24 okt. 2023Rúnar Birgir Gíslason verður eftirlitsmaður á vegum FIBA á morgun miðvikudag og fimmtudag en hann er með tvo leiki í FIBA Europe Cup karla og kvenna hjá sama liði.

Fyrst verður hann með leik karlaliðs Caledonia Gladiators gegn Anwil Wloclawek frá Póllandi á morgun miðvikudag og svo er kvennalið Caledonia Gladiators með leik á fimmtudag gegn Basket Namur Capitale frá Belgíu. Leikirnir fara fram á heimavelli Caledonia í East Kilbride sem staðsett er í Skotlandi.

KKÍ óskar Rúnari Birgi góðs gengis í þessum verkefnum sínum.

Í keppni kvenna eru liðin búin að leika einn leik hvort og bæði sigrað sína leiki. Hjá körlunum hafa liðin líka leikið einn leik hvort og þar hafa Caledonia unnið sinn leik en Anwil tapað sínum leik.


Hægt er að horfa á leikinn og aðra leiki í FIBA Europe Cup á heimasíðu keppninnar:

Keppni karla:
www.fiba.basketball/europecup/23-24/

Keppni kvenna:
https://www.fiba.basketball/eurocupwomen/23-24