Greinar

28.11.2024 08:38

Davíð Tómas dæmir í Póllandi

Davíð Tómas Tómasson dæmir í kvöld leik Polski Cukier Lublin og Panathinaikos frá Grikklandi en leikurinn fer fram í Póllandi og er hluti af Euro Cup kvenna.
Nánar ...

27.11.2024 08:34

Jóhannes dæmir í Skotlandi

Jóhannes Páll Friðriksson dæmir í kvöld leik í East Kilbride í Skotlandi milli Caledonia Gladiators og Neptunas Amberton frá Litháen í Euro Cup kvenna.
Nánar ...

20.03.2024 08:00

Kveðja frá KKÍ · Einar Ólafsson 13.1.1928 - 12.03.2024

Einar Ólafsson hlaut heiðurkross KKÍ í febrúar 2001 og er hann einn fimm einstaklinga sem hafa hlotið heiðurskross KKÍ í 63 ára sögu sambandsins. Það sýnir hversu öflugur eldhugi Einar var og á hann mjög stóran þátt í útbreiðslu og kennslu á körfuboltanum hér fyrr á árum. Einar var hlédrægur og lét yfirleitt lítið fyrir sér fara en ávalt tilbúinn að kenna og leiðbeina. Þrátt fyrir háan aldur var hann að mæta á leiki þar til allra síðustu ár og þá aðallega hjá ÍR en einnig mætti hann á einstaka landsleiki. Alltaf var gaman að ræða við hann og finna væntumþykju hans fyrir íþróttinni okkar og KKÍ. Hann vildi sjaldan geri mikið úr sínum afrekum og hversu mikinn þátt hann átti í að efla körfuboltann í landinu sem sýnir svo vel hlédrægni hans fyrir hans góðu störfum.
Nánar ...

29.01.2021 06:30

KKÍ 60 ára · 29. janúar 2021

Í dag fögnum við 60 ára afmæli Körfuknattleiksambands Íslands, en sambandið var formlega stofnað sunnudaginn 29. janúar 1961. Körfubolti hafði verið stundaður hér á landi um nokkurt skeið áður en kom að stofnun KKÍ, en eftir dugnað stórhuga baráttumanna tókst að setja KKÍ á stofn. Þeim eigum við mikið að þakka. Það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig þar sem nokkur andstaða var við fjölgun sérsambanda á þessum tíma. Ég held að á engan sé hallað þegar ég nefni að Bogi Þorsteinsson, fyrsti formaður KKÍ hafi verið sá sem barðist hvað mest fyrir stofnun KKÍ. Það má sannarlega segja að KKÍ og körfuboltinn á Íslandi hafi vaxið og dafnað á þessum 60 árum. Íþróttin er orðin ein fjölmennasta og vinsælasta íþróttagrein landsins, en fjöldi sjónvarpsútsendinga, fjöldi iðkenda og sá fítonskraftur sem leynist í aðildarfélögum KKÍ ber þess glögglega merki.
Nánar ...

04.12.2020 15:45

Pistill formanns KKÍ · Hannes S. Jónsson 4. des. 2020

Síðustu vikum má líkja við eina góða langa sérleið í rally, ég sé fyrir mér gömlu góðu Lyngdalsheiðina þegar ég skrifa þetta. Þrátt fyrir allt stopp í æfingum og keppni hefur allt verið á blússandi fullri ferð og nánast á yfirsnúning í sjötta gír. Enn einu sinni á þessu sérstaka ári 2020 höfum við í körfuboltanum og íþróttahreyfingunni þurft að takast á við krefjandi aðstæður. Mikið hefur verið fundað, spjallað, skrifað og hugsað. Margar skoðanir á lofti, ýmsar áhyggjur, en efst er mér í huga samskipti við skemmtilegt hugsjónafólk með mikla ástríðu fyrir körfubolta. Eftir að þessi faraldur náði tökum á heimsbyggðinni höfum við spilað fjóra landsleiki við afar sérstakar aðstæður.
Nánar ...

09.07.2020 15:14

Mótahald KKÍ - reglulegur vöxtur

Mótahald KKÍ hefur vaxið hröðum skrefum síðustu ár, en það endurspeglar góða og vaxandi stöðu körfuknattleiksíþróttarinnar hér á landi ásamt því öfluga starfi sem aðildarfélög KKÍ, hringinn um landið, standa fyrir.
Nánar ...

21.11.2018 09:20

Landslið kvenna: ÍSLAND-BOSNÍA í kvöld kl. 19:45

Íslenska kvennalandsliðið mætir í kvöld landsliði Bosníu í sínnum síðasta leik í riðlakeppninni í undankeppninni fyrir EM kvenna 2019. Lokamótið fer fram næsta sumar í Serbíu og Lettlandi. Leikurinn hefst kl. 19:45 í Laugardalshöllinni og verður í beinni útsendingu á RÚV2.
Nánar ...

01.09.2018 16:20

Landsliðs karla: Sigur í fyrri leiknum gegn Noregi í Bergen

Íslenska landslið karla lék í kvöld fyrri leik sinn gegn landsliði Norðmanna í Bergen, en liðin mætast öðru sinni á morgun. Leikurinn er liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir forkeppni EuroBasket 2021 og er liðið í boði norska sambandsins sem heldur upp á 50 ára afmæli sitt í ár. Eftir að hafa skoað aðeins fimm stig í öðrum leikhluta og lent 20 stigum undir í hálfleik, þá er skemmst frá því að segja íslenska liðið kom allt annað til leiks í seinni hálfleik og byrjaði fljótlega að minnka muninn hægt og rólega með betri varnarleik og skilvirkari sókn. Frábært kafli í lok leikhlutans og í byrjun fjórða leikhluta lagði grunninn að því að leikurinn varð jafn og þá sýndu íslensku strákarnir sínar bestu hliðar og lönduðu sigri 69:71, með yfirvegun og skynsömum leik og frábærri vörn.
Nánar ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira