Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Domino's deild karla hefst í kvöld!

3 okt. 2019Í kvöld er komið að stóru stundinni þegar Domino's deild karla tímbilið 2019-2020 hefst. Fjórir leikir fara fram í kvöld og verður leikur Hauka og nýliða Þórs Akureyri sýndur beint frá Hafnarfirði á Stöð 2 Sport. Nýliðar Fjölnis fá heimaleik gegn Val í fyrstu umferð en Fjölnir lék síðast í efstu deild árið 2015. ​ Á morgun föstudag mætast svo Þór Þ. og Stjarnan kl. 18:30 og KR og Grindavík kl. 20:00 og verða báðir leikirnr í beinni á Stöð 2 Sport.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna hefst í kvöld!

2 okt. 2019Í kvöld er komið að stóru stundinni þegar Domino's deild kvenna tímbilið 2019-2020 hefst. Heil umferð fer fram í kvöld og verður leikur KR og Keflavíkur sýndur beint frá DHL-höllinni. Nýliðar Grindavíkur fá heimaleik gegn íslandsmeisturum Vals í fyrstu umferð en Grindavík lék síðast í efstu deild árið 2017. Meira
Mynd með frétt

Keflavík 90 ára

1 okt. 2019Sunnudaginn 29. september varð Keflavík, Íþrótta-og Ungmennafélag, 90 ára og hélt að því tilefni afmælishóf í Íþróttahúsi sínu Blue-höllinni að Sunnubraut. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, varaformaður KKÍ, mættu í afmælið, óskuðu félaginu til hamingju með áfangann og ræddu hversu stóran og og mikilvægan þátt Keflavík hefur átt í íslenskum körfbolta nánast frá upphafi körfunnar hér á landi. Einnig þökkuðu þau öllum þeim fjölmörgu einstaklingum hafa starfað fyrir félagið fyrir þeirra mikilvæga þátt í sjálfboðaliðastarfi körfuboltans sem og fyrir bæjarfélagið, starf sjálfboðaliðans verður seint eða aldrei metið til fjár en hverju félagi er mikilvægt að hafa öflugt fólk sem sinnir sínu starfi félagi sínu og bæjarfélagi til heilla.Meira
Mynd með frétt

Domino's deild karla · Spá formanna, fyrirliða og þjálfara

30 sep. 2019Í dag var kynnt spá félaganna um lokastöðuna í deildinni sem hefst á fimtudaginn kemur með fyrstu leikjunum en á föstudaginn klárast svo fyrsta umferðin. Haldinn var blaðamannafundur á Hard Rock í Lækjargötunni í dag og þar voru fulltrúar liðanna mættir til að spjalla við fjölmiðla. Samkvæmt henni verður KR deildarmeistari og deildarmeistarar síðasta árs, Stjarnan þar á eftir. Samkvæmt spá formanna, fyrirliða og þjálfara verður lokastaðan í vetur þessi í Domno's deild karla: ​Meira
Mynd með frétt

Domino's deild kvenna · Spá formanna, fyrirliða og þjálfara

30 sep. 2019Í dag var kynnt spá félaganna um lokastöðuna í deildinni sem hefst á miðvikudaginn kemur með fyrstu umferð. Haldinn var blaðamannafundur á Hard Rock í Lækjargötunni í dag og þar voru fulltrúar liðanna mættir til að spjalla við fjölmiðla. Samkvæmt henni verður Valur deildarmeistari annað árið í röð og KR þar á eftir. Samkvæmt spá formanna, fyrirliða og þjálfara verður lokastaðan í vetur þessi í Domno's deild kvenna:Meira
Mynd með frétt

Meistarar meistaranna 2019

28 sep. 2019Sunnudaginn 29. september verða leikir meistara meistaranna leiknir í Origo-höll Valsmanna. Leikið er til skiptis á heimavelli Íslandsmeistara karla og kvenna, en 2018 fóru leikirnir fram í DHL-höll KR. Leikirnir þetta árið eru: Meistarakeppni karla: 17:00 · KR - Stjarnan Meistarakeppni kvenna: 19:15 · Valur - Keflavík Leikirnir verða í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.Meira
Mynd með frétt

Geysisbikarkeppni yngri flokka - 32 liða úrslit

25 sep. 2019Hinn geðþekki fjölmiðlamaður Kjartan Atli Kjartansson dró í 32 liða úrslit í Geysisbikarkeppni KKÍ á skrifstofu KKÍ í dag. Að þessu sinni var dregið í þremur flokkum, 9. og 10. flokki drengja og drengjaflokki, en í 9. og 10. flokki stúlkna, stúlknaflokki og unglingaflokki karla hefst bikarkeppnin ekki fyrr en í 16 liða úrslitum.Meira
Mynd með frétt

Kvenndómarar í boltagreinum - áskoranir og tækifæri

20 sep. 2019Í tilefni af haustfundi dómaranefndar KKÍ munu, finnsku FIBA dómararnir, Kati Nynas og Karolina Andersson halda erindi um stöðu kvenndómara í boltagreinum. Fyrirlestur þeirra, sem ber heitið Kvenndómarar í boltagreinum – áskoranirog tækifæri, verður haldinn í fimmtudaginn 26. september kl. 12:00 í stofu M-102 í Háskólanum í Reykjavík og er erindið öllum opið.Meira
Mynd með frétt

HM 2019: Spánn eru heimsmeistarar!

16 sep. 2019Spánverjar eru heimsmeistarar í körfuknattleik árið 2019 eftir úrslitaleikinn í gær þar sem þeir mættu Argentínu. Spánverjar sýndu mátt sinn og höfuð nokkuð öruggan 95:75 sigur í lokaleik mótsins. Þetta var annar heimsmeistaratitill Spánverja en sá fyrri kom fyrir 13 árum í Japan. Þar með er Spánn komið í hóp fárra liða sem hafa unnið titilinn tvisvar sinnum eða oftar. Tveir leikmenn í liði Spánar voru í sigurliðinu 2006 en það eru þeir Marc Gasol og Rudy Fernandez.Meira
Mynd með frétt

HM í Kína 2019 · Riðlakeppninni lokið · Milliriðlar framundan hjá 16 bestu liðunum

5 sep. 2019Heimsmeistaramót karla 2019 stendur nú yfir en mótið fer fram í Kína. Nú er lokið riðlakeppninni og ljóst hvaða lið leika í 16-liða úrslitum í milliriðlum til að fá úr því skorið hvaða lið fara þaðan svo í 8-liða úrslitin. Þá er einnig ljóst nú hvaða lið leika um sæti 17-32 beint eftir riðlakeppnina sem lauk fyrr í dag.Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið KKÍ 3b. fór fram í ágúst

5 sep. 2019Helgina 9. - 11. ágúst sl. voru þeir Ettore Messina og Stan Van Gundy fyrirlesarar á KKÍ 3b. námskeiði sem er hluti af afreksþjálfun innan Menntakerfis KKÍ. Námskeiðið var mjög vel sótt og luku 48 þjálfarar við námskeiðið sem þótti takast afar vel. Meira
Mynd með frétt

Þjálfaramenntun KKÍ: Hluti 1.c kenndur helgina 21.-22 september

5 sep. 2019KKÍ þjálfari 1.c fer fram laugardag og sunnudag 21. - 22. september 2019. Staðsetning: Laugardagur: Hlíðarendi, gamli íþróttasalur Vals Sunnudagur: Ásvellir, einn salur í Ólafssal KKÍ þjálfari 1.c er helgarnámskeið og fjarnám. Áhersla er lögð á þjálfun barna 12 ára og yngri í KKÍ 1.c náminu. Hér er lögð meiri áhersla á samvinnu leikmanna en var gert í 1.a. KKÍ þjálfari 1.c gildir sem 40% af lokaeinkunn KKÍ þjálfara 1. Þjálfarar sem hafa lokið öllum prófum og verkefnum 1.a, .b og .c námi útskrifast með KKÍ 1 þjálfara réttindi.Meira
Mynd með frétt

Yngri landslið Íslands sumarið 2019

4 sep. 2019Nú er lokið enn einu stóra landsliðsumri KKÍ en í sumar voru Úrvals- og Afreksbúðir fyrir yngstu iðkendurnar að venju haldnar á tveimur helgum hvor um sig þar sem rúmlega 850 leikmenn voru boðaðir og svo voru æfingar og mót hjá landsliðum drengja og stúlkna í U15, U16, U18 og U20 í sumar. Alls voru leiknir 99 landsleikir á árinu hjá landsliðum KKÍ, þar af 84 hjá yngri liðunum. U15 fór á alþjóðlegt mót í Kaupmannahöfn, U20 á EM FIBA og svo fóru U16 og U18 liðin fyrst á Norðurlandamótið í Finnlandi að venju og í kjölfarið á sín EM mót FIBA. Niðurstaða móta yngri liða KKÍ og fjöldi þátttakenda í hverju verkefni var eftirfarandi árið 2019:Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið KKÍ 1a. fór fram um síðustu helgi

3 sep. 2019Um síðustu helgi luku 22 þjálfarar við námskeiðið KKÍ 1a. sem er hluti af Menntakerfi KKÍ. Á námskeiðinu náði Margrét Sturludóttir þeim merka áfanga að verða fyrst kvenna til þess að kenna við þjálfarnám KKÍ. Meira
Mynd með frétt

Haustfjarnám í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs ÍSÍ

3 sep. 2019Haustfjarnám1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 23. september nk. Námið, sem er fjarnám, er hluti af Menntakerfi KKÍ (almennur hluti) og eru allir þeir sem eiga eftir að sækja námið hvattir til þátttöku.Meira
Mynd með frétt

Opin mót félaganna 2019-2020

2 sep. 2019Upplýsingar um opin minniboltamót félaganna á komandi keppnistímabili má núna finna á heimasíðu KKÍ.Meira
Mynd með frétt

KKÍ þjálfaraspjöldin til sölu á ný

30 ágú. 2019Þjálfaraspjöld eru nú loksins fáanleg hjá KKÍ en framleidd hafa verið ný spjöld fyrir áhugasama körfuknattleiksþjálfara. Spjöldin eru frá Fox40 í Kanada og eru með heilum velli að framan og hálfum að aftan. Með þeim fylgir penni og pennafesting. Verð á spjaldi er 6.000 kr. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa sér spjald geta millifært og sent kvittun á kki@kki.is eða komið á opnunartíma skrifstofunnar í íþróttamiðstöðinni í Laugardal sem staðsett er að Engjavegi 6 (við hliðina á Laugaradalshöllinni) og greitt með korti eða reiðufé.Meira
Mynd með frétt

KKÍ kynnir tölfræðinámskeið fyrir upphaf tímabilsins 2019-2020

29 ágú. 2019Tölfræði námskeið KKÍ fer fram laugardaginn 21. september milli kl. 10:00-14:00 og fer fram í fundarsal í andyri nýju Laugardalshallarinnar (bíósalurinn). Námskeiðið er opið öllum og er hugsað fyrir bæði nýja og óvana tölfræðiskrásetjara sem og þá sem stattað hafa áður og ætla að halda áfram í vetur frá fyrri árum. Námskeiðið er því mikilvægt fyrir öll félög í efstu tveim deildum sem verða með lifandi tölfræði í vetur frá sínum heimaleikjum. Hér geta nýjir aðilar lært grunninn og orðið tilbúnir til að hefja störf á komandi tímabili og reynslumeiri stattarar geta rifjað upp fræðin og miðlað þekkingu sinni einnig. Meira
Mynd með frétt

HM í Kína 2019 · Dagana 31. ágúst.-15. september

26 ágú. 2019Eftir fjóra daga hefst fyrsti leikurinn á HM karla 2019 sem fram fer í Kína 31. ágúst til 15. september. 32 lið leika í átta fjögura liða riðlum um heimsmeistaratitilinn. Frá Evrópu leika Tékkland (sem lék með Íslandi í riðli í fyrstu umferð undankeppninnar), Pólland, Tyrkland, Rússland, Grikkland, Svartfjallaland, Spánn, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Serbía og Litháen. Meira
Mynd með frétt

Úrvalsbúðir · Seinni helgin 24.-25. ágúst

23 ágú. 2019Um helgina hafa um 750 ungir leikmenn drengja og stúlkna verið boðuð til æfinga í Úrvalsbúðum KKÍ en síðustu sumur hefur KKÍ staðið fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshóp ungmenna. Þangað hafa leikmenn verið boðaðir af þjálfurum sínum úr hverju félagi og fengið boðsbréf sent heim. Úrvalshópurinn er undanfari yngri landsliða Ísland þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt vel völdum gestaþjálfurum fara yfir ýmis tækniatriði og stjórna stöðvaæfingum þar sem meðal annars verða æfð skottækni, sendingar, boltameðferð og sóknarhreyfingar.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira