Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

3x3 sumarmót á Selfossi · Laugardaginn 13. júní

3 jún. 2020Selfoss karfa heldur 3x3 mót á Selfossi í Vallaskóla laugardaginn 13. júní. Keppt er í þrem flokkum drengja og stúlkna. 4 leikmenn leika í liði og eru leikirnir í 10 mín. eða upp í 15 stig. · U12 (2008 og 2009) · U14 (2006 og 2007) · U16 (2004 og 2005) Þátttökugjald er 10 þús. kr. á lið. Skráning fer fram á selfosskarfa@gmail.comMeira
Mynd með frétt

Félagaskiptagluginn opinn á ný

3 jún. 2020Þann 1. júní hófst nýtt tímabil félagaskipta fyrir næsta tímabil og eru félagaskipti nú hemil fyrir alla aldursflokka og fyrir 20 ára og eldri til 15. nóvember. Þeir leikmenn sem ætla að skipta um félag þurfa að fylla út félagskiptablaðið og fá staðfestingu frá fulltrúa síns fyrra félags og senda inn til KKÍ.Meira
Mynd með frétt

Domino's deildir - drög

2 jún. 2020Fyrstu drög að leikjaniðurröðun Domino‘s deilda karla og kvenna hafa nú verið birt á heimasíðu KKÍ.Meira
Mynd með frétt

Skráningu í Domino's og 1. deildir lýkur um mánaðarmótin - aðrar skráningar fyrir 15. júní

28 maí 2020Núna um mánaðarmótin klárast skráning í Domino's deildir karla og kvenna, 1. deildir karla og kvenna sem og í Geysisbikar karla og kvenna.Meira
Mynd með frétt

Nefnd vegna keppnisumhverfis 16 ára og eldri

27 maí 2020Á stjórnarfundi KKÍ síðasta mánudag, 25. maí, var tekin ákvörðun um að skipa nefnd sem á að skoða núverandi keppnisumhverfi 16 ára og eldri og koma með tillögur að því hvernig megi bæta það. Stefnt er að því að tillögur verði tilbúnar til kynningar vel tímanlega fyrir þing sambandsins í mars á næsta ári.Meira
Mynd með frétt

Breyting á reglugerð um aga- og úrskurðarnefnd

26 maí 2020Stjórn KKÍ samþykkti breytingar á reglugerð um aga- og úrskurðarnefnd á fundi sínum í gær.Meira
Mynd með frétt

Keppnisdagatal 2020-2021

20 maí 2020Keppnisdagatal 2020-2021 hefur nú verið birt á heimasíðu KKÍ.Meira
Mynd með frétt

Þrautakeppnir KKÍ · Brelluskot

20 maí 2020Nú er komið að fjórðu og síðustu Þrautakeppni KKÍ en nú geta þátttakendur spreytt sig í Brelluskoti. Íslandsmót í Brelluskoti! KKÍ stendur fyrir Íslandsmóti í brelluskoti. Markmiðið er að skjóta bolta í körfu á einhvern furðulegan hátt eða með óhefðbundnum hætti eins og til dæmis afturábak, langt frá, með viðkomu af gólfi eða vegg o.s.fv. Það eina sem þarf að gera er að láta boltann enda á því að fara ofan í körfuhringinn.Meira
Mynd með frétt

Breytingar á reglugerðum KKÍ

19 maí 2020Stjórn KKÍ samþykkti á fundi sínum 7. maí síðastliðinn nokkrar breytingar á reglugerðum KKÍ.Meira
Mynd með frétt

Dagatalsfundur KKÍ - 27. maí 2020

13 maí 2020Miðvikudaginn 27. maí stendur KKÍ fyrir árlegum dagatalsfundi sínum í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.Meira
Mynd með frétt

Úrvalsbúðir 2020 fara fram 15.-16. ágúst

8 maí 2020Í sumar fer Úrvalsbúðir KKÍ að venju en um er að ræða æfingabúðir drengja og stúlkna sem fædd eru 2007, 2008 og 2009 að þessu sinni. Ákveðið hefur verið að æft verður eina helgi í sumar, helgina 15.-16. ágúst, og fara búðirnar fram á höfuðborgarsvæðinu. Sá fyrirvari er settur á að búðirnar fara eingöngu fram á settum tíma í ágúst ef allt verður í lagi og leyfilegt af hálfu yfirvalda sóttvarna og annara aðila vegna COVID-19 faraldursins. Þjálfarar félaganna hafa nú tilnefnt sína leikmenn í búðirnar frá félögunum og munu leikmenn fá boðsbréf til sín í byrjun júní í pósti. Úrvalsbúðir KKÍ eru fyrsta stig afreksstarfsins og hluti af hæfileikamótun yngstu leikmannana og hafa verið mjög vel sóttar og vinsælar undanfarin ár.Meira
Mynd með frétt

Þrautakeppnir KKÍ · Dripl-dans

5 maí 2020Nú er komin í gang þrautakeppni KKÍ nr. 3 en það er Íslandsmóti í dripl-dansi.​ Keppni 3: Íslandsmót KKÍ í Dripl-dansi KKÍ stendur fyrir Íslandsmóti í dripl-dansi. Markmiðið er að ná dripla og gera boltahreyfingar í takt tveir eða fleiri saman. Frjálst erMeira
Mynd með frétt

KV boðið sæti í 1. deild karla

1 maí 2020Liði KV hefur verið boðið sæti í 1. deild karla fyrir tímabilið 2020/2021. KV var efst A liða þegar keppni var hætt í mars og því hefur mótanefnd ákveðið að bjóða liðinu að færast upp um deild.Meira
Mynd með frétt

Þrautakeppnir KKÍ · Keppni 2: Skæri

24 apr. 2020KKÍ hefur sett í gang stuttar þrautakeppnir með körfubolta sem allir áhugasamir geta tekið þátt í heima. Fjórar keppnir eru á döfunni og verða þær eftirfarandi: · Boltaspuni – spinna bolta hvernig sem þú getur gert það eins lengi og þú getur. · Skæri – dripla bolta eins oft og þú getur milli fóta á 30 sek. · Dripl-dans – tveir eða fleiri saman að dripla í takt við tónlist · Brelluskot – skora körfu með því að nota umhverfið (eða setja upp umhverfið) Keppni 2 er nú hafin og er hún íslandsmót KKÍ í SKÆRUM! Um keppnina: KKÍ stendur fyrir Íslandsmóti í drippl-skærum (cross-over). Markmiðið er að ná sem flestum endurtekningum á 30 sekúndum og birta það í vídeói á Instagram. Þátttakendur þurfa ekki að skrá sig heldur skila þeir sem vilja taka þátt vídeói af sér dripla bolta milli fóta sér eins oft og þeir geta á 30 sek. og merkja KKÍ í færsluna. Meira
Mynd með frétt

Æfingar geta hafist 4. maí

22 apr. 2020Vegna minnisblaðs um afléttingu samkomutakmarkana þann 4. maí nk. þá vill sóttvarnalæknir, Þórólfur Guðnason, árárétta eftirfarandi tillögur varðandi útfærslu afléttinga í skólum og íþróttastarfi. Varðandi íþróttir segir: · Íþróttir miðist við takmarkanir fyrir íþróttastarf fullorðinna (sjá að neðan). · Áfram er hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts. · Tveggja metra nándarreglan verði virt. Meira
Mynd með frétt

Heima driplæfingar með Jóni Axel Guðmundssyni

20 apr. 2020Heima driplæfingar í boði með Jóns Axels Guðmundssonar og þjálfara hans Blake Boehringer annað kvöld, þriðjudagskvöldið 21. apríl kl. 18:30 (ísl. tími) í gegnum Zoom. Jón Axel er að undirbúa sig fyrir NBA-nýliðavalið og býður öllum sem vilja að æfa með sér en hann lék á sínu lokaári í vetur með Davidson háskólanum í NCAA. Skráðu þig hérna: https://bit.ly/3cwmFxyMeira
Mynd með frétt

Vestrabúðirnar verða í ágúst

17 apr. 2020Stjórn Körfuboltabúða Vestra hefur ákveðið að fresta 2020 búðunumMeira
Mynd með frétt

Þrautakeppnir KKÍ · Heimakeppnir í körfubolta

15 apr. 2020KKÍ hefur sett í gang stuttar þrautakeppnir með körfubolta sem allir áhugasamir geta tekið þátt í heima. Fjórar keppnir eru á döfunni og verða þær eftirfarandi: · Boltaspuni – spinna bolta hvernig sem þú getur gert það eins lengi og þú getur. · Skæri – drippla bolta eins oft og þú getur milli fóta á 30 sek. · Dripl-dans – tveir eða fleiri saman að dripla í takt við tónlist · Brelluskot – skora körfu með því að nota umhverfið (eða setja upp umhverfið) Keppni 1: Íslandsmót KKÍ í Boltaspuna! KKÍ stendur fyrir Íslandsmóti í að spinna bolta á samfélagsmiðlunum Facebook og Twitter. Þátttakendur þurfa ekki að skrá sig heldur skila þeir sem vilja taka þátt vídeói af sér spinna bolta á Facebook eða Twitter og merkja KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands í færsluna. Vídeóið verður að vera á venjulegum hraða og gæta verður að því að færslurnar séu opnar svo KKÍ getur séð þær. Sá sem nær að spinna bolta lengst vinnur! Ef fleiri en einn ná sama tíma verður dregið um sigurvegara. Síðasti skiladagur vídeóa er til og með þriðjudagsins 21. apríl 2020.Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið KKÍ 1.b. · Fjarnám

15 apr. 2020Hafin er skráning fyrir KKÍ þjálfari 1.b hlutann í þjálfaramenntun KKÍ. Hægt er að skrá sig á námskeiðið hérna Um námskeiðið:​ Námskeiðið er 20 kennslustundir sem kennt í fjarnámi. Í þessum hluta er farið ítarlega í leikreglur, mótafyrirkomulag KKÍ, sögu körfuknattleiks og unnið verkefni í tímaseðlagerð. KKÍ þjálfari 1.b gildir sem 35% af lokaeinkunn KKÍ þjálfara 1. Meira
Mynd með frétt

Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ · Fjarnám 2020

14 apr. 2020Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir: Fjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar (KKÍ-hlutann) sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira