Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Dómaranámskeið 23. og 25. ágúst

17 ágú. 2021Mánudaginn 23. ágúst og miðvikudaginn 25. ágúst fer fram net-dómaranámskeið. Athugið að þetta er eitt námskeið sem haldið er á tveimur kvöldum. Áætlað er að námskeiðið standi frá 18:00-22:00 hvorn daginn.Meira
Mynd með frétt

Haukar taka þátt í EuroCup kvenna

17 ágú. 2021Kvennalið Hauka er skráð til leiks í EuroCup kvenna á komandi leiktíð, en dregið verður í undankeppni EuroCup kvenna næstkomandi fimmtudag.Meira
Mynd með frétt

Sigur á fyrsta leikdegi á Norðurlandamóti U18 í Kisakalio

16 ágú. 2021Ísland sigraði Eistland í báðum leikjum dagsins hjá undir 18 ára stúlkna og drengjaMeira
Mynd með frétt

Landslið karla: Naumt tap fyrir Svartfjallandi í öðrum leik liðanna

16 ágú. 2021Ísland lék sinn þriðja leik í kvöld og nú var það síðari leikurinn gegn Svartfjallalandi sem var á dagskránni. Leikurinn í kvöld var fjörugur og hafði Ísland undirtökun lengst af í leiknum. Heimamenn leiddu með tveim stigum eftir fyrsta leikhluta en Ísland var yfir í hálfleik 46:41.Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: ÍSLAND-SVARTFJALLALAND í kvöld

16 ágú. 2021Í kvöld mætast öðru sinni Ísland og Svartfjallaland í forkeppni HM 2023 sem fram fer í Podgorica. Leikurinn verður í beinni á RÚV2. Eftir tvo leiki er Ísland með einn sigur og eitt tap. Tveir leikir eru eftir, í kvöld gegn heimamönnum og svo á morgun aftur gegn Danmörku. Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram.Meira
Mynd með frétt

Norðurlandamót U18 stúlkna og drengja

16 ágú. 2021Fyrstu leikir á Norðurlandamóti U18 landsliða drengja og stúlkna sem fer fram í Kisakallio í Finnlandi eru í dagMeira
Mynd með frétt

Íslenskir dómarar og eftirlitsmenn að störfum fyrir FIBA

15 ágú. 2021Það er ekki aðeins karlalandslið Íslands og yngri lið Íslands sem eru á fullri ferð í Evrópu þessa dagana heldur eru líka FIBA dómarar og eftirlitsmenn Íslands í FIBA-verkefnum. Davíð Tómas Tómasson FIBA dómari, Rúnar Birgir Gíslason FIBA eftirlitsmaður og Kristinn Óskarsson FIBA dómaraleiðbeinandi eru allir við störf erlendis þessa dagana.Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Sigur gegn Danmörku í öðrum leik riðilsins

13 ágú. 2021Ísland vann í kvöld Danmörku í öðrum leik sínum í riðlinum sem er liður að forkeppni HM2023. Lokatölur 91:70 fyrir Ísland en um var að ræða hörku leik sem okkar drengir lönduðu fagmannlega. Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: ÍSLAND-DANMÖRK í kvöld kl 18:00 · Beint á RÚV2

13 ágú. 2021Í kvöld kl. 18:00 að íslenskum tíma er komið að öðrum leik karlalandsliðsins af fjórum í lokaumferð forkeppni HM2023 þegar strákarnir okkar mæta Dönum. Um er að ræða annan leik liðsins í riðlinum en alls munum við mæta Svartfjallalandi tvisvar og Danmörku tvisvar í þessum glugga. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV2 eins og allir leikir liðsins og lifandi tölfræði verður að finna á heimasíðu keppninnar: Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Tap fyrir heimamönnum í Svartfjallalandi í fyrsta leik

12 ágú. 2021Ísland lék í kvöld gegn Svartfjallalandi í sínum fyrsta leik af fjórum í Podgorica í síðari umferð forkeppninnar að undankeppni HM 2023. Heimamenn byrjuð vel og voru átta stigum yfir eftir fyrsta leikhluta. Strákarnir okkar komu vel stemmdir til leiks í öðrum leikhluta og áttu frábæra spretti og unnu leikhlutan 23:25. Meira
Mynd með frétt

HM2023 · Svartfjallaland-Ísland í dag kl. 18:00

12 ágú. 2021Í kvöld kl. 18:00 að íslenskum tíma er komið að fyrsta leik karlalandsliðsins af fjórum í lokaumferð forkeppni HM2023. Þá mætum við heimamönnum í Bemax Arena í Podgorica. Um er að ræða fyrsta leik liðsins í riðlinum en alls munum við mæta Svartfjallalandi tvisvar og Danmörku tvisvar í þessum glugga. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV2 eins og allir leikir liðsins og lifandi tölfræði verður að finna á heimasíðu keppninnar: www.fiba.basketball/basketballworldcup/2023/pre-qualifiers/europe Lið Íslands verður þannig skipað í kvöld:Meira
Mynd með frétt

Landslið Íslands í forkeppninni að HM2023 · Hópurinn í ágúst

9 ágú. 2021Íslenska landslið karla í körfuknattleik hefur verið valið fyrir leikina í seinni umferð forkeppninni að HM 2023 sem fram fer næstu daga í Svartfjallalandi. Hópurinn hélt af stað í gær sunnudag til Svartfjallalands. Flogið var til Danmerkur í gær og heldur hópurinn áfram nú á eftir áfram á áfangastað til Podgorica. Leikir Íslands fara fram fimmtudaginn 12. ágúst og föstudaginn 13. ágúst í fyrri umferðinni og svo aftur mánudaginn og þriðjudaginn 16. og 17. ágúst. Allir leikirnir verða sýndir beint á RÚV og leiktími þeirra allra kl. 18:00 að íslenskum tíma.Meira
Mynd með frétt

NM U16 Kisakalio Finnlandi

6 ágú. 2021Norðulandamót undir 16 ára fór fram í Kisikalio á FinnlandiMeira
Mynd með frétt

Tap á fyrsta leikdegi gegn Eistlandi

1 ágú. 2021Undir 16 ára drengja og stúlknalið tapaði fyrir Eistlandi í dag í sínum fyrsta leik á Norðurlandamóti þessa árs í Kisakallio í Finnlandi.Meira
Mynd með frétt

Norðurlandamót U16 drengja og stúlkna

1 ágú. 2021Fyrstu leikir í Norðurlandamóti U16 landsliða drengja og stúlkna sem fer fram í Kisakallio í FinnalandiMeira
Mynd með frétt

Landslið karla: Eistland-Ísland í dag

29 júl. 2021Í kvöld leikjur landslið karla sinn annan vináttulandsleik gegn Eistlandi í æfingaferðinni í Tallinn. Leikurinn í gær var leikinn fyrir luktum dyrum og léku 14 leikmenn beggja liða og ákváðu þjálfararnir að leika 4x12 mín. Leikurinn í gær reyndist vel allir leikmenn tóku þátt og voru mínútum dreift milli leikmanna. Kári Jónsson snéri ökkla lítilega en er að jafna sig og leikur í kvöld aftur. Leikurinn var jafn og leiddi Ísland eftir 1. og 2. leikhluta og þar með í háflleik. Eistar áttu góðan þriðja leikhluta og nýttu til að mynda 7/11 þriggjastiga skotum sínum sem fór langt með leikinn fyrir þá að þessu sinni. Góðir leikur hjá okkar strákum í heild og þjálfarateymið ánægt með frammistöðu leikmanna og hvernig gekk að gera það sem lagt var upp með. Ægir Þór Steinarsson var með 14 stig og Elvar Már Friðriksson var með 13 en aðrir dreifðu öðru skori sín á milli.Meira
Mynd með frétt

Landslið karla: Tveir vináttulandsleikir gegn Eistlandi framundan

27 júl. 2021Íslenska landslið karla í körfuknattleik var kallað saman í lok síðustu viku til æfinga og hefur æft saman yfir helgina. Til að byrja með æfði hluti hópsins saman miðvikudag og fimmtudag en þá voru leikmenn úr þeim hóp boðaðir áfram og bættust við fleiri leikmenn á föstudeginum sem hafa æft saman síðan þá. Framundan eru mjög mikilvægir leikir í ágúst, dagana 12.-17. ágúst, í lokaumferð forkeppni að HM 2023. Þar leikur liðið í sóttvarnar „bubblu“ í Svartfjallalandi alla fjóra leiki sína gegn Svartfjallalandi og Danmörku í þriggja liða riðli. Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í sjálfa undankeppnina sem hefst í nóvember. Meira
Mynd með frétt

U20 karla: Leika um 3. sætið á morgun

22 júl. 2021U20 lið karla lék sinn þriðja leik í dag gegn Svíþjóð. Strákarnir okkar töpuðu gegn Finnum í fyrsta leik og unnu svo Eistland í gær. Í dag lék þeir gegn Svíum. Ísland-Eistland: Strákarnir í U20 unnu frábæran sigur á heimamönnum í þar sem Styrmir Snær Þrastarson fór mikinn. Eistar skoruðu 6 fyrstu stigin en síðan tóku strákarnir leikinn yfir og leiddu til loka. Þegar upp var staðið var sigurinn öruggur og liðsheildin virkilega góð. Öll fjögur liðin eru því með einn sigur og eitt tap eftir gærdaginn og því réðst það í dag um hvaða sæti liðin myndu leika.Meira
Mynd með frétt

U20 kvenna: Tveir leikir búnir · tap í gær og sigur í dag

22 júl. 2021U20 kvenna lék fyrsta leik sinn í gær af þrem í Svíþjóð þar sem heimastúlkur, Ísland og Finnland hittust og leika þrjá leiki innbyrðis sín á milli. Leikurinn í gær gegn Finnlandi var jafn framan af. Í lok þriðja leikhluta. Lokatölur 77:66 fyrir Finnland. Ísland lék vel á löngum köflum, lék frábæra vörn en með betri hittni úr opnum skotum hefði liðið haft fullt erindi í að vinna leikinn. Ásta Júlía Grímsdóttir var með 21 stig og Anna Ingunn Svansdóttir var með 18 stig, en báðar tóku þær sex fráköst hvor. Í dag mættu íslensku stelpurnar liði Svía í fyrr leik sínum gegn þeim, en liðið mætast aftur á morgun. Stelpurnar tóku forystuna snemma leiks og léku vel á báðum endum vallarins. 55:45 sigur niðurstaðan í dag.Meira
Mynd með frétt

U20 karla: Tap í fyrsta leik gegn Finnlandi

21 júl. 2021Strákarnir í U20 hófu leik í gær gegn Finnlandi í sínum fyrsta leik af fjórum á U20 móti sem fram fer í Eistlandi. Í dag er komið að öðrum leik liðsins og hefst hann kl. 16:30 að íslenskum tíma í dag (19:30 í Eistlandi). Hægt er að sjá lifandi tölfræði og horfa á beint streymi (gegn vægu gjaldi). Sjá nánar hérna ​Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira