Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Domino's deild kvenna í dag · Fjórir leikir: HAUKAR-SNÆFELL í beinni

9 feb. 2019Í dag fer fram heil umferð í Domino's deild kvenna með fjórum leikjum. Stöð 2 Sport sýnir beint frá leik Hauka og Snæfells í Hafnarfirði kl. 17:30 Leikir dagsins:​ 🍕 Domino's deild kvenna í dag 🗓 Lau. 9. febrúar 🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is ⏰ 15:00 🏀 KR-SKALLAGRÍMUR (KRTV.is) ⏰ 16:30 🏀 VALUR-STJARNAN 🏀 BREIÐABLIK-KEFLAVÍK ⏰ 17:30 🏀 HAUKAR-SNÆFELL ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport #korfubolti #dominosdeildin ​Meira
Mynd með frétt

Frestað vegna veðurs UPPFÆRT

8 feb. 2019Búið er að fresta leik Hamars og Sindra í 1. deild karla vegna veðurs. Nú rétt í þessu var einnig verið að fresta leik Vestra og Fjölnis í deild karla.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Tveir leikir í beinni í kvöld á Stöð 2 Sport

8 feb. 2019Í kvöld eru tveir leikir í Domino's deild karla og verða þeir báðir sýndir beint á Stöð 2 Sport. Fyrir leikur kvöldsins er viðureign Reykjavíkurliðanna Vals og ÍR kl. 18:30 og svo kl. 20:15 verður leikur Tindastóls og Stjörnunnar sýndur frá Sauðárkróki. 🍕 Domino's deild karla í kvöld 🗓 Fös. 8. febrúar 🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is ⏰ 18:30 🏀 VALUR-ÍR ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport ⏰ 20:15 🏀 TINDATÓLL-STJARNAN ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 SportMeira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Njarðvík-Grindavík í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld!

7 feb. 2019Fjórir leikir fara fram í kvöld í Domino's deild karla kl. 19.15 og þá verður sýnt beint frá leik Njarðvíkur og Grindavíkur frá Ljónagryfjunni í Njarðvík á Stöð 2 Sport. Sjáumst á vellinum! 🍕 Domino's deild karla í kvöld! 🗓 Fim. 7. febrúar ⏰ 19:15 🏀 NJARÐVÍK-GRINDAVÍK ➡️📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport 🏀 ÞÓR Þ.-BREIÐABLIK 🏀 KEFLAVÍK-SKALLAGRÍMUR 🏀 HAUKAR-KR ➡️ Netútsending á tv.haukar.isMeira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 06.02.2019

6 feb. 2019Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni.Meira
Mynd með frétt

Miðar á Geysisbikarsúrslitin 2019 · Korthafar

6 feb. 2019KKÍ auglýsir miðaafhendingu til korthafa fyrir undanúrslit og úrslit karla og kvenna í Geysisbikarnum í febrúar. Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram eða til hádegis á leikdegi fyrir hvern dag en allir leikirnir fara fram 13.-16. febrúar í Laugardalshöllinni. Þá minnum við á úrslit yngri flokka á föstudeginum 15. febrúar og sunnudeginum 17. febrúar en á þau kostar 1.000 kr. við hurð (öll helgin). Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram útgefnum miðum á viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana sína rafrænt á netinu fram að leik með því að slá inn kennitölu sína (án bandstriks) EINNIG ER SKÝRT TEKIÐ FRAM AÐ ENGA MIÐA VERÐUR HÆGT AÐ NÁLGAST EFTIR AFHENDINGARDAGINN SÍMLEIÐIS, MEÐ TÖLVUPÓSTI EÐA ÖÐRUM SKILABOÐUM TIL STARFSMANNA SAMBANDSINS. Almenn miðasala fer fram á TIX:is: Geysisbikarinn · Úrslit 2019: https://tix.is/is/event/7460/geysisbikarinn-2019 Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Keflavík-Valur í beinni á Stöð 2 Sport

6 feb. 2019Í kvöld fer fram heil umferð í Domino's deild kvenna þegar fjórir leikir fara fram kl. 19:15. Stöð 2 Sport verður í Keflavík og sýnir beint frá leik Keflavíkur og Vals. 🍕 Domino's deild kvenna í kvöld 🗓 Miðvikudagurinn 6. febrúar 🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is ⏰ 19:15 🏀 KEFLAVÍK-VALUR ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport 🏀 STJARNAN-HAUKAR 🏀 SNÆFELL-SKALLAGRÍMUR 🏀 BREIÐABLIK-KRMeira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Leikir kvöldsins

4 feb. 2019Leikir kvöldsins í Domino's deild karla eru þrír og hefjast þeir allir kl. 19:15. Stöð 2 Sport sýndir beint frá leik KR og Njarðvík í DHL-höllinni.Meira
Mynd með frétt

Yngri landslið KKÍ · 16 manna hópar U16 og U18 liðanna

1 feb. 2019Þjálfarar U16 og U18 landsliða drengja og stúlkna hafa valið sína loka 16 manna æfingahópa fyrir sumarið 2019. Þeir leikmenn sem voru í æfingahópum um jólin hefur verið tilkynnt um valið af sínum þjálfurum. Í vor verða svo loka 12 manna liðin valin fyrir verkefni sumarsins 2019. Eftirtaldir leikmenn skipa æfingahópana: Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Tveir leikir í beinni í kvöld á Stöð 2 Sport

1 feb. 2019Í kvöld fara fram tveir leikir í Domino's deild karla og verða þeir báðir í beinni á Stöð 2 Sport. Fyrst er það leikur Hauka og Njarðvíkur í Hafnarfirði kl. 18:30 og svo tekur við leikur Skallagríms og Breiðabliks kl. 20:15.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Fjórir leikir í kvöld

31 jan. 2019Í kvöld kl. 19:15 fara fram fjórir leikir í Domino's deild karla. Stöð 2 Sport verður í Þorlákshöfn og sýnir beint frá leik Þórs Þ. og Stjörnunnar. 🍕 Domino's deild karla í kvöld! 🗓 Fimmtudaginn 31. janúar 🖥 LIVEstatt á kki.is ⏰ 19:15 🏀 ÞÓR Þ.-STJARNAN ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport 🏀 TINDASTÓLL- KR ➡️Beint á netinu á tindastolltv.com 🏀 VALUR-GRINDAVÍK 🏀 KEFLAVÍK-ÍRMeira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 30.01.2019

30 jan. 2019Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eftirfarandi mál í vikunni.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna í kvöld · Heil umferð

30 jan. 2019Heil umferð fer fram í Domino's deild kvenna í kvöld og verður Stöð 2 Sport með beina útsendingu frá Borgarnesi þar sem Skallagrímur og Stjarnan mætast. Að auki verða Haukar-TV og KR-TV með útsendingar á netinu frá sínum heimaleikjum. Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15. 🍕 Domino's deild kvenna í kvöld 🗓 Miðvikudagurinn 30. janúar 🖥 LIFANDI tölfræði á kki.is ⏰ 19:15 🏀 SKALLAGRÍMUR-STJARNAN ➡️📺Sýndur beint á Stöð 2 Sport 🏀 HAUKAR-KEFLAVÍK ➡️Beint á netinu á tv.haukar.is 🏀 KR-SNÆFELL ➡️Beint á netinu á KRTV.is 🏀 VALUR-BREIÐABLIK #korfubolti #dominosdeildinMeira
Mynd með frétt

Davíð Tómas FIBA dómari dæmir í EuroLeague Women í Frakklandi í kvöld

30 jan. 2019Davíð Tómas Tómasson, einn af okkar FIBA dómurum, er í verkefni í kvöld í Frakklandi. Þá dæmir hann leik í EuroLeague Women í gamla heimabæ Martins Hermannssonar, Charleville-Mézéres, þegar heimastúlkur í FLAMMES CAROLO BASKET mætir liði TTT RIGA frá Lettlandi. Leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með honum í BEINNI á netinu og í lifandi tölfræði hérna á heimasíðu keppninnar. Dómari leiksins er Jelena Tomic frá Króatíu og meðdómari ásamt Davíð Tómasi verður Pedro Coelho frá Portúgal. KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í kvöld. #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Geysisbikarinn · Dagskrá úrslitanna í Laugardalshöllinni 2019

30 jan. 2019Framundan um miðjan febrúar er bikarhátíð KKÍ og Geysis bílaleigu þegar leikið verður til úrslita í öllum flokkum í Geysisbikarnum dagana 13.-17. febrúar í Laugardalshöllinni í glæsilegri umgjörð. Allir leikir vikunnar verða sýndir, bæði á RÚV og RÚV2 og einnig verða leikir á SportTV.is frá úrslitaleikjum yngri flokka. Dagskrá Geysisbikarsúrslitanna 2019:Meira
Mynd með frétt

Körfuknattleikssamband Íslands 58 ára í dag · Afmælisleikur í dag á Facebook-síðu KKÍ

29 jan. 2019KKÍ fagnar 58 ára afmæli í dag 29. janúar, en sambandið var stofnað þennan dag árið 1961. Af því tilefni getur körfuboltaáhugafólk tekið þátt í skemmtilegum afmælisleik í dag á facebook-síðu KKÍ þar sem við ætlum að gefa tveim heppnum þátttakendum miða fyrir tvo á: 🏆 Geysisbikars-úrslitavikuna 🚗 (undanúrslit og úrslitaleiki mfl. og úrslit yngri flokka). 🇮🇸 Landsleik Íslands og Portúgals hjá landsliði karla í undankeppni EM 2021. 🎪 Allir leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni, Geysisbikarinn 13.-17. febrúar og svo landsleikurinn 21. febrúar.Meira
Mynd með frétt

Félagaskiptaglugginn lokar 31. janúar út tímabilið

28 jan. 2019Samkvæmt reglugerð um félagskipti er opið fyrir félgaskipti leikmanna eldri en 20 ára til miðnættis þann 31. janúar en eftir það lokar fyrir öll félagskipti út tímabilið. Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, á öllum aldri, geta fengið félagaskipti eftir þann tíma. Það sama gildir um venslasamninga þar sem þeir lúta reglum um félagaskipti. Undanþága er þó sú að þau leyfi/beiðnir sem borist hafa innan tímarammans til KKÍ og verða í vinnslu fyrir lokun gluggans eru afgreidd áfram, t.d. þegar beðið er eftir leikheimild erlendis frá. Skila má gögnum alveg fram til lokunar gluggans á miðnætti 31. janúar en athygli skal vakin á því að leikmenn sem skila inn gögnum eftir kl. 16:00 á fimmtudeginum þann 31. janúar, hljóta fyrst leikheimild á föstudaginn, daginn eftir, 1. febrúar kl. 09:00 eftir að þau eru afgreidd. Innlend félagsskipti Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða senda í tölvupósti. Greiða þarf fyrir með millifærslu eða fá undirskrift nýja félagsins ef um skuldfærslu er að ræða í þeim tilfellum sem félag greiðir fyrir skiptin. Í þeim tilfellum þar sem leikmaður er eldri en 20 ára þarf félaga sem gengið er í einnig að vera skuldlaust við KKÍ fyrir lok miðnættis þann 31. janúar. Leikheimildir erlendra leikmanna/Óskir um Letter of Clearance (LOC) Skila þarf inn öllum gögnum sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang ásamt því að félag þarf að vera skuldlaust við KKÍ við lokun gluggans. LOC frá sambandi í öðru landi má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild frá og með þeim degi þegar það berst að því undanskyldu að öll önnur gögn/greiðslur sem krafist er hafa borist skrifstofu KKÍ og hægt sé þar með að gefa út formlega leikheimild í kjölfarið. Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla í kvöld · Stjarnan-Keflavík í beinni á Stöð 2 Sport

27 jan. 2019Í kvöld fer fram einn leikur í Domino's deild karla kl. 19:15 en þá mætast í Garðabænum Stjarnan og Keflavík. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 🍕 Domino's deild karla 🗓 Sunnudaginn 27. janúar ​🎪 Mathús Garðabæjar-höllin ⏰ 19:15 🏀 STJARNAN-KEFLAVÍK ➡️📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport #dominosdeildin #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Seinkun á leik Vestra og Þórs Ak.

25 jan. 2019Seinka þarf leik Vestra og Þór Ak. í 1. deild karla til kl. 19:40.​Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · NJARÐVÍK-TINDASTÓLL í beinni á Stöð 2 Sport

25 jan. 2019Einn leikur fer fram í kvöld í Domino's deild karla þegar toppliðin, Njarðvík og Tindastóll, mætast í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Njarðvík situr í fyrsta sæti með 26 stig og Tindastóll í öðru sæti með 22 stig fyrir leik kvöldsins. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira