24 okt. 2023Eins og upplýst hefur verið um áður hefur KKÍ unnið að innleiðingu nýs mótakerfis undanfarin misseri. Því miður hefur innleiðingin verið tímafrek og ekki gengið jafn vel og vonast var eftir. Okkur þykir það afar leitt hversu langan tíma innleiðingin hefur tekið og biðjumst afsökunar á öllum þeim óþægindum sem þetta hefur valdið. Áfram verður unnið ötullega að því að mótakerfið sinni þörfum hreyfingarinnar, ásamt því að innleiða þá kosti sem kerfið hefur.
Samhliða vinnu við mótakerfið hefur verið unnið að uppsetningu nýrrar heimasíðu KKÍ. Sú síða bíður þess nú að ákveðnar lausnir tengdar mótakerfinu verði reiðubúnar. Því miður er ekki hægt að tímasetja það almennilega, en reynt verður að hraða þeirri vinnu eins og mögulegt er.
Frekari upplýsingar má lesa í fréttinni með því að smella á Meira >
Meira