21 nóv. 2016Á morgun þriðjudaginn 22. nóvember er komið að stóru stundinni þegar dregið verður í riðla fyrir lokamót EM, EuroBasket 2017, hjá landsliði karla, en dregið verður kl. 14:00 að íslenskum tíma.
Ísland leikur eins og alþjóð veit í annað skipti í sögu KKÍ á lokamóti Evrópumótsins og mun leika í Finnlandi í byrjun september á næsta ári. Miðasala á leiki Íslands fer fram á www.tix.is.
Drátturinn fer fram í Istanbul í Tyrklandi og verða fulltrúar KKÍ viðstaddir ásamt fulltrúum allra landanna 24 sem taka þátt á EM. Hefð er fyrir því að það land sem mun hýsa úrslitakeppnina sjái um dráttinn en slíkt var gert í Frakklandi fyrir árið 2015.
Meira