Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

NM 2019: Dagur þrjú - Danski dagurinn

29 jún. 2019Þá er komið að þriðja degi Norðurlandamótsins í ár og eru andstæðingar dagsins Danmörk. Danir hafa oft verið með ágætis lið á mótinu og ekki er til neins annars að ætla, en að verkefni dagsins sé ærið. Meira
Mynd með frétt

NM 2019: Samantekt - Tveir sigrar á Svíþjóð

28 jún. 2019Sænski dagurinn hér í Finnlandi fór fram í dag þar sem öll liðin mættu Svíþjóð. Drengja liðin bæði náðu í ansi örugga og góða sigra í sínum leikjum. Stúlkna liðin lutu hinsvegar lægri hlut í sínum leikjum, U16 stúlkna í nokkuð jöfnum leik en Sænska u18 stúlkna liðið var einfaldlega mun sterkara í dag.Meira
Mynd með frétt

NM 2019: Dagur tvö - Sænski dagurinn

28 jún. 2019Þá er komið að öðrum degi Norðurlandamótsins í ár og eru andstæðingar dagsins Svíþjóð. Svíar hafa mætt með sterk lið til leiks í gegnum tíðina og ljóst að verkefni dagsins er ærði. Meira
Mynd með frétt

Samantekt: Þrír sigrar á Noregi

27 jún. 2019Fyrsta degi á Norðurlandamóti yngri landsliða er lokið. Andstæðingur Íslands í dag var Noregur sem veitti Íslandi góða keppni í öllum leikjum dagsins. Meira
Mynd með frétt

EuroBasket kvenna hefst í dag í Lettlandi og Serbíu · 16 þjóðir taka þátt

27 jún. 2019EuroBasket kvenna (EM) hefst í dag en mótið er haldið í Lettlandi og í Serbíu. Það eru 16 þjóðir sem taka þátt í lokamótinu í ár. Svíþjóð er eina þjóðin af Norðurlöndnum sem komst á EuroBasket en þær mæta Svartfjallalandi í fyrsta leik sínum í dag. Svartfjallaland var með okkur riðlakeppninni og vann okkar riðil síðastliðin vetur og svo mættum við þeirra liði einnig á Smáþjóðaleikunum nú í lok maí.Meira
Mynd með frétt

Norðurlandamótið 2019 hefst í dag

27 jún. 2019Í dag er komið að fyrsta leikdegi okkar liða á NM 2019 í Finnlandi þar sem U16 og U18 ára lið Íslands taka þátt. Öll liðin spila alla daga og við hefjum leik á norska deginum. Mikil tilhlökkun er í íslenska hópnum að hefja leik enda búið að æfa vel fram að móti. Mótherjar dagsins er Noregur en íslensku liðunum hefur í gegnum tíðina gengið ágætlega með frændur okkar frá Noregi. Spennandi verður að sjá hvernig liðin mæta til leiks þetta árið en margir spennandi leikmenn eru á meðal þátttakenda í ár. Meira
Mynd með frétt

NM 2019 · Íslenski hópurinn lagður af stað til Finnlands

26 jún. 2019Dagana 27. júní til 1. júlí fer fram hið árlega Norðurlandamót U16 og U18 ára liða og fer það fram líkt og undanfarin ár í Kisakallio í Finnlandi. Liðin okkkar héldu út í morgun með flugi Icelandair til Helsinki og lenda þar um hádegi að íslenskum tíma. Öll liðin leika einn leik á dag og alls fimm leiki gegn liðum Finnlands, Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Eistlands. Hægt er að fylgjast vel með mótinu á netinu, lifandi tölfræði, bein netútsending frá leikjum og fréttaflutningi karfan.is sem er úti á vegum KKÍ og fjallar um alla leiki, tekur myndir og viðtöl. Meira
Mynd með frétt

Kristinn Óskarsson á námskeiði fyrir alþjóðlega dómaraleiðbeinendur

25 jún. 2019Um síðastliða helgi sótti Kristinn Óskarsson árlegt námskeið á vegum FIBA fyrir alþjóðlega vottaða dómaraleiðbeinendur (FIBA Referees Instructors). Þetta þriggja daga námskeiðið var að þessu sinni haldið í Zagreb í Króatíu. Þarna voru samankomnir ríflega 50 dómaraleiðbeinendur frá 45 löndum álfunnar sem munu vera í verkefnum á vegum FIBA í sumar.Meira
Mynd með frétt

Fyrstu drög í Domino‘s deild kvenna og 1. deild kvenna fyrir tímabilið 2019-2020

21 jún. 2019KKÍ hefur birt og sent félögunum fyrstu drög fyrir Domino‘s deild kvenna og 1. deild kvenna fyrir tímabilið 2019-2020.Meira
Mynd með frétt

U15 liðin á CPH-Invitational: Leikir liðanna á fyrsta leikdegi

21 jún. 2019Nú er að hefjast fyrstu leikir hjá okkar U15 ára liðum á Copenhagen-Invitational mótinu í Kaupmannahöfn en öll liðin okkar leika tvo leiki í dag. Í gær ferðuðust liðin út og komu sér fyrir í Farum og framundan eru eftirtaldir leikir.​ Meira
Mynd með frétt

U15 liðin · Copenhagen-Invitational 2019 dagana 21.-23. júní

20 jún. 2019Í morgun lögðu U15 ára lið stúlkna og drengja af stað frá Keflavíkurflugvelli á leiði sinni til Danmörku en þar munu liðin taka þátt í hinu árlega verkefni U15 liða, alþjóðlega mótinu Copenhagen-Invitational, sem fer fram í Farum í Kaupmannahöfn. Þar leika liðin okkar fimm leik hvort, en fyrst er leikið í riðlum föstudag og laugardag og svo um sæti á sunnudaginn. Alls fara 18 leikmenn í hvoru liði ásamt þjálfurum liðanna, yfirþjálfara KKÍ, sjúkraþjálfara og tveim dómurum á vegum KKÍ.Meira
Mynd með frétt

Fyrstu drög fyrir Domino's deild karla og 1. deild karla 2019-2020

18 jún. 2019Fyrstu drög voru gefin út í dag.Meira
Mynd með frétt

Rúnar Birgir á fundi yfireftirlitsmanna

12 jún. 2019Rúnar Birgir Gíslason á fundi hjá FIBA þar sem yfireftirlitsmenn á sumarmótum FIBA Europe í sumar hittust.Meira
Mynd með frétt

Afreksbúðir 2019 · Fyrri helgin 8.-9. júní

11 jún. 2019Afreksbúðir KKÍ og Kristals, fyrir leikmann fædda árið 2005, fór fram um helgina í Orgio-höllinni hjá Val að Hlíðarenda. Um 55 leikmenn hjá hvoru kyni voru boðaðir til æfinga og æfðu fjórum sinnum um helgina, tvisvar laugardag og tvisvar sunnudag. Krakkarnir stóðu sig frábærlega um helgina og Kristall frá Ölgerðinni gaf öllum Errea-boli merkta ÍSLAND-KÖRFUBOLTI og KRISTALL sem krakkarnir voru mjög ánægð með.Meira
Mynd með frétt

U20 ára lið karla · Sumarið 2019

6 jún. 2019Ágúst S. Björgvinsson og aðstoðarþjálfarar hans, Halldór Steingrímsson og Oddur Benediktsson, hafa valið 12 manna landslið U20 karla fyrir verkefni sumarsins. Evrópumót FIBA Europe fer fram í Matoshinos á Portúgal dagana 12.-21. júlí.Meira
Mynd með frétt

U20 ára lið kvenna · Sumarið 2019

6 jún. 2019Þjálfari og aðstoðarþjálfarar U20 ára liðs kvenna hafa valið sitt endanlegt lið fyrir sumarið. 12 leikmenn fara á Evrópumót FIBA Europe sem fram fer í sumar í Prishtina í Kosóvó dagana 3.-11. ágúst. Þar hefur Ísland leik í riðli Pétur Már Sigurðsson er þjálfari liðsins og honum til aðstoðar eru Ólafur Jónas Sigurðsson og Danielle Rodriguez. Meira
Mynd með frétt

Æfingahópur barna með sérþarfir verðlaunuð af KKÍ, ÍF og Errea

5 jún. 2019Í gær, þriðjudaginn 4. júní, kom góður hópur saman í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Tilefnið var að að KKÍ, ÍF og Errea afhentu börnum með sérþarfir sem hafa æft körfubolta í vetur landsliðsbúning merktan hverjum og einum ásamt landsliðs hettupeysu merkta ÍSLAND-KÖRFUBOLTI og var mikil ánægja hjá krökkunum með gjafirnar. Þetta er í fyrsta sinn sem krakkar með sérþarfir æfa skipulega körfubolta en þau hafa æft hjá Haukum að Ásvöllum í Ólafssal. Kristinn Jónasson og Thelma Þorbergsdóttir komu verkefninu af stað og hafa stýrt því með dugnaði sínum og áhuga.Meira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Kvennaliðið hlýtur silfur og karlaliðið brons

1 jún. 2019Nú eru öllum leikjum Íslands lokið á Smáþjóðaleikunum 2019 í Svartfjallalandi og eftir tvo sigurleiki hjá okkar liðum á karla og kvennaliði Kýpverja þá er ljóst að kvennaliðið hafnar í öðru sæti, með einn tapleik gegn heimastúlkum og fjóra sigurleiki og strákarnir lenda í þriðja sæti með tvo sigra og tvö töp, sigra gegn Möltu og Kýpur og töp gegn Lúxemborg og Svartfjallalandi. Verðlaunafhending fer fram í kvöld og birtum við myndir af því á facebook-síðu okkar á eftir ásamt umfjöllunum um leikina tvo.Meira
Mynd með frétt

Úrvalsbúðir · Fyrri helgin 1.-2 júní

31 maí 2019Um helgina hafa um 750 ungir leikmenn drengja og stúlkna verið boðuð til æfinga í Úrvalsbúðum KKÍ en síðustu sumur hefur KKÍ staðið fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshóp ungmenna. Þangað hafa leikmenn verið boðaðir af þjálfurum sínum úr hverju félagi og fengið boðsbréf sent heim. Úrvalshópurinn er undanfari yngri landsliða Ísland þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt vel völdum gestaþjálfurum fara yfir ýmis tækniatriði og stjórna stöðvaæfingum þar sem meðal annars verða æfð skottækni, sendingar, boltameðferð og sóknarhreyfingar.Meira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Ísland lagði lið Mónakó í keppni kvenna

31 maí 2019Einn leikur fór fram í dag í keppni kvenna á Smáþjóðaleikunum en íslenska liðið lék gegn liði Mónakó. Stelpurnar okkar tóku sér fyrsta leikhlutann í að hitna og koma sér í gang en staðan var 26:23 fyrir Ísland. Í öðrum leikhluta var allt annað að sjá vörn okkar stelpna sem settu í lás og sóttu mun ákveðnara hinum megin á vellinum. Staðan í hálfleik 51:28 og ljóst í hvað stefndi. Næsti leikhluti fór 18:13 og sá síðasti 22:18 og öruggur 91:59 sigur í höfn. Allir leikmenn liðsins komust á blað í leiknum í dag. Embla Kristínardóttir var stigahæst með 14 stig. Helena Sverrisdóttir setti 12 og tók 9 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir setti einnig 12 stig og tók 4 fráköst og Hallveig Jónsdóttir var með 10 stig. Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira