10 nóv. 2026Í leik Tindastóls og ÍR í Bónusdeild karla í Skagafirði í gær náði Sigmundur Már Herbersson þeim merka áfanga að dæma 2500 mótsleiki á vegum KKÍ, fyrstur manna.

Sigmundur byrjaði að dæma í janúar 1995 þegar hann dæmdi leik Keflavíkur og ÍA í unglingaflokki karla.

KKÍ óskar Sigmundi til hamingju og þakkar honum jafnframt fyrir dygga þjónustu við körfuboltann.

Takk Simmi og vel gert!