Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Framkvæmdastjóri FIBA Patrick Baumann látinn

14 okt. 2018Framkvæmdastjóri FIBA Patrick Baumann er látinn. Hann varð bráðkvaddur 51 árs að aldri nótt. Patrick hefur um árabil verið í forystu FIBA og sem framkvæmdastjóri unnið ötullega að uppgangi körfuknattleiksins á heimsvísu en undir FIBA heyra álfusvæðin fimm. Að auki átti Patrick sæti í stjórn alþjóðlegu ólimpíunefndarinnar og var mikils metinn innan íþróttahreyfingarinnar. Hannes S. Jónsson þekkti Patrick vel í gegnum sín störf fyrir stjórn FIBA Europe:Meira
Mynd með frétt

Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar 10.10.2018

10 okt. 2018Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir nokkur mál á fundi sínum í vikunni.Meira
Mynd með frétt

Spár þjálfara, formanna og fyrirliða

2 okt. 2018Nú rétt í þessu á fjölmiðla og kynningarfundi KKÍ fyrir Domino's deildirnar voru spár formanna, þjálfara og fyrirliða liða í Domino's deildunum og 1. deildum karla og kvenna fyrir tímabilið 2018-2019 kynntar. Hér fyrir neðan má sjá hversu mörg stig hvert lið fékk í kosningunni.Meira
Mynd með frétt

Domino's deildirnar 2018-2019 · Kynningarfundur í dag

2 okt. 2018Hinn árlegi kynningarfundur fyrir Domino's deildir karla og kvenna verður haldinn í fundarsölum nýju Laugardalshallarinnar i dag þriðjudaginn 2. október í hádeginu. Þangað hafa verið boðaðir fjölmiðlar sem og þjálfarar, forsvarsmenn og leikmaður frá hverju liði í Domino's deildunum í vetur. Á fundinum verður deildin kynnt fyrir veturinn, spá þjálfara, fyrirliða og formanna opinberuð og þjálfarar og leikmenn allra liða í deildum karla og kvenna verða á staðnum klárir í viðtöl og myndatökur. Einnig verður spá fyrir 1. deildirnar kynnt líkt og hjá Domino's deildar liðunum.Meira
Mynd með frétt

HM kvenna 2018: Bandaríkin heimsmeistarar þriðja skiptið í röð

1 okt. 2018Bandaríkin urðu í gær heimsmeistarar kvenna í körfuknattleik, í þriðja skipti i röð, eftir sigur gegn Ástralíu í úrslitaleiknum sem fram fór á Tenerife á Spáni. Lokatölur 73:56. Spánn lagði Belgíu í leiknum um bronsið 67:60. Breanna Stewart frá Bandaríkjunum var valin besti leikmaður mótsins (MVP) og með henni í úrvalsliðinu var liðsfélagin hennar Diana Taurasi, Emma Meesseman frá Belgíu, Liz Cambage frá Ástralíu og Astou Ndour frá Spáni. Meira
Mynd með frétt

Meistarar meistaranna 2018 · Íslandsmeistarar gegn Bikarmeisturum

30 sep. 2018Í dag, Sunnudaginn 30. september, fara fram árlegu leikir Meistara meistaranna og marka þeir upphaf tímabilsins 2018-2019 að þessu sinni. Um er að ræða árlega leiki milli íslandsmeistara- og bikarmeistara ársins. Skv. reglu þá er leikið til skiptis á heimavelli íslandsmeistara karla og kvenna til skiptis og í ár er komið að íslandsmeisturum karla og fara því leikirnir fram í DHL-höllinni í Vesturbænum á heimavelli íslandsmeistara KR.Meira
Mynd með frétt

Íslandsmótið hefst í dag

28 sep. 2018Í dag hefst keppni á Íslandsmótinu en þá eru fyrsti leikir vetrarins í unglingaflokki karla, 2. deild karla og 10. flokki drengja.Meira
Mynd með frétt

Körfuboltaæfingar fyrir börn með þroskahömlun

25 sep. 2018ÍF í samstarfi við Hauka hafa sett á fót æfingar fyrir börn með þroskahömlun á aldrinum 6-12 ára. Kristinn Jónasson mun stýra æfingum en hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Haukum að undanförnu og hefur þegar sótt námskeið erlendis til þess að undirbúa þessa starfsemi á vegum FIBA. Æft verður á sunnudögum í vetur í nýja körfuboltahúsinu á Ásvöllum, Ólafssal, milli kl. 10:00-11:00. ​Meira
Mynd með frétt

HM kvenna 2018

24 sep. 2018Á laugardaginn var hófst keppni á HM kvenna 2018 en keppnin er haldin á Tenerife á Spáni. Alls eru 16 lið sem leika til úrslita í fjórum riðlum en það eru bestu lið hverrar álfu innan FIBA. Frá Evrópu eru það sex efstu liðin frá EuroBasket Women sl. haust sem taka þátt, Evrópumeistarar Spánar og svo Frakkland, Belgía, Grikkland, Tyrkland og Lettland. Leikið verður út september en úrslitaleikurinn sjálfur fer svo fram 30. september. Meira
Mynd með frétt

Íslenskir dómarar í verkefnum fyrir FIBA

20 sep. 2018Um leið og keppnistímabilið fer að hefjast á næstunni hér heima þá er það nú þegar hafið erlendis og mun verkefnum FIBA dómara og FIBA eftirlitsmanna okkar aukast á næstunni. Í landsleikjaglugganum í síðustu viku var Rúnar Birgir Gíslason eftirlitsmaður í Kaupmannahöfn í spennandi landsleik milli Danmerkur og Svíþjóðar í forkeppni EuroBasket 2021, en Rúnar Birgir er á sínu öðru ári sem virkur eftirlitsmaður FIBA. Fyrir eigum við íslendingar einnig Pétur Hrafn Sigurðsson sem eftirlitsmann FIBA og hefur hann verið við störf undanfarin ár. Í kvöld fer fram merkilegur leikur í Kongsberg í Noregi, leikur noregsmeistara Kongsberg Miners gegn meisturum Úkraínu Cherkaski Mavpy, sem mætast í fyrri leik sínum í forkeppni EuroCup. Hann er merkilegur fyrir þær sakir að tveir íslendingar verða við störf í leik á vegum FIBA og að þetta er fyrsti evrópuleikurinn hjá norsku liði í 16 ár. Meira
Mynd með frétt

Haustfjarnám 2018 - Þjálfaramenntun ÍSÍ

18 sep. 2018Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 24. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni (Þjálfaramenntun KKÍ 1, 2 og 3 stig)Meira
Mynd með frétt

Forkeppni EM karla 2021: Þriggja stiga tap gegn Portúgal

17 sep. 2018Íslenska karlalandsliðið lék í gær gegn Portúgal á útivelli og fór leikurinn fram í bænum Sines. Þetta var fyrsti leikur liðsins í forkeppni EuroBasket 2021. Leikurinn fór jafnt af stað og Ísland leiddi með fimm stigum eftir 1. leikhluta en heimamenn með einu stigi í hálfleik. Ísland átti ekki góðan kafla í 3. leikhluta en þar vann Portúgal leikhlutann með 10 stigum og var á tímabili með ellefu stiga forskot í fjórða leikhluta.Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Portúgal-Ísland í dag kl. 17:30 · Forkeppni EuroBasket 2021

16 sep. 2018Í dag er komið að fyrsta leik landsliðs karla í forkeppni EuroBasket 2021. Ísland mætir Portúgal í bænum Sines í dag, sunnudaginn 16. september kl. 18:30 að staðartíma eða kl. 17:30 að íslenskum tíma. Íslenska liðið hélt út á föstudaginn og æfði í gær og undirbjó sig fyrir leikinn í dag. Lifandi tölfræði verður á heimasíðu keppninnar sem og BEIN NETÚTSENDING á Youtube-Rás FIBA á sama stað: ​ Landslið Íslands í dag er þannig skipað:Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Liðið sem leikur gegn Portúgal á sunnudaginn

13 sep. 2018Craig Pedersen og aðstoðarþjálarar hans hafa valið þá leikmenn sem leika gegn Portúgal í forkeppni EuroBasket 2021. Leikurinn fer fram í borginni Sines á Portúgal á sunnudaginn kemur þann 16. september, en þetta er fyrsti leikur liðsins í forkeppninni. Tveir leikmenn eru að fara leika sína fyrstu landsleiki í mótum á vegum FIBA með A-landsliðinu, það eru þeir Collin Pryor og Kristinn Pálsson. Kristinn lék á Smáþjóðaleikunum 2017 og hann ásamt Collin voru í liðinu í tveim vináttuleikjum gegn Noregi nú í upphafi mánaðarins.Meira
Mynd með frétt

