29 sep. 2017

Að venju munu árlegir leikir meistara meistaranna fara fram í ár fyrir upphaf deildarkeppni Domino's deildanna hjá konum og körlum, en leikirnir marka jafnan upphafið á tímabilinu ár hvert.
Í ár verður leikið á heimavelli íslandsmeistara kvenna og fara því leikirnir fram í TM-höllinni í Keflavík. Leiktímar verða 17:00 hjá körlum og 19:15 hjá konum.

Miðaverð á báða leikina saman er 1.500 kr. fyrir 16 ára og eldri, frítt er fyrir 15 ára og yngri.

Leikur karla fer fram kl. 17:00 og munu íslands- og bikarmeistarar KR leika gegn fulltrúum bikarkeppninnar, Þór Þorlákshöfn. 
Hjá konum hefst leikurinn kl. 19:15 en þá munu íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur leika gegn fulltrúum bikarkeppninnar, Skallagrími.

Leikirnir verða í lifandi tölfræði á kki.is sem og þeir verða báðir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

#korfubolti