18 feb. 2021Í dag er komið að fyrri leik Íslands í febrúarglugganum í forkeppninni að undankeppni HM2023. Leikið er í Pristhina í Kosovó þar sem liðin fjögur í riðlinum, Ísland, Slóvakía, Kosovó og Lúxemborg eru öll saman komin og leika tvo leiki hvert. Á laugardaginn leika strákarnir okkar lokaleikinn sinn gegn Lúxemborg.
Liðið hefur dvalið í góðu yfirlæti og æft vel síðustu daga. Mikil tilhlökkun er meðal leikmannanna að spila í dag og eru menn staðráðnir í að sækja sigur. Ísland er sem stendur efst í riðlinum en einn sigur myndi gulltryggja sæti í annari umferð sem fram fer í ágúst. Þá munu liðin sem leika yfir helgina í undankeppni EuroBasket 2022 og verða neðst í sínum riðlum koma inn í aðra umferðina og leika um að komast áfram í undankeppni HM sem hefst í haust.
Meira