Finnur Freyr nýr yfirþjálfari yngri liða KKÍ

13 sep. 2018KKÍ hefur ráðið Finn Frey Stefánsson sem yfirþjálfara yngri landsliða sinna. Finnur Freyr mun næstu þrjú árin ásamt Afreksstjóra KKÍ skipuleggja allt afreksstarf frá Úrvalsbúðum og Afreksbúðum upp U15, U16, U18 og U20 landsliðanna. Finnur Freyr tekur við að Einari Árna Jóhannsyni sem á undanförnum árum sinnt því starfi. Einar Árni hefur komið nálægt, með einum eða öðrum hætti, að landsliðsstarfi KKÍ sl. 18 ár og þakkar KKÍ honum kærlega fyrir sín störf í bili.Meira
Mynd með frétt

Haustfundur fyrir nýlega og nýja dómara

11 sep. 2018Á laugardaginn 15. september gengst KKÍ fyrir haustfundi fyrir nýja dómara og þá sem hafa hafið dómgæslu á síðastliðnum árum. Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal frá kl 9-16. Á haustfundinum verður farið yfir margt af því sem nauðsynlegt er fyrir dómara að hafa skilning og þekkingu á. Fyrirlesarar verða alþjóðadómararnir, Davíð Tómas Tómasson, Jóhannes Páll Friðriksson, Kristinn Óskarsson, Leifur Garðarsson og Sigmundur Már Herbertsson. Meðal efnis sem farið er yfir er:Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Liðið sem leikur gegn Noregi í Bergen

1 sep. 2018Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið þá 12 leikmenn sem fara til Noregs á sunnudagsmorguninn en Íslands leikur gegn heimamönnum tvo vináttulandsleiki 2. og 3. september. Leikirnir gegn Norðmönnum eru hluti af 50 ára afmæli norska sambandsins og einnig liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir forkeppni EM 2021 sem leikin verður í landsliðsgluggum vetrarins. Meira
Mynd með frétt

Dómaranefnd kynnir reglubreytingar FIBA

30 ágú. 2018Laugardaginn 15. september kl. 13:00 boðar Dómaranefnd KKÍ til fundar með þjálfurum félaganna vegna nýju reglubreytinganna sem stjórn FIBA samþykkti fyrr í sumar.Meira
Mynd með frétt

Landsliðsæfingahópur karla · Haust 2018

23 ágú. 2018Þjálfari landsliðs karla, Craig Pedersen, og aðstoðarþjálfarar hans Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson, hafa boðað leikmenn til æfinga í lok mánaðarins. Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Noregi í Bergen en norska körfuknattleikssambandið fagnar 50 ára afmæli sínu í ár og bíður Íslandi í heimsókn sem verður um leið liður í undirbúningi Íslands fyrir leiki í forkeppni að EuroBasket 2021 (EM) í vetur. Fyrsti leikur Íslands verður í Portúgal þann 16. september, og svo verða næst tveir leikir í nóvember og tveir í febrúar 2019. Fyrst verður hópur leikmenn boðaðir til æfinga dagana 30.-31 ágúst. Þeir leikmenn sem valdir verða fyrir leikina gegn Noregi æfa svo áfram 1. september og halda svo út til Noregs 2.-4. september. Þeir leikmenn sem ekki verða valdir ljúka þar með í bili sinni þátttöku með landsliðinu fyrir leikinn í landsliðsglugganum í september.Meira
Mynd með frétt

Afreksbúðir KKÍ · Seinni helgin 25.-26. ágúst

20 ágú. 2018Seinni helgi Afreksbúða KKÍ fara fram um næstu helgi. Afreksbúðirnar eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands en þar mun yfirþjálfari ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum. Afreksbúðir í ár eru fyrir ungmenni fædd 2004 og voru leikmenn boðaðir til æfinga í vor á fyrri helgina af yfirþjálfurunum en um 50-60 leikmenn fá boð úr þessum eina árgangi. Yfirþjálfarar Afreksbúða 2018 eru þeir Lárus Jónsson hjá drengjum og Kristjana Eir Jónsdóttir hjá stúlkum. Síðari æfingahelgin verður dagana 25.-26. ágúst og verður æft í íþróttahúsinu á Álftanesi. Dagskrá seinni helgarinnar verður eftirfarandi:Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira