10 nóv. 2026

A-landslið kvenna hefur æft vel síðustu daga í Dublin en liðið er að undirbúa fyrsta leik nýrrar undankeppni vegna EuroBasket 2029. 

Fyrsti andstæðingur Íslands að þessu sinni er Írland og svo eru heimaleikir gegn Sviss laugardaginn 14. nóvember kl. 16:00 og svo gegn Aserbaísjan þriðjudaginn 17. nóvember kl. 19:30. Báðir heimaleikirnir fara fram í Ólafssal. 

Stelpurnar okkar eru klárar í slaginn - styðjum þær til sigurs í gegnum sjónvarpið en RÚV sýnir leikinn í Dublin að sjálfsögðu í beinni útsendingu. Heimaleikirnir eru sömuleiðis sýndir á rásum RÚV en við hvetjum ykkur öll til að tryggja ykkur miða hér á Stubb.

Frítt er inn fyrir yngri en 16 ára. 

Samfélagsmiðlainnslög frá ferðinni má finna hér á Facebook og hér Instagram.

Írland - Ísland kl. 19:00 þriðjudaginn 11. nóvember 2026.

Áfram Ísland!