7 okt. 2020

Á miðnætti tók í gildi reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 966/2020 um breytingu á reglugerð 957/2020 um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Reglugerð þessi setti auknar takmarkanir á starfsemi í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ, en þá helst það sem snýr að KKÍ er að keppni inniíþrótta er bönnuð á þessu svæði, auk þess sem æfingar innanhúss þeirra sem fæddir eru 2004 og fyrr eru bannaðar.
 
Stjórn og mótanefnd KKÍ fundaði í morgun um þá stöðu sem er uppi, en enn er beðið frekari skýringa frá yfirvöldum á ákveðnum þáttum í reglugerðinni, og á meðan svo er verður vandséð hvernig hægt sé að taka ákvörðun um framtíð mótahalds til 19. október nk. Fyrir liggur að félög á höfuðborgarsvæðinu megi ekki keppa í dag og því verður eftirfarandi leikjum frestað til samræmis við 2. grein reglugerðar KKÍ um ráðstafanir vegna heimsfaraldurs COVID-19.
 
Domino‘s deild kvenna
Breiðablik – Keflavík
Fjölnir – Haukar
Snæfell – KR
Valur – Skallagrímur
 
7. flokkur drengja
Njarðvík – Stjarnan
KR – Fjölnir
 
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um leik Keflavíkur og Selfoss í bikarkeppni unglingaflokks karla sem er á dagskrá í Keflavík í kvöld.