIXTURE og VÍS bikar kvenna hérna https://websites.mygameday.app/comp_info.cgi?c=0-12973-0-632581-0&a=FIXTURE. Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði leikjanna hérna https://hosted.dcd.shared.geniussports.com/ICEBA/.

Tveir leikir VÍS bikars karla verða sýndir í beinni á RÚV. Annars vegar leikur Stjörnunnar og Þórs Þ. á morgun og hins vegar leikur Njarðvíkur og Keflavíkur á mánudagskvöld.