12 jún. 2018Íslenska landsliðið kemur saman í vikunni til æfinga og undirbúnings fyrir komandi tvo leiki í undankeppni HM 2019 sem fram fara í lok júní og byrjun júlí.
Þetta eru síðustu leikir liðsins í fyrri umferðinni og eftir þá ræðst hvar liðið stendur og hvert framhaldið verður. Ísland leikur í F-riliði og staðan í honum Tékkland (3/1), Ísland (2/2), Finnland (2/2) og Búlgaría (1/3) fyrir lokaleikina sem framundan eru. Þrjú efstu liðin fara áfram í aðra umferð en þá blandast E og F riðlar saman í einn sex liða riðil. Í E-riðli eru Frakkland, Rússland, Bosnía og Belgía. Fjögur efstu úr þeim nýja riðli fara svo á HM í Kína.
Það er því um mjög mikilvæga leiki að ræða fyrir næstu skref íslenska liðsins í keppninni og framhaldinu í að tryggja sér sæti áfram í HM undankeppninni sem og upp á röðun í undankeppni EM 2021.
Báðir í sumar leikirnir fara fram á útivelli. Ljóst er að íslenska liðið þarf sigur gegn Búlgaríu til að gulltryggja sér sæti í annarri umferðinni strax en leikurinn gegn Búlgaríu fer fram þann 29. júní og hefst hann kl. 19:00 að staðartíma eða kl. 16:00 að íslenskum tíma.
Fari leikar svo að Búlgaría vinni leikinn munu þeir alltaf enda fyrir ofan okkur í riðlinum nema að við leggjum Finna í Hartwall-Arena þann 2. júlí í síðari leiknum, en á þann leik eru allir miðar uppseldir og verða þar 11 þúsund manns staddir að hvetja heimamenn áfram gegn tæplega 100 íslendingum, en leikmenn og fylgdarlið U16 og U18 liðanna verða þar stödd á Norðurlandamóti yngri liða í Finnlandi á sama tíma og mæta á leikinn.
Það er því ljóst að leikurinn gegn Búlgaríu er mjög mikilvægur og þar ætla strákarnir að sækja til sigurs.
Æfingahópur Íslands er þannig skipaður í sumar:
Meira