22 des. 2016Ísland leikur í A-riðli á lokamóti EM, EuroBasket 2017, sem fram fer í Helsinki dagana 31. ágúst til 6. september næsta haust.
Liðið sem drógst í riðilinn úr 5. styrkleikaflokki er lið Póllands. Leikur Íslands og Póllands fer fram á öðrum leikdegi mótsins, laugardaginn 2. september.
Ísland hefur 14 sinnum mætt Póllandi, nú síðast sumarið 2016 á æfingamóti í Austurríki og þar á undan á æfingamóti í Póllandi fyrir EuroBasket 2015, en í bæði skiptin vann Pólland. Í heildina standa leikar 11:3 fyrir Pólland í sögunni (21% sigurhlutfall Íslands).
Meira