Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

KKÍ Þjálfaranámskeið 2.a. í Ólafssal í Schenker Höllinni í Hafnarfirði.

31 maí 2019Um helgina fór fram KKÍ Þjálfaranámskeið 2.a. í Ólafssal í Schenker Höllinni í Hafnarfirði.Meira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Leikdagur 4

31 maí 2019Í dag er einn leikur á dagskránni á Smáþjóðaleikunum 2019. Kvennaliðið leikur gegn Mónakó kl. 09:00 að íslenskum tíma í dag en strákarnir eiga frídag í dag og leika lokaleik sinn á morgun laugardag, gegn Kýpur, líkt og stelpurnar sem mæta einnig Kýpur. ​​ #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Úrslit á leikdegi þrjú

30 maí 2019Keppni hélt áfram á Smáþjóðaleikunum 2019 í Svartfjallalandi í dag og áttu okkar lið tvo leiki í dagskránni. Stelpurnar byrjuðu daginn á leik gegn Lúxemborg en fyrirfram var búist við að þær ásamt Svartfjallalandi yrðu okkar helstu andstæðingar á mótinu. Stelpurnar okkar byrjuðu vel og fylgdu því eftir frá fyrstu mínútu og höfðu töglin og höldin á andstæðingum sínum. Staðan eftir fysta leikhluta var 19:9 og svo 36:21 í hálfleik. Hildur Björg byrjaði vel með 16 stig í hálfleik og Hallveig kom sterk inn með 8 stig og 7 fráköst. Í seinni hálfleik héldu okkar stelpur áfram og lönduðu flottum sigri 76:48. Þær eiga eftir tvo leiki á mótinu, gegn Mónakó á morgun og svo á laugardaginn gegn Kýpur.Meira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Leikdagur 3

30 maí 2019Í dag er komið að þriðja leikdegi á Smáþjóðaleikunum 2019 sem fram fara í Svartfjallalandi. Fyrst leika stelpurnar kl. 11:15 að íslenskum tíma gegn Lúxemborg og svo strákarnir kl. 18:00 að íslenskum tíma gegn Svartfjallalandi. Því miður er ekki lifandi tölfræði en hún er tekin á leikvellinum fyrir liðin og setjum við inn hálfleikstölur og lokatölur á facebook-síðu KKÍ jafn óðum og hægt er. #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Úrslit á leikdegi tvö

29 maí 2019Í dag hélt keppni í körfuknattleik áfram og áttu okkar lið sitthvorn leikinn. Niðurstaðan varð einn sigur og eitt tap. Strákarnir hófu leik gegn Möltu. Okkar menn byrjuðu vel og voru 22:14 yfir eftir fyrsta leikhluta og 34:21 í hálfleik. Seint í þriðja leikhluta var Ísland 49:30 yfir en Malta setti síðustu 8 stigin og minnkaði muninn. Þeir héldu áfram að sækja í framhaldinu og voru komnir með nokkura stiga forskot þegar rúmar þrjár mínútur lifðu af leiknum. Ísland sýndi mikin karakter með að koma sér inn í leikinn aftur og voru þrem stigum yfir þegar rúmar 6 sekúndur voru eftir. Malta jafnaði og lokaskot Íslands geigaði og því þurfi að framlengja. Meira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Leikdagur 2

29 maí 2019Í dag miðvikudag 29. maí er komið að öðrum leikdegi liðanna okkar á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Karlalandsliði hefur leik kl. 15:30 að staðartíma (13:30 að íslenskum) og leikur gegn Möltu. Kvennalandsliðið mætir heimastúlkum svo strax á eftir kl. 17:45 (15:45 að íslenskum tíma). Lifandi tölfræði á að vera frá leikjunum á heimasíðu leikanna, montenegro2019.me en því miður voru leikirnir í gær ekki beint en vonandi ná mótshaldarar að laga það fyrir leiki dagsins. Fréttir af leiknum og myndir detta svo inn á facebook-síðu KKÍ og Instagram KKÍ á morgun á meðan leikjunum stendur.Meira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Úrslit dagsins

28 maí 2019Í dag fóru fram fyrstu leikir mótsins hjá okkar landsliðum. Stelpurnar hófu leik gegn Möltu á þessum leikum. Stelpurnar okkar komu virkilega vel stemmdar til leiks og höfðu þjálfarar liðsins, þeir Benedikt og Halldór Karl, undirbúið liðið vel því okkar stelpur vissu heilmargt um leikstíl og leikmenn liðsins og sáu meistarar síðustu leika aldrei til sólar gegn Íslandi. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 21:9 og í hálfleik var staðan 41:16 okkar stelpum í vil sem voru að leika mjög góða vörn og sóttu á mörgum leikmönnum. Skemmst er frá því að segja að öruggur sigur var niðurstaðan, 61:35. Stigahæstar í dag voru Þóra Kristín Jónsdóttir, Haukum og Hallveig Jónsdóttir, Val, sem voru með 11 stig hvor. Helena Sverrisdóttir, Val, var svo með 10 stig og 9 fráköst.Meira
Mynd með frétt

STJARNAN ER ÍSLANDSMEISTARI Í MINNIBOLTA 11 ÁRA DRENGJA 2019!

28 maí 2019Helgina 18.-19. maí var leikið úrslitamót í minnibolta 11 ára drengja 2019 í Höllinni á AkureyriMeira
Mynd með frétt

ÍR ER ÍSLANDSMEISTARI Í MINNIBOLTA 11 ÁRA STÚLKNA 2019!

28 maí 2019Helgina 18.-19. maí var leikið úrslitamót í minnibolta 11 ára stúlkna 2019 í Síðuskóla á AkureyriMeira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Fyrsti leikdagur á morgun þriðjudag

27 maí 2019Á morgun þriðjudag er komið að fyrsta leikdegi liðanna okkar á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Kvennalandsliðið mætir landsliði Möltu í fyrsta leik kl. 11:00 að staðartíma (09:00 heima á Íslandi). Strákarnir okkar eiga svo leik kl. 13:15 að staðartíma gegn Lúxemborg (11:15 að íslenskum tíma). Lifandi tölfræði á að vera frá leikjunum á heimasíðu leikann montenegro2019.meMeira
Mynd með frétt

Smáþjóðaleikarnir 2019 · Íslenski hópurinn í körfuknattleik á leikunum

26 maí 2019Í dag heldur íslenski hópurinn sem fer á Smáþjóðaleikana 2019 á vegum ÍSÍ og KKÍ en alls fara 35 einstaklingar í keppni í körfuknattleik, leikmenn, þjálfarar og fylgdarlið. Fréttir af mótinu verða hér á kki.is og á samfélagsmiðlum KKÍ. Heimasíða leikanna er: montenegro2019.me Karlalandsliðið leikur fjóra leiki á mótinu, gegn landsliðum Möltu, Lúxemborg og Svartfjallalands fyrstu keppnisdagana 28.-30. maí. Frídagur verður þann 31. maí og svo er lokaleikur liðsins 1. júní gegn liði Kýpur. Kvennaliði leikur fimm leiki á mótinu gegn liði Möltu, Svartfjallalandi, Lúxemborg, Mónakó og Kýpur og leikið er alla daga 28. maí-1. júní í keppni kvenna.Meira
Mynd með frétt

Kosningar og þing hjá FIBA Europe um helgina

23 maí 2019Árlegt þing FIBA Europe stendur nú yfir í München í Þýskalandi. Þingið í ár er kosningaþing en á fjögurra fresti er kosið í helstu embætti hjá sambandinu. Þrír einstaklingar bjóða sig fram til forseta en það er sitjandi forseti Turgay Demirel frá Tyrklandi, Cyriel Coomans fra Belgíu, sem er einn af þrem varaforsetum sambandsins, og Dejan Tomasevic frá Serbíu sem er framkvæmdarstjóri körfuknattleikssambands Serbíu. Kosið er í 21 sæti i stjórn sambandsins en það eru 38 einstaklingar í kjöri. Hver aðildarþjóð FIBA Europe má tilnefna einn einstakling í stjórnina. Hannes S. Jónsson formaður KKI hefur verið í stjórninni á því kjörtímabili sem nú er að ljúka og er hann aftur í framboði. Hannes og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir varaformaður KKÍ eru fulltrúar Íslands á þinginu en því lýkur á laugardag með kosningum. #korfuboltiMeira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið: 1.a. dagana 31.maí-2. júní

22 maí 2019KKÍ þjálfari 1.a. fer fram dagana 31. maí. - 2. júní 2019. Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13.5 klukkutímar. Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. KKÍ þjálfari 1.a gildir sem 25% af lokaeinkunn á námskeiðinu. Þjálfarar sem hafa lokið 1.a. eru með leyfi til að þjálfa minnibolta 9 ára og yngri. Hér fyrir neðan er hægt að skrá sig á þjálfaranámsekið 1.a. Þátttökugjald fyrir 1.a. er 20.000 kr. ef greitt er fyrir 24. maí. Eftir 24. maí er þátttökugjaldið 25.000 kr.Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið KKÍ: 2.a. um helgina · Rado Trifunović aðalfyrirlesari

22 maí 2019Um helgina fer fram KKÍ Þjálfari 2.a. námskeiðið í Ólafssal að Ásvöllum í Hafnarfirði. Rado Trifunović verður aðalkennarinn á námskeiðinu en hann er aðalþjálfari Evrópumeistara Slóveníu. Hann var aðstoðarþjálfari liðsins á EuroBasket 2017. Þar lék Slóvenía gegn Íslandi meðal annars í riðlakeppninni í Finnlandi og enduðu svo með að standa uppi sem Evrópumeistarar eftir úrslitakeppnina í Tyrklandi. Eftir mótið tók hann við sem aðalþjálfari. Það þarf því ekki að fara mörgum orðum um hversu frábært það er að fá Rado til landsins en nú býðst íslenskum þjálfurum að sitja námskeið með honum ásamt íslenskum gestafyrirlesurum. Meira
Mynd með frétt

GSSE 2019: Landslið karla á Smáþjóðaleikunum

22 maí 2019Þjálfarar landsliðs karla í körfuknattleik hafa nú valið sitt lokalið fyrir Smáþjóðaleikana 2019 sem hefjast 28. maí í Svartfjallalandi. Finnur Freyr Stefánsson hefur verið þjálfari liðsins í undirbúningnum og verður aðalþjálfari liðsins á mótinu og aðstoðarþjálfari hans Baldur Þór Ragnarsson. Craig Pedersen þjálfari átti ekki heimangegnt í verkefnið og því verða Finnur Freyr og Baldur Þór með liðið á leikunum líkt og fyrir tveim árum á síðustu leikum. Karlalandsliðið leikur gegn landsliðum Möltu, Lúxemborg og Svartfjallalands fyrstu keppnisdagana 28.-30. maí. Frídagur verður þann 31. maí og svo er lokaleikur liðsins 1. júní gegn liði Kýpur. Í liðinu nú eru tveir nýliðar. Það eru þeir Hilmar Smári Henningsson frá Haukum og Halldór Garðar Hermannsson frá Þór Þorlákshöfn. Landsliðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum á leikunum:Meira
Mynd með frétt

U20 lið Íslands · Æfingahópar fyrir sumarið 2019

21 maí 2019U20 æfingahópar koma saman í dag og hefja æfingar sínar fyrir sumarið. Framundan eru evrópumót FIBA. Karlaliðið leikur í Matoshinos á Portúgal dagana 12. júlí - 21. júlí og stelpurnar leika í Pristhina í Kosóvó dagana 3. - 11. ágúst. Meira
Mynd með frétt

Nokkur sæti laus á Körfuboltabúðir Vestra 2019

21 maí 2019Elleftu Körfuboltabúðir Vestra verða settar eftir sléttar tvær vikur. Nokkur sæti eru laus!Meira
Mynd með frétt

Málþing: Hvernig hægt er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi

20 maí 2019Fimmtudaginn 23. maí nk. standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir opnum viðburði um hvernig hægt er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi. Viðburðurinn fer fram kl. 15:30-16:45 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, salur-E. Léttar veitingar í boði. Starfsfólk íþróttahreyfingarinnar er sérstaklega hvatt til þess að mæta.Meira
Mynd með frétt

BREIÐABLIK ER ÍSLANDSMEISTARI Í UNGLINGAFLOKKI KARLA 2019!

20 maí 2019Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í unglingaflokki karla í Mustad-höllinni á seinni úrslitahelgi yngri flokka 2019.Meira
Mynd með frétt

GRINDAVÍK ER ÍSLANDSMEISTARI Í 10. FLOKKI STÚLKNA 2019!

20 maí 2019Um helgina var leikið til úrslita á íslandsmótinu í 10. flokki stúlkna í Mustad-höllinni á seinni úrslitahelgi yngri flokka 2019. Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira