6 maí 2021FIBA stendur fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem þema keppninnar í ár er „Urban Culture and Basketball“ sem flokka mætti hluti undir eins og götukörfubolta, tjáningu leikmanna í klæðaburði og leikstíl, jafnrétti kynja og þjóðþætta og ýmsar tónlistarstefnur og götutísku sem dæmi. 

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið og taka þátt geta skoðað nánar á heimasíðu samkeppninnar hér fyrir neðan en vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrstu sætin. Hægt verður að taka þátt og senda inn myndir, allt að þrjár myndir hver þátttakandi, til og með miðnættis 18. júní 2021.

photocontest.fiba.basketball/en/