6 feb. 2017Framundan í vikunni og um helgina er Maltbikarhelgin 2017 þar sem úrslitaleikir í bikarkeppni KKÍ, Maltbikarnum, verða háðir í Laugardalshöll.
Glæsileg umgjörð verður í Höllinni frá miðvikudegi til sunnudags þar sem verður leikið við bestu aðstæður í öllum flokkum.
8 leikir verða í beinni á RÚV og verða 5 yngri flokka leikir allir sýndir beint á ruv.is á netinu.
Miðasala á alla leiki meistaraflokkanna fer fram á tix.is hérna en selt er inn á hvern leik fyrir sig (húsið rýmt milli leikja í undanúrslitum og úrslitum).
Meira