1 des. 2016Landsliðsþjálfarar KKÍ hjá U15, U16 og U18 ára liðunum eru búnir að velja og boða þá leikmenn sem eiga að mæta til æfinga milli jóla og nýárs.
Þjálfarar yngri landsliðanna tilkynntu og boðuðu leikmenn með bréfi rafrænt í dag og hafa formenn félaga sem eiga leikmenn í æfingahópunum fengið upplýsingar um valið að auki.
Alls eru 177 leikmenn boðaðir frá 19 félögum KKÍ að þessu sinni. Öll liðin, lið drengja og stúlkna, munu æfa tvisvar sinnum á dag, þrjá daga milli jóla og nýárs. Verið er að ganga frá æfingum þessa dagana og verður æfingadagskrá liðanna birt á kki.is og send til leikmanna.
Meira