24 okt. 2023

Eins og upplýst hefur verið um áður hefur KKÍ unnið að innleiðingu nýs mótakerfis undanfarin misseri. Því miður hefur innleiðingin verið tímafrek og ekki gengið jafn vel og vonast var eftir. Okkur þykir það afar leitt hversu langan tíma innleiðingin hefur tekið og biðjumst afsökunar á öllum þeim óþægindum sem þetta hefur valdið. Áfram verður unnið ötullega að því að mótakerfið sinni þörfum hreyfingarinnar, ásamt því að innleiða þá kosti sem kerfið hefur.
 
Samhliða vinnu við mótakerfið hefur verið unnið að uppsetningu nýrrar heimasíðu KKÍ. Sú síða bíður þess nú að ákveðnar lausnir tengdar mótakerfinu verði reiðubúnar. Því miður er ekki hægt að tímasetja það almennilega, en reynt verður að hraða þeirri vinnu eins og mögulegt er.

  • Lifandi tölfræði er auðvelt að nálgast hérna, en það er einnig tengill á forsíðu kki.is. Einnig er hægt að skoða leiki eftir dagsetningum þarna. Þarna má finna lifandi tölfræði Subway og 1. deilda ásamt VÍS bikars.
  • Staða í deildum og leikjadagskrá meistaraflokka má finna hér. Unnið verður áfram að framsetningu upplýsinga.
  • Venslasamningar eru núna allir skráðir í gegnum mótakerfið. Upplýsingar um það má finna hérna.
  • Mótakerfinu fylgir app, þar sem hægt er að fylgja liðum og sjá þá leikjadagskrá þeirra liða sem þú fylgir. Allir áhugamenn geta náð í appið og skráð sig og þannig fylgt sínu liði í gegnum appið. Þar er einnig hægt að nálgast tölfræði og stöðu í deildum.
  • Hægt er að tengja leikjadagskrá þíns liðs inn í dagatalið þitt. Þetta virkar fyrir Google, Apple, Outlook, Office 365 og ýmis önnur dagatöl. Við hvetjum ykkur til að kynna þetta fyrir foreldrum og áhangendum, þar sem þetta getur verið þægileg leið til að sjá leikjadagskrá. Það virkar líka vel með leikjabreytingum, þar sem þær uppfærast inni í dagatalinu fljótlega eftir að leikjabreyting er skráð í mótakerfið.
  • Staða í yngri flokkum og leikjadagskrá má finna hér. Unnið er ötullega að því að leikjadagskrá birtist í dagsetningaröð, í stað þess að birtast í umferðaröð.
  • Innleiðing rafrænnar leikskýrslu hefst vonandi seinna á þessari leiktíð, en horft verður til meistaraflokka og elstu flokka í deildarkeppni yngri flokka í fyrsta kasti. Það gefur færi á því að fylgjast með lifandi stöðu leikja þar sem engin lifandi tölfræði er tekin, eins og í 2. deild karla og eldri yngri flokkum.

Fjöldi annarra atriða, stór sem smá eru á verkefnalista okkar og verður unnið að þeim áfram með Gameday. Ef þið eruð með ábendingar eða hugmyndir um það sem betur má fara, þá er það velkomið.