Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

STJARNAN BIKARMEISTARI 9. FLOKKS STÚLKNA

24 mar. 2024Stjarnan varð í dag bikarmeistari 9. flokks stúlkna eftir sigur á Fjölni í úrslitaleik 53-46. Berglind Hlynsdóttir var valin maður leiksins en hún skilaði 14 stigum, 7 fráköstum, 3 stoðsendingum og 4 stolnum boltum. Til hamingju Stjarnan! Myndir: Bára Dröfn/karfan.is Meira
Mynd með frétt

AÞENA BIKARMEISTARI 12. FLOKKS KVENNA

22 mar. 2024Aþena varða í dag bikarmeistari 12. flokks kvenna eftir sigur á Þór/Hamar í úrslitaleik 71-63. Dzana Crnac var valin maður leiksins en hún skilaði 19 stigum og 3 fráköstum. Til hamingju Aþena! Myndir: Bára Dröfn/karfan.is Meira
Mynd með frétt

ÍR BIKARMEISTARI 12. FLOKKS KARLA

22 mar. 2024ÍR varð í dag bikarmeistari 12. flokks karla eftir sigur á KR í úrslitaleik 95-68. Friðrik Leó Curtis var valinn maður leiksins en hann skilaði 41 stigi, 13 fráköstum og 4 vörðum skotum. Til hamingju ÍR! Myndir: Bára Dröfn/karfan.is Meira
Mynd með frétt

Skrifstofa KKÍ lokuð mánudaginn 25. mars

22 mar. 2024Skrifstofa KKÍ verður lokuð mánudaginn 25. mars, en starfsfólk sambandsins hefur staðið í ströngu síðustu vikuna við framkvæmd VÍS bikarviku KKÍ. Póstum verður svarað eins og kostur gefst. Ef bregðast þarf við vegna leikja mánudagsins er hægt að ná sambandi við Snorri Örn mótastjóra símleiðis.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 21 MARS 2024

21 mar. 2024 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

STJARNAN/KFG BIKARMEISTARI 11. FLOKKS DRENGJA

21 mar. 2024Stjarnan varð í dag VÍS bikarmeistari 11. flokks drengja eftir sigur á Breiðablik í úrslitaleik 106-79. Björn Skúli Birnisson var valinn maður leiksins en hann skilaði 24 stigum, 4 fráköstum, 8 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Til hamingju Stjarnan/KFG! Myndir: Bára Dröfn/karfan.isMeira
Mynd með frétt

KR VÍS BIKARMEISTARI 9. FLOKKS DRENGJA

21 mar. 2024KR varð í dag VÍS bikarmeistari 9. flokks drengja eftir sigur á Stjörnunni í úrslitaleik 56-48. Benóní Stefán Andrason var valinn maður leiksins en hann skilaði 17 stigum, 13 fráköstum og 3 stolnum boltum á 30 mínútum. Til hamingju KR! Myndir: Bára Dröfn/karfan.is Meira
Mynd með frétt

VÍS bikarinn | undanúrslit kvenna

20 mar. 2024VÍS bikarvikan heldur áfram í dag með undanúrslitum kvenna, en framundan er vika af spennandi og áhugaverðum leikjum. Það verða Njarðvík og Keflavík sem mætast í fyrri leik dagsins kl. 17:15 í Laugardalshöll. Klukkan 20:00 er svo undanúrslitaleikur Þórs Akureyri og Grindavík, en liðin sem vinna í dag mætast í bikarúrslitum kvenna kl. 19:00 laugardaginn 23. mars. Miðasala fer fram á stubbur.app og snjalltækjaappinu Stubbur.Meira
Mynd með frétt

Kveðja frá KKÍ · Einar Ólafsson 13.1.1928 - 12.03.2024

20 mar. 2024Einar Ólafsson hlaut heiðurkross KKÍ í febrúar 2001 og er hann einn fimm einstaklinga sem hafa hlotið heiðurskross KKÍ í 63 ára sögu sambandsins. Það sýnir hversu öflugur eldhugi Einar var og á hann mjög stóran þátt í útbreiðslu og kennslu á körfuboltanum hér fyrr á árum. Einar var hlédrægur og lét yfirleitt lítið fyrir sér fara en ávalt tilbúinn að kenna og leiðbeina. Þrátt fyrir háan aldur var hann að mæta á leiki þar til allra síðustu ár og þá aðallega hjá ÍR en einnig mætti hann á einstaka landsleiki. Alltaf var gaman að ræða við hann og finna væntumþykju hans fyrir íþróttinni okkar og KKÍ. Hann vildi sjaldan geri mikið úr sínum afrekum og hversu mikinn þátt hann átti í að efla körfuboltann í landinu sem sýnir svo vel hlédrægni hans fyrir hans góðu störfum. Meira
Mynd með frétt

VÍS bikarvikan hefst í dag | undanúrslit karla

19 mar. 2024VÍS bikarvikan hefst með undanúrslitum karla í Laugardalshöll í dag, en framundan er vika af spennandi og áhugaverðum leikjum. Það verða Álftanes og Tindastóll sem ríða á vaðið, en liðin mætast í undanúrslitum VÍS bikars karla kl. 17:15 í Laugardalshöll. Klukkan 20:00 er svo undanúrslitaleikur Keflavíkur og Stjörnunnar, en liðin sem vinna í dag mætast í bikarúrslitum karla kl. 16:00 laugardaginn 23. mars. Miðasala fer fram á stubbur.app og snjalltækjaappinu Stubbur.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 14 MARS 2024

14 mar. 2024Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Unglingaráðsfundur KKÍ 23. mars

13 mar. 2024Þann 23. mars nk. stendur KKÍ fyrir unglingaráðsfundi, en fundurinn er ætlaður þeim sem koma að barna- og unglingastarfi félaganna. Mörg aðkallandi verkefni eru í starfi hreyfingarinnar og því leiðum við saman áhugasama aðila innan félaganna til að ræða hvernig við viljum skipuleggja og vinna með málefni yngri flokka. Skráning á unglingaráðsfundinn er enn opin, en við höfum einmitt hvatt tengiliði aðildarfélaga til að kynna fundinn innan sinna félaga og hvetja alla þá sem áhuga hafa á þessum málefnum og vilja ræða að koma á fundinn. Hér er skráningarhlekkur á fundinn.Meira
Mynd með frétt

Starf hjá KKÍ til umsóknar

7 mar. 2024Körfuknattleikssamband Íslands leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni til starfa á skrifstofu sambandsins. Starf á skrifstofu KKÍ er afar fjölbreytt enda starfsemi KKÍ viðamikil og hin ýmsu verkefni sem þarf að sinna hverju sinni. Verkefni sem starfsmaður mun sinna eru af ýmsum toga og eru meðal annars: Mótamál, dómaramál, fræðslumál, félagaskipti, afreks- og landsliðsmál sem og annað sem tilfellur hverju sinni.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 6 MARS 2024

7 mar. 2024Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

VÍS Bikarinn 2024 · 19.-24. mars

6 mar. 2024Nú styttist í VÍS Bikarhátíðina þegar úrslit fara fram í öllum flokkum auk undanúrslita meistaraflokka dagana 19.-24. mars. Leikið verður í Laugardalshöllinni í VÍS bikar umgjörð og má búast við spennu og fjöri að venju. Miðasala félaganna á meistaraflokksleiki er hafin hjá félögunum sem taka þátt auk miðasölu á þeirra vegum á STUBB. (www.stubb.is/category/basketball).Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 28 FEBRÚAR 2024

29 feb. 2024Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

EM 2025: Fyrsta leikglugganum lokið

27 feb. 2024Íslenska karlalandsliðið lék sína fyrstu landsleiki í undankeppni EM, EuroBasket 2025, núna í febrúar en í hverjum glugga er leikið heima og að heiman. Næsti landsliðsgluggi fer fram í nóvember á þessu ári þegar leikið verður við Ítalíu tvisvar, fyrst heima 22. nóv. og svo 25. nóv ytra. Að honum loknum kemur síðasti glugginn í febrúar 2025 þegar liðið mætir Ungverjalandi ytra 20. feb. og tekur svo á móti Tyrklandi í lokaleik riðilsins 23. febrúar. Úrslitin febrúar 2024:Meira
Mynd með frétt

EM 2025: Landsliðið gegn Tyrklandi í dag

25 feb. 2024Ísland mætir Tyrklandi í Sinan Erdan-höllinni í Istanbúl í dag kl. 13:00 að íslenskum tíma. Þetta er seinni leikurinn í febrúar glugganum í undankeppni EM, EuroBasket 2025. Uppselt er á leikinn og verða 15.200 manns í húsinu. Leikurinn verður í beinni á RÚV. Íslenska liðið verður þannig skipað í dag: Nafn · Lið · Landsleikir Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði · Stjarnan · 86 Elvar Már Friðriksson · PAOK, Grikklandi · 69 Hilmar Smári Henningsson · Eisbären Bremerhaven, Þýskalandi · 15 Hjálmar Stefánsson · Valur · 21 Jón Axel Guðmundsson · CB Lucentum Alicante · 31 Kristinn Pálsson · Valur · 32 Martin Hermannsson · Alba Berlin, Þýskaland · 74 Orri Gunnarsson · OCS Swans Gmunden, Austurríki · 6 Styrmir Snær Þrastarson · Belfius Mons-Hainaut, Belgíu · 15 Tómas Valur Þrastarson · Þór Þorlákshöfn · Nýliði Tryggvi Snær Hlinason · Bilbao Basket, Spánn · 64 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · Tindastóll · 28 Þjálfari: Craig Pedersen Aðstoðarþjálfarar: Pavel Ermolinskij og Baldur Þór Ragnarsson Sjúkraþjálfari: Valdimar Halldórsson - Atlas Endurhæfing Læknir: Axel Þórisson Liðsstjórn og starfsmenn: Jón Bender, Kristinn Geir Pálsson og Sigrún RagnarsdóttirMeira
Mynd með frétt

EM 2025: Landsliðið gegn Ungverjalandi í kvöld!

22 feb. 2024Nú er allt að verða klárt fyrir leikinn í kvöld þegar Ísland tekur á móti Ungverjalandi í fyrsta leiknum í undankeppni EM, EuroBasket 2025. Leikurinn hefst kl. 19:30 og er uppselt á leikinn. Leikurinn verður einnig í beinni á RÚV2. Landslið Íslands verður þannig skipað í kvöld:Meira
Mynd með frétt

EuroBasket 2025 undankeppnin · Landsliðshópur karla fyrir febrúar leikina

16 feb. 2024Landslið karla hefur verið kallað saman til æfinga og undirbúnings en framundan eru tveir landsleikir í nýrri undankeppni EM, EuroBasket 2025, sem hefst í næstu viku. Landsliðsglugginn stendur yfir dagana 19.-26. febrúar og leikur Ísland sinn fyrri leik í Laugardalshöllinni gegn Ungverjalandi fimmtudaginn 22. febrúar kl. 19:30 og þann síðari í Istanbúl gegn Tyrklandi sunnudaginn 25. febrúar kl. 13:00 að íslenskum tíma (16:00 að staðartíma ytra). RÚV mun sýna báða leikina beint. Ísland er í B-riðli með Tyrklandi, Ítalíu og Ungverjalandi og fara þrjú efstu liðin áfram á lokamót EM haustið 2025 sem haldið verður í fjórum löndum, í Finnlandi, Lettlandi, Póllandi og á Kýpur. Úrslitin fara svo fram í Póllandi. Næstu landsliðsgluggar verða í nóvember 2024 og febrúar 2025. Hægt er að sjá nánar á um mótið á kki.is: kki.is/landslid/karlar/em-2025 Landsliðshópurinn í febrúar: Landsliðshópurinn sem boðaður er til æfinga telur 16 leikmenn. Einn nýliði er í hópnum að þessu sinni en það er Tómas Valur Þrastarson frá Þór Þorlákshöfn. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira