Fréttir

Nýjustu fréttir

Mynd með frétt

Valur Íslandsmeistari Subway deildar kvenna 2023!

28 apr. 2023Valskonur urðu í kvöld Íslandsmeistarar í Subway deild kvenna eftir sigur á Keflavík í fjórða leik úrslita í Origo höll Vals. Í leikslok var Kiana Johnson, leikmaður Vals, valin besti leikmaður úrslitanna.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 28 APRÍL 2023

28 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Undanúrslit yngri flokka hefjast í kvöld

28 apr. 2023Fyrstu leikir undanúrslita yngri flokka hefjast í kvöld, en þá verður leikið í Ljónagryfjunni. Um helgina verða leiknir alls 42 undanúrslitaleikir í 9. flokki og upp í ungmennaflokk á Ásvöllum, HS Orkuhöllinni, Ljónagryfjunni og Meistaravöllum. Hægt er að sjá dagskrá allra leikvalla á mótahluta heimasíðu KKÍ. Úrslit 9., 10., 11. og ungmennaflokks og 2. deild 12. flokks karla fara svo fram dagana 12.-16. maí, en þá verður leikið í Blue höllinni og Meistaravöllum. Í 1. deildum 12. flokks karla og kvenna verður leikin úrslitasería þar sem vinna þarf tvo leiki til að standa uppi sem Íslandsmeistari, en þær seríur verða settar á dagskrá þegar ljóst er hvaða lið mætast í úrslitum.Meira
Mynd með frétt

Söfnunarátak fyrir yngri landsliðin: Þinn styrkur - Þeirra styrkur

27 apr. 2023Í dag hefst söfnunarátak KKÍ sem er sett af stað til að greiða niður kostnað leikmanna yngri landsliða og fjöskyldna þeirra fyri verkefni komandi sumars. Verkfnið kallast „Þinn styrkur - þeirra styrkur” . Eins og undanfarin ár heldur KKÍ úti 10 yngri landsliðum sem taka þátt í verkefnum erlendis, U15 drengja og stúllkna (æfingarmót), U16 drengja og stúlkna, U18 drengja og stúlkna og U20 karla og kvenna sem öll taka þátt í NM og EM. Heildarkostnaður við yngri landsliðsstarfið á þessu ári er um 80 milljónir og af því þurfa leikmenn og fjölskyldur þeirra að greiða 45-50 milljónir í ferða- og fæðiskostnað, KKÍ þarf að fjárfmagna 30-35 milljónir. Flestir leikmenn munu fara bæði á NM og EM og verður heildarkostnaður samtals rúmlega 600.000 kr. á þann einstakling og fjölskyldu. Því hefur KKÍ ákveðið að fara í átak sem snýr því að fá fyrirtæki og einstaklinga til að styðja við bakið á okkar unglingalandsliðum. Fjárhagslegur stuðningur frá ríkisvaldinu til landsliðsstarfs sérsambandanna þarf að verða enn meiri og kallar KKÍ enn einu sinni eftir því að ríkistjórn Íslands stór auki framlag sitt til landsliðsstarfs íþróttahreyfingarinnar. Undir lok síðasta árs KKÍ var sett niður um afreksflokk hjá stjórn og afrekssjóði ÍSÍ sem gerir það að verkum að sambandið fær enn minna úr afrekssjóði ÍSÍ (sem fjármagnaður er að stærstum hluta frá ríkisvaldinu). Töluverð vinna er í gangi vegna þessa á vegum ríksvaldins, ÍSÍ og sérsambandanna en því miður þá er útlit fyrir að engin breyting verði á þessu ári. Því hefur KKÍ ákveðið að fara í átak sem snýr því að fá fyrirtæki til að styðja við bakið á yngri landsliðsleikmönnum okkar í sumar. Þannig fer það fjármagn sem safnast í þessu átaki beint til að niðurgreiða kostnað leikmanna og fjölskyldna þeirra. Átakið er kallað „Þinn styrkur – þeirra styrkur“ því það fjármagn sem safnast nýtist beint til unga fólksins sem leikur með landsliðum KKÍ með því að niðurgreiða þann kostnað sem þau þurfa sjálf að greiða. KKÍ mun koma fyrirtækjunum sem styðja við bakið á okkar yngri landsliðsfóki í þessu átaki á framfæri með almennum auglýsingum, samfélagsmiðlum og svo í kringum ferðirnar hjá öllum landsliðnum okkar í sumar. Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 26 APRÍL 2023

26 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Hamar tryggði sér sæti í Subway deild karla

25 apr. 2023Hamar tryggði sér sæti í Subway deild karla á næsta keppnistímabili eftir sigur á Skallagrím í oddaleik fyrir fullu húsi í Hveragerði í gærkvöldi. Áður hafði Álftanes tryggt sér öruggt sæti í úrvalsdeild með því að vinna 1. deildina, en Hamar færist einnig upp um deild með því að sigra umspilið um laust sæti.Meira
Mynd með frétt

Þjálfaranámskeið KKÍ í maí og júní 2023

24 apr. 2023Skráning á þjálfarananámskeið í maí og júní hefur nú verið opnuð, en í boði eru tvo vönduð þjálfaranámskeið. Hægt er að lesa nánar um námskeiðin með því að smella á "Meira >".Meira
Mynd með frétt

Undanúrslit deildarkeppni yngri flokka

24 apr. 2023Undanúrslit deildarkeppni yngri flokka verða leikin um komandi helgi eins og áður hefur verið kynnt. Leikið verður á Ásvöllum, Blue höllinni, Grindavík og Meistaravöllum. Á undanúrslitahelginni eru leikin 4 liða úrslit í öllum deildum yngri flokka, frá 9. flokki upp í ungmennaflokk. Þau lið sem vinna fara svo í úrslit helgina 12.-16. maí, að undanskildum liðunum í 1. deild 12. flokks, en þau leika úrslitaseríu 15.-21. maí um Íslandsmeistaratitil 12. flokks.Meira
Mynd með frétt

Grindavík Íslandsmeistari 7. flokks drengja

24 apr. 2023Fyrstu Íslandsmeistaratitlar þessa tímabils voru veittir um helgina þegar lokaumferð 7. flokks var leikin. 7. flokkur drengja lék í Umhyggjuhöll Stjörnunnar, en þar hafði Grindavík sigur í öllum fjórum leikjum helgarinnar, gegn KR 60-28, gegn Haukum 46-37, gegn Breiðablik 52-39 og gegn Stjörnunni 54-37. Breiðablik vann silfrið, en þeir unnu þrjá leiki af fjórum. Til hamingju Grindavík!Meira
Mynd með frétt

Stjarnan Íslandsmeistari 7. flokks stúlkna

24 apr. 2023Fyrstu Íslandsmeistaratitlar þessa tímabils voru veittir um helgina þegar lokaumferð 7. flokks var leikin. 7. flokkur stúlkna lék í Blue höll Keflavíkur, en þar hafði Stjarnan sigur í öllum fjórum leikjum helgarinnar, gegn Val 56-23, gegn Haukum 35-22, gegn Grindavík 36-17 og gegn Keflavík 31-27. Keflavík vann silfrið, en þær unnu þrjá leiki af fjórum. Til hamingju Stjarnan!Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 19 APRÍL 2023

20 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 18 APRÍL 2023

19 apr. 2023 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Stjarnan sigurvegari 1. deildar kvenna

19 apr. 2023Stjarnan hafði sigur í oddaleik úrslitaeinvígis 1. deildar kvenna í gærkvöldi og tryggðu sér þar með sæti í úrvalsdeild kvenna fyrir 2023-2024 leiktíðina. Stjarnan varð einnig deildarmeistari 1. deildar kvenna og höfðu sigur í úrslitakeppninni með því að slá út KR í undanúrslitum og Þór Ak. í úrslitum. Til hamingju Stjarnan!Meira
Mynd með frétt

Þróttur V. sigurvegarar 2. deildar karla

17 apr. 2023Þróttur V. höfðu sigur í úrslitaeinvígi 2. deildar karla síðasta föstudag og tryggðu sér þar með sæti í 1. deild karla fyrir 2023-2024 leiktíðina. Þróttarar fóru taplausir í gegnum leiktíðina, en þeir unnu alla 20 leiki sína í deildarkeppni 2. deildar og alla þrjá leikina í úrslitakeppninni. Til hamingju Þróttur V.!Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 15 APRÍL 2023

15 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 12 APRÍL 2023

12 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 9 APRÍL 2023

9 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 5 APRÍL 2023

6 apr. 2023 Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálium sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

NIÐURSTAÐA AGA- OG ÚRSKURÐARNEFNDAR KKÍ 3 APRÍL 2023

3 apr. 2023Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.Meira
Mynd með frétt

Valur deildarmeistari Subway deildar karla

31 mar. 2023​Valur fékk deildarmeistaratitil Subway deildar karla afhentan eftir leik gegn Tindastól á fimmtudagskvöld. Valur hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn, en fengu verðlaunin afhent á heimavelli sínum. Valur er því með heimavallarrétt í gegnum alla úrslitakeppnina. Til hamingju Valur.Meira

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira