Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Skallagrímur-Keflavík í undanúrsitum Domino's deildar kvenna · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

10 apr. 2017Skallagrímur og Keflavík mætast í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld og verður Stöð 2 Sport á staðnum og sýnir leikinn í beinni útsendingu. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer hann fram í Fjósinu í Borgarnesi. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Keflavík en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer áfram í lokaúrslitin þar sem Snæfell hefur þegar tryggt sér sæti í lokaúrslitunum. Domino's deild kvenna í kvöld:Meira
Mynd með frétt

Hamar-Valur í kvöld í úrslitum 1. deildar karla

9 apr. 2017Fjórði leikur milli Vals og Hamars fer fram í kvöld í Hveragerði og hefst hann kl. 19:30. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Hamar en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki vinnur sér sæti í Domino's deild karla að ári.Meira
Mynd með frétt

Stjarnan-Grindavík kl. 16:00 í dag · Sýndur beint á Stöð 2 Sport

8 apr. 2017Í dag mætast í þriðja sinn, Stjarnan og Grindavík í undanúrslitaeinvígi sínu í undanúrslitum Domino's deildar karla. Leikurinn hefst kl. 16:00 í Ásgarði, Garðabæ og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. Frá kl. 14:30 verður Trophy Tour FIBA á svæðinu í anddyri Ásgarðs þar sem EuroBasket 2017 verður kynnt og gestum gefst kostur á að skoða keppnisboltann á EM, sjá Evrópumeistarabikarinn sjálfan og taka myndir með sér við hann og með Sam Dunk, lukkudýri keppninnar.Meira
Mynd með frétt

Úrslitaleikur B-liða fer fram í dag

8 apr. 2017Í dag mætast í úrslitum 2. deildar karla, í flokki B-liða, lið Hauka-b og KR-b. Liðin leika í Seljaskóla og hefst leikurinn kl. 13:00.Meira
Mynd með frétt

Hrunamenn/Laugdælir sigurvegarar í 2. deild karla

7 apr. 2017Sameiginlegt lið Hrunamanna og Laugdæla bar sigur úr býtum í 2. deild karla en í gærkvöldi fór fram úrslitaleikur deildarinnar. Lögðu þeir Gnúpverja að velli 101-73 fyrir framan fjölmenni í íþróttahúsinu á Flúðum.Meira
Mynd með frétt

KR-Keflavík · Undanúrslit Domino's deildar karla í kvöld · Beint á Stöð 2 Sport

7 apr. 2017KR og Keflavík mætast í kvöld í þriðja leik liðanna en staðan í einvíginu er jöfn 1-1. Leikið verður í DHL-höllinni í Vesturbænum og hefst leikurinn kl. 19:15. Stöð 2 Sport verður að sjálfsögðu á staðnum og sýnir beint frá leiknum í kvöld. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í lokaúrslitin í ár.Meira
Mynd með frétt

Úrskurður Aga- og úrskurðanefndar 05.04.2017

6 apr. 2017Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eitt mál á fundi sínum í gær. Mál nr. 48/2016-2017: „Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Oddur Ólafsson, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hamars og Vals í 1. deild meistaraflokks karla, sem leikinn var 2. apríl 2017".Meira
Mynd með frétt

Valur-Hamar: Leikur 3 · Úrslitaeinvígi 1. deildar karla í kvöld

6 apr. 2017Valur og Hamar mætast í Valshöllinni í kvöld í þriðja leiknum milli liðanna í úrslitum 1. deildar karla.Meira
Mynd með frétt

Úrslitaleikur 2. deildar karla í kvöld

6 apr. 2017Hrunamenn/Laugdælir og Gnúpverjar mætast í kvöld í úrslitaleik 2. deildar karla. Bæði lið hafa nú þegar unnið sér rétt til sætis í 1. deild karla að ári en í kvöld verður leikið um sigurinn í deildinni. Leikurinn fer fram á Flúðum og hefst kl. 20:30.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna í kvöld · Keflavík-Skallagrímur sýndur beint á Stöð 2 Sport

6 apr. 2017Keflavík og Skallagrímur mætast í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld og verður Stöð 2 Sport á staðnum og sýnir leikinn í beinni útsendingu. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer hann fram í TM höllinni að Sunnubraut. Staðan í einvíginu er 1-1 en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer áfram í lokaúrslitin.Meira
Mynd með frétt

Snæfell-Stjarnan · Undanúrslit Domino's deildar kvenna

5 apr. 2017Snæfell og Stjarnan eigast við í þriðja leik liðanna í kvöld í Hólminum í undanúrslitaviðureign sinni í Domino's deild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranám KKÍ · 11 þjálfarar luku 1.b

5 apr. 2017Í janúar og febrúar fór fram fjarnám í þjálfaranámi KKÍ 1.b. Námið var verkefni í sögu, mótahaldi og tímaseðlagerð. Einnig var tekið leikreglupróf. Ellefu þjálfara luku náminu með góðum árangri:Meira
Mynd með frétt

Þjálfarnámskeið KKÍ og FIBA: Svetislav Pešić aðalfyrirlesari

4 apr. 2017Einn þekktasti, virtasti og sigursælasti þjálfarinn í evrópskum körfubolta, Svetislav Pešić verður aðalfyrirlesari á þjálfaranámskeiði KKÍ 2.c núna í vor. Námskeiðið verður haldið á höfuðborgarsvæðinu dagana 26.-28. maí.Meira
Mynd með frétt

Undanúrslit Domnino's deildar karla · Grindavík-Stjarnan í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld

4 apr. 2017Stjarnan og Grindavík mætast öðru sinni í undanúrslitaeinvígi sínu í kvöld í Mustad höllinni í Grindavík. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður hann sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.Meira
Mynd með frétt

Úrskurðir aga- og úrskurðarnefndar 03.04.17

3 apr. 2017Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir fjögur mál á fundi sínum.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Undanúrslit: Keflavík-KR í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld!

3 apr. 2017Keflavík og KR mætast öðru sinni í undanúrslitum Domino's deildar karla í kvöld en leikurinn fer fram á heimavelli Kelfavíkur, TM höllinni, og hefst hann kl. 19:15. KR vann fyrsta leik liðanna en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslit. Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Skallagrímur-Keflavík í beinni á Stöð 2 Sport

2 apr. 2017Keflavík og Skallagrímur mætast öðru sinni í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld kl. 19:15 og fer leikurinn fram á heimavelli Skallagríms í Borgarnesi. Stöð 2 Sport sýnir beint frá leiknum úr Fjósinu. Staðan í einvígi liðanna er 1-0 fyrir Skallagrím. #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Úrslitakeppni 1. deildar karla · Hamar-Valur í kvöld - Leikur 2

2 apr. 2017Í kvöld mætast öðru sinni Hamar og Valur í lokaúrslitum 1. deildar karla. Leikurinn fer fram í Hveragerði og hefst kl. 19:30.Meira
Mynd með frétt

Undanúrslit Domino's deildar kvenna · Stjarnan-Snæfell í beinni á Stöð 2 Sport

1 apr. 2017Í dag fer fram einn leikur í úrslitakeppni Domino's deildar kvenna þegar Stjarnan og Snæfell mætast í Ásgarði kl. 16:30. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Snæfell. Þetta verður fyrsti heimaleikur Stjörnunnar á heimavelli í sögu félagsins en Stjarnan er í fyrsta sinn í úrslitakeppni Domino's deildarinnar. Meira
Mynd með frétt

Úrslitaleikur í 3.deild karla

1 apr. 2017Í dag verður úrslitaleikur í 3. deild karla á milli Sindra og b-liðs Þórs frá Þorlákshöfn.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